09.11.1983
Efri deild: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (522)
10. mál, verðlagsmál
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Það hlýtur að liggja að einhverju leyti í húsnæðinu að menn detta hér alltaf í sagnfræði þegar þeir koma upp í ræðustól. Mér er sagt að það hafi verið kennt hér á stríðsárunum í menntaskólanum og prófað í Sameinuðu.
Ég er kominn hér upp til að taka undir orð hv. 11. þm. Reykv. um að 1. gr. þessara laga veldur því með orðalagi sínu að mönnum er í raun algerlega selt sjálfdæmi um það hvernig þeir beita henni. Hæstv. forsrh. sagði að Verðlagsstofnun miðaði sína ákvörðunartöku við eftirgreind atriði, sem hann las upp eða tíndi til: Þ.e. hækkun hráefniskostnaðar, henni mátti hleypa inn í verðlag eða samþykkja sem grundvöll að hærra vöruverði, hækkun launa innan marka þeirra launahækkana sem leyfðar voru og síðan hækkun þjónustu. Þar með eru allir kostnaðarliðirnir, sem til greina koma yfir höfuð, komnir inn í dæmið og sýnilega engin bönd önnur á hækkununum en þau sem felast í launaskerðingunni sjálfri. Þetta þýðir í reynd, að það eina sem á einhvern hátt temprar eða dregur úr verðhækkunum er einfaldlega launaskerðingin sjálf, en að öðru leyti er kostnaðarliðum hleypt að fullu inn í verðlagið.
Menn tala hér um að það hefði mátt skerða álagningarprósentu til að koma á móti þessu. Ég get ekki fyrir mitt leyti endilega mælt með slíku. Ég get ekki séð að það hefði ekki mátt fylgja með lögum sem þessum greinargerð þar sem einfaldlega var ákveðið fyrir fram hversu háu hundraðshlutfalli af hráefniskostnaði, erlendum kostnaði og þjónustu hefði mátt hleypa inn í vöruverð, þannig að menn vissu þessa hluti fyrir fram rétt eins og með launahækkanirnar.