14.05.1984
Neðri deild: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5855 í B-deild Alþingistíðinda. (5229)
123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. 2. minni hl. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Í fréttum sjónvarpsins í kvöld var greint frá þeim tíðindum að sennilega væri ekki nauðsynlegt að gera þinghlé vegna ágreiningsins í ríkisstj. Ríkisstj. hæstv. hefði komið sér saman um þau tvö alvarlegu ágreiningsmál sem hafa valdið mestum óskunda á stjórnarheimilinu að undanförnu. Annað er deilan um það hvort húsnæðissamvinnufélagið Búseti eða slík félög geti átt aðild að félagslega íbúðabyggingarkerfinu. Hitt deilumálið var það hvort mætti skattleggja tilteknar vörur, þ. e. a. s. Mangósopa, Kókómjólk og Jóga. Sjónvarpið greindi frá því að ríkisstj. hefði náð samkomulagi í þessum deilumálum, einnig í hinu hrikalega deilumáli sem kennt er við Mangósopann, en í þeim efnum hefur verið starfandi fjögurra manna ráðherranefnd núna um nokkurra vikna skeið.
Formaður mangónefndarinnar var hæstv. forsrh. Aðstoðarmenn hans í mangónefndinni voru hæstv. viðskrh., hæstv. landbrh. og hæstv. fjmrh. sem lagði mangóskattinn á. Hann fékk að vera með í nefndinni. Þessum fjórum ráðh., þ. e.a. s. 40% ríkisstj., voru til aðstoðar fjórir embættismenn. Það voru því átta menn, ráðh. og embættismenn, sem sveittust við vikum saman að komast að niðurstöðu í þessu hryllilega deilumáli sem var um það bil að sprengja ríkisstj. í loft upp. Og sjá, samkomulag er fætt. Samkomulagið varð á þá leið að Framsfl. seldi húsnæðissamvinnufélögin fyrir mangósopann. Það er sú stjórnviska sem kemur út úr mangónefndinni sem hæstv. forsrh. leiddi með þeim glæsibrag sem núna liggja fyrir upplýsingar um.
En önnur nefnd á að taka við. Hv. þm. Þorsteinn Pálsson greindi frá því áðan að sett yrði sérstök sáttanefnd í húsnæðissamvinnufélagamálið í sumar, eins konar framhald mangónefndarinnar.
Sjálfsagt verður það hæstv. forsrh. sem leiðir þá nefnd til þess að ríkisstj. komist að niðurstöðu í sambandi við þessi húsnæðissamvinnufélagamál fyrir haustið. Þessi afstaða Framsfl. lýsir því 100% hvar þeirra áherslur liggja bæði í félagslegum efnum og pólitískum almennt. Það er sláandi að Framsfl., sem hefur í rauninni getað gengið að vísum stuðningi meiri hluta Alþingis í húsnæðissamvinnufélagamálinu, skuli undir merkjum formanns Sjálfstfl. sjá sig tilknúinn til þess að styðja þá brtt. sem Þorsteinn Pálsson mælti fyrir fyrr í kvöld.
Það er reyndar líka athyglisvert í þessu máli, herra forseti, að þetta er fyrsta málið sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson kemur fram á þingmannsferli sínum. Það er mikil reisn yfir þessu máli sem hann hefur þannig knúið fram í gegnum Alþingi og pínt Framsfl. til þess að samþykkja. Reisnin kemur m. a. fram í því að Sjálfstfl. studdi c-lið 33. gr. á síðasta þingi og gerði meira en að styðja. Hann var með sérstaka brtt. um það að leiguíbúðir skv. c-lið 33. gr. ættu að fá 80% lána. Það voru till. Sjálfstfl. á síðasta þingi. Hann taldi það hraklegt að þáverandi ríkisstj. skyldi aðeins sjá sér kleift að tryggja húsnæðissamvinnufélögunum 65% lána.
Núna, þegar kominn er nýr formaður í Sjálfstfl., er niðurstaðan sú að rífa möguleika húsnæðissamvinnufélaga á að fá lán úr félagslega íbúðabyggingarkerfinu út úr frv. Þessi afstaða Sjálfstfl. er táknræn. Hún er sláandi dæmi um það hvernig hann hefur í raun og veru sett mark sitt á þetta frv. í einu og öllu, m. a. með því að stórlækka og rústa lán til félagslegra íbúðabygginga, m. a. verkamannabústaðanna.
Í till. Sjálfstfl. og Framsfl., sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson mætti fyrir fyrr í kvöld, er gert ráð fyrir því að felld séu í burtu orðin „... og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi“ en upphaflega hljóðar 3. gr. c-liður svo: „Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða félagasamtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða, öryrkja og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi.“
Það er síðasta setningin sem þarna á að fetla út skv. till. þeirri sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson flutti fyrr í kvöld fyrir hönd Alexanders Stefánssonar, hæstv. félmrh.
Um það hefur verið deilt hvort húsnæðissamvinnufélögin ættu aðgang að hinu félagslega íbúðabyggingarkerfi. Það hafa verið skiptar skoðanir um það, en það hefur verið alveg ótvíræður pólitískur vilji meiri hluta Alþingis að húsnæðissamvinnufélögin ættu að eiga aðgang að félagslega íbúðabyggingarkerfinu. Þegar mál þetta kom til 2. umr. hér á hv. Alþingi gerði hæstv. félmrh. svofellda grein fyrir atkvæði sínu:
„Herra forseti. Í þessu frv. er í c-lið 33. gr. aukið hlutverk Byggingarsjóðs verkamanna til félagslegra íbúðabygginga og þar segir:
„Leiguíbúðir, sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða félagasamtökum og ætlaðar eru til útleigu á hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða, öryrkja og aðra sem ekki hafa aðstöðu til að eignast eigið húsnæði við hæfi.“
„Þetta er nánar útfært“ — segir hæstv. ráðh. — „í 54. gr. og í aths. við 33. gr. og 54. gr. sem fylgja frv. Það er mín túlkun“ — segir hæstv. félmrh. þegar þetta mál var til 2. umr. — „að skv. c-lið fái félagssamtök, sem ætla að byggja leiguíbúðir sem ætlaðar eru til útleigu fyrir félagsmenn sína, sem ekki hafa aðstöðu til að eignast eigið húsnæði við hæfi, möguleika til lána úr Byggingarsjóði verkamanna, enda uppfylli aðilar ákvæði Byggingarsjóðs verkamanna um tekjuviðmiðun skv. 44. gr. frv.“
Þetta sagði hæstv. félmrh. og notaði það sem rök til þess að fella brtt., bæði frá mér og hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, í þessu efni. Þetta var við 2. umr. málsins.
Síðan var málið tekið á dagskrá á hverjum fundinum á fætur öðrum hér í hv. Nd. og þeir sátu á sáttafundum, hv. þm. Þorsteinn Pálsson og hæstv. félmrh. 3. maí var málið hér á dagskrá, en ekki tekið fyrir vegna ágreinings stjórnarflokkanna. Sættir höfðu ekki tekist. 4. maí var þetta mál á dagskrá í Nd. en ekki tekið fyrir vegna ágreinings stjórnarflokkanna. Þannig er hægt að rekja hér hverja dagskrána á fætur annarri á síðustu sex eða átta fundum þessarar virðulegu deildar. Málið var ekki tekið fyrir vegna ágreinings stjórnarflokkanna. Fréttir fjölmiðla, ríkisútvarpsins og sjónvarpsins, voru fullar af upplýsingum um það hvernig gengi í þessu máli. Allt væri fast. Félmrh. sagði: Já, ég mun nú taka málið til athugunar. Ég mun nú skipa nefnd og skoða málið. Hv. þm. Halldór Blöndal sagði í umr. á Alþingi og í fjölmiðlum að húsnæðissamvinnufélögin ættu ekki rétt skv. frv. í félagslega kaflanum.
Á dagskrá Nd. 11. maí var málið enn og ekki tekið fyrir. Þá kvaddi ég mér hljóðs um þingsköp og spurði að því hvort samkomulag hefði orðið í ríkisstj. um þetta efni. Hæstv. forsrh. svaraði því til að ekkert samkomulag væri þar að hafa. Hins vegar gerist það á þessum degi að samkomulag er komið.
Þetta hefur verið notað í braski á milli stjórnarflokkanna um þinghaldið og þingslitin. Þeir urðu einhvern veginn að finna leið til að þvæla sér út úr þingslitunum í stað þess að fresta þinginu, eins og formaður þingflokks Sjálfstfl. lagði til, til þess að vinna að sáttum í þessari ríkisstj. fram á sumar, eins og hann orðaði það. Menn bröskuðu sig í gegn og versluðu með húsnæðissamvinnufélögin fyrir mangósopann og jógann.
Það var alveg ljóst að húsnæðissamvinnufélögin gátu átt rétt skv. 33. gr. e-lið. Á því var enginn vafi og meiri hl. Alþingis var örugglega tilbúinn til þess að staðfesta þá túlkun sem hæstv. félmrh. hélt fram í þeim efnum. Sigurður Líndal prófessor gerði kröfu til þess og taldi nauðsynlegt að Alþingi skýrði þetta mál. Það var eðlileg krafa. Og það er rétt sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson sagði áðan að verið er að skýra málið með þessari till., þ. e. með þeim hætti að henda húsnæðissamvinnufélögunum út.
Ragnar Aðalsteinsson hrl. sendi frá sér 9. maí 1984 ítarlega álitsgerð í þessu efni sem er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Álitsgerð um það hvort húsnæðissamvinnufélag uppfylli skilyrði til lánveitinga úr Byggingarsjóði verkamanna skv. e-lið 33. gr. í frv. til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins.
1. Ágreiningur hefur verið um hvernig túlka beri framangreint ákvæði ef að lögum verður. Framangreint frv. er stjfrv. Í samræmi við starfsskiptingu ráðh. hefur félmrh. mælt fyrir frv. á Alþingi. Hann skýrir hið umdeilda ákvæði þannig að hin nýju húsnæðissamvinnufélög uppfylli skilyrði þess að fá lán úr sjóðnum. Aðrir ráðherrar hafa ekki gert athugasemdir við túlkun þessa. Nokkrir þm. hafa hins vegar gert það. Þess er óskað að ég láti uppi álit mitt á framangreindu ágreiningsefni.
2. Í 33. gr. frv. er hlutverk Byggingarsjóðs verkamanna skilgreint og það sagt vera að annast lánveitingar til félagslegra íbúðabygginga með það að markmiði að bæta úr húsnæðisþörf láglaunafólks. Síðan er skilgreint hvað átt sé við með félagslegum íbúðum. Í a-lið er fjallað um söluíbúðir í verkamannabústöðum, í b-lið er fjallað um leiguíbúðir sveitarfélaga handa láglaunafólki eða öðrum þeim sem þarfnast af félagslegum ástæðum aðstoðar við húsnæðisöflun og í e-lið er fjallað um leiguíbúðir sveitarfélaga, stofnana sveitar og/eða ríkis og félagasamtaka fyrir þá sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi. Hér á eftir verður einungis fjallað um leiguíbúðir skv. c-lið.
3. Skilyrði láns úr Byggingarsjóði verkamanna skv. c-lið eru þessi:
Að lántakandi sé sveitarfélag, stofnun á vegum sveitarfélags og/eða ríkisins eða félagasamtök. Að lánveiting sé til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum. Að leiguíbúðirnar séu til útleigu við hóflegum kjörum. Að íbúðirnar séu til leigu fyrir launafólk, aldraða, öryrkja og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi.
4. Í aths. við frv. við 54. gr. þess segir m. a.: „Þegar rætt er um félagssamtök og stofnanir sem framkvæmdaaðilar við byggingu leiguíbúða eru hafðar í huga sjálfseignarstofnanir, svo sem Félagsstofnun stúdenta og aðrar sambærilegar stofnanir, samtök leigjenda, verkalýðsfélög og fleiri hagsmunaaðilar sem myndað gætu samtök til þess að byggja leiguíbúðir til afnota fyrir félagsmenn eða til leigu á almennum markaði.
5. Í c-lið 33. gr. eru engin takmörk sett við því hvers konar félag geti fengið lán úr Byggingarsjóði verkamanna til öflunar leiguíbúða. Í fyrrgreindum aths. við 54. gr. frv. kemur fram að einkum eru höfð í huga samtök leigjenda og verkalýðsfélög. Leigjendasamtökin höfðu alllöngu áður en grg. með frv. var samin haft frumkvæði um stofnun húsnæðissamvinnufélags með búseturétti. Er augljóslega vitnað til þess í grg. og vilji flytjanda frv. ríkisstj. því ótvíræður að þessu leyti.
6. Athugunarefni er hvort eitthvert skilyrðanna í c-lið 33. gr. útilokar rétt húsnæðissamvinnufélags til lána úr Byggingarsjóði verkamanna. Ótvírætt er að húsnæðissamvinnufélag hlýtur skv. markmiði sínu að nota lán til að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði til útleigu fyrir félagsmenn sína til að bæta úr húsnæðisþörf þeirra. Það felst og í eðli samvinnufélags að þetta skal gert við hóflegum kjörum. Þeirri spurningu er því ósvarað um skilyrðin hvort um úrbætur á þörf, húsnæðisþörf láglaunafólks yrði að ræða og hvort íbúðir félagsins yrðu til leigu fyrir námsfólk, aldraða og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði.
7. Svör við síðastgreindum spurningum hafa engin áhrif á þær niðurstöður að húsnæðissamvinnufélag uppfylli skilyrði þess að fá lán til öflunar húsnæðis skv. frv. Hins vegar verða húsnæðissamvinnufélög sem og aðrir lántakendur að uppfylla lánsskilyrðin skv. lögum um meðferð þess húsnæðis sem fjármagnað er með lánum úr Byggingarsjóði verkamanna. Svo virðist sem ágreiningur um skilning á c-lið 33. gr. eigi því einkum rætur að rekja til þess að ekki hefur verið greint nægilega á milli þess hverjir geti fengið lán úr sjóðnum, sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök, og hvaða skilyrði skuli setja fyrir lánveitingum um not þess húsnæðis sem byggt er fyrir lánin.
8. Sú niðurstaða að húsnæðissamvinnufélag falli undir ákvæði c-liðs 33. gr. frv. styðst og við ummælin í grg. um samtök leigjenda og enn fremur við yfirlýsingar ríkisstj. sem leggur frv. fram, enda telst félmrh. fylgja frv. úr hlaði og túlka sjónarmið ríkisstj. í framsöguræðu um frv. nema annars sé sérstaklega getið.
9. Við túlkun laga líta dómstólar fyrst og fremst til orðalags í lagatexta, en ef það er óljóst er leitað heimilda í grg. með frv. og í framsöguræðu með frv. Einkum þykja framsöguræður ráðherra með stjfrv. mikilvægar túlkunarheimildir. Yfirlýsingar einstakra þm. sem fara í bág við framangreindar túlkunarheimildir eru taldar heldur léttvægar.
10. Niðurstaða mín er sú að húsnæðissamvinnufélag með sama sniði og Búseti muni uppfylla skilyrði þess að fá lán úr Byggingarsjóði verkamanna ef stjfrv. verður að lögum. Þau verði eins og aðrir lántakendur að fara eftir þeim lánaskilmálum sem skilgreindir eru í lögunum um meðferð þeirra íbúða sem byggðar eru fyrir slík lán.“
Hér hefur hrl. Ragnar Aðalsteinsson samið ítarlega greinargerð um stöðu þessa máls eins og hún var 9. maí s. l. Það er alveg bersýnilegt að ef hæstv. félmrh. hefði haft í sér pólitíska döngun til þess að koma málinu a. m. k. óbreyttu í gegn væri staða húsnæðissamvinnufélaganna þannig að þau ættu að eiga alla möguleika á því að komast inn í hið félagslega íbúðabyggingarkerfi. Þess vegna er það furðulegt og sýnir að félmrh. hefur verið mjög aðþrengdur í þessu efni að hann skuli beygja sig til þess að breyta stjfrv. sem þm. Sjálfstfl. voru búnir að samþykkja að yrði lagt fram. Þess vegna gat hæstv. félmrh. staðið fast á því að frv. ætti ekki að breyta um stafkrók að þessu leyti þar sem sjálfstæðismennirnir voru búnir að samþykkja frv. En hæstv. félmrh. bar ekki gæfu til að halda svo vel á þessu máli. Þrátt fyrir óyggjandi greinargerðir manna eins og Ragnars Aðalsteinssonar, þrátt fyrir ótvíræðan pólitískan vilja hér á hv. Alþingi lætur hann kengbeygja sig þannig að annað eins hefur aldrei sést á hv. Alþingi og er ekki aðeins neyddur til að draga úr varðandi Búseta og húsnæðissamvinnufélögin yfirleitt heldur að henda þeim út. Þvílík útreið.
Það er líka einkar fróðlegt í þessu efni, herra forseti, að rifja það upp sem sagt var um húsnæðismál á síðasta hv. Alþingi. Um það eru til ítarlegar greinargerðir eins og kunnugt er í þeim gögnum sem nefnast Alþingistíðindi — umræður og er ítarlega greint frá máli manna lið fyrir lið eftir vélriti sem tekið er af segulbandi hér uppi í kompu eins og menn þekkja. Væri fróðlegt að lesa nokkuð ítarlega upp úr þessum gögnum einmitt nú vegna þess að það gæti orðið til þess að hreyfa við einhverjum mönnum og ástæðulaust að spara lesturinn því að efnið er nóg þegar allt kemur til alls.
Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hóf þennan lestur með tilvitnunum í umr. um málið á síðasta þingi þar sem var mjög oft rætt um húsnæðismál. Þar voru þeir íhaldsmenn mjög framarlega í flokki og vantaði ekki stóru orðin um að linlega væri á húsnæðismálum haldið og illa í fráfarandi ríkisstj., þar væri allt á öðrum endanum. Þeir voru ósparir á tillögur um að hækka stórkostlega frá því sem var framlög úr ríkissjóði til húsnæðismálanna og lýstu því enda yfir fyrir síðustu kosningar að þeir ætluðu að hækka húsnæðislánin umsvifalaust upp í 80%. Þau loforð voru svikin eins og ýmislegt fleira.
Í umr. í Ed. 16. des. 1982, þegar mælt var fyrir frv. um Húsnæðisstofnun ríkisins, gerði ég fyrir hönd þáv. ríkisstj. grein fyrir 12. gr. þess frv. sem fjallar um svipað mál og það sem hér er á dagskrá. Þar sagði ég, með leyfi hæstv. forseta:
„Í 12. gr. er brtt. sem verður að teljast grundvallaratriði og eitt meginatriði þessa frv. Þar er gert ráð fyrir að Byggingarsjóður verkamanna láni ekki aðeins til sveitarfélaga sem byggja leiguíbúðir, heldur einnig til félagssamtaka, stofnana og fyrirtækja sem byggja leiguíbúðir fyrir félagsmenn sína eða aðra sem þurfa á leiguhúsnæði að halda. Er þá sérstaklega höfð í huga sú mikla þörf sem námsfólk hefur fyrir leiguhúsnæði. Lítið hefur verið byggt af leiguíbúðum gagngert hér á landi um margra ára skeið, enda fer þeim stöðugt fækkandi, og því er brýn nauðsyn að gera sérstakt átak til að byggja leiguíbúðir.“
Talsmaður Sjálfstfl. í þessum umr. var Þorv. Garðar Kristjánsson. Hann sagði í umr. á Alþingi í Ed. — það er dálkur 1224 í 10. hefti þingtíðinda á síðasta ári — með leyfi hæstv. forseta: „Í 12. gr. er um að ræða ákvæði um nýjan lánaflokk leiguíbúða. Virðist mér að það sé sjálfsagt og sé til bóta frá núgildandi lögum.“ Svo mælti Þorv. Garðar Kristjánsson, hæstv. forseti Sþ. Þetta var ein af till. sem voru í frv. sem lagt var fram á síðasta þingi og húsnæðismálastjórn hafði farið höndum um og verið sammála um.
Enn var þetta mál, herra forseti, til meðferðar, svo að ég fari hratt yfir sögu, við 2. umr. í Ed. þann 4. mars 1983. Þar var gerð sérstök grein fyrir þessari brtt. og ekki kom fram nein gagnrýni á hana sérstaklega. Þvert á móti var hún samþykkt með shlj. atkv. allra þm. í hv. Ed., þ. á m. þm. Sjálfstfl. Hins vegar hafði hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson ýmislegt að athuga við þessi mál, lét gamminn geisa og sagði, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég kem þá að 8. brtt. okkar. Hún er við 26. gr. frv. sem fjallar um lán Byggingarsjóðs verkamanna til leiguíbúða sveitarfélaga og annarra aðila. Það er tekið fram að þessi lán megi vera 80% af áætluðum byggingarkostnaði. En í frv. er gerð undantekning frá þessu um það að sum lán til leiguíbúða megi ekki nema hærri upphæð en 65% af byggingarkostnaði. Við flm.“ — þ. e. Sjálfstfl. — „viljum ekki gera þennan greinarmun á þeim leiguíbúðum sem 26. gr. frv. fjallar um. Við viljum að allir þeir aðilar, sem hafa heimild til lána vegna leiguíbúða skv. 36. gr. laganna, hafi sama rétt til lánanna. Þetta er ekkert hégómamál fyrir þá sem flokkaðir eru skv. frv. í hinn óæðri flokk. Það eru m. a. stúdentar, svo að ég nefni eitthvert dæmi, en Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kynnt hv. félmn. skoðanir sínar og óskir í þessu efni, sem falla saman við brtt. okkar félaga“ — hann var þá að tala um þá í Sjálfstfl. — „sem ég er hér að lýsa.“
Afstaða Sjálfstfl. á síðasta þingi var því ekki sú að þessari till. væri ofaukið, hún gengi of langt. Það var nú aldeilis eitthvað annað. Sjálfstfl. taldi till. um 65% lán í þessum lánaflokki ganga allt of skammt. Lánin yrðu að hækka og menn ættu ekki að vera að flokka fólk í óæðri flokk með því að lána 65% í þessu skyni. Þannig hvein í íhaldinu á seinasta þingi.
Svo kemur að nýju þingi. Sjálfstfl. er í ríkisstj. ásamt Framsfl. og þeir báðir ættu að geta uppfyllt kosningaloforðin sem þeir gáfu báðir um 80% lán yfir línuna. En þá kemur eitthvað annað á daginn. Þegar hæstv. félmrh. leggur frv. fyrir þingið, sem búið er að samþykkja í báðum stjórnarflokkunum, þvælist það í þinginu langtímum saman og menn ætla aldrei að koma því út úr nefnd. Þegar loksins það kemst út úr nefnd, m. a. vegna þess að þar tóku menn saman höndum um að vinna rösklega, bæði stjórn og stjórnarandstaða, og búið er að afgreiða það út úr 2. umr. og menn héldu að málin gengju með þeim hætti áfram, þá er allt stopp. 81., 82., 83., 84., 85., 86. og 89. fundur í Nd. líða, málið er ekki tekið fyrir. Það er verið að pína hæstv. félmrh. til þess að falla frá afstöðu sinni og ekki bara að lýsa því yfir hér í ræðustólnum að allt sem hann hefur sagt sé markleysa, að hann líti ekki svo á að félögin eigi þessa aðild. Nei, það er ekki látið nægja. Málið er í rauninni rekið alveg þversum ofan í kokið á honum. Hann á sjálfur hér á eftir að greiða atkv. með lagabreytingu sem fellir hans eigin skilning. Þvílík reisn.
Glæst er á skriði flokksins fley, var stundum kveðið um Framsfl. hér áður. Það á tæplega við í þessu efni. Annað eins hefur aldrei sést í rauninni. Og ef það er rétt, sem gefið var í skyn í fréttum sjónvarpsins í kvöld, að þetta hafi verið selt fyrir afstöðuna í mangómálinu, þá er háðung Framsfl. orðin alger í þessu efni.
Svo mikið liggur við að koma þessu máli hér fram, þessari niðurlægingu hæstv. félmrh., svo mikið liggur við að krossfesta hann þegar í stað að hér eru pínd í gegn afbrigði með mjög óvenjulegum hætti. Ekkert hefur verið rætt við stjórnarandstöðuna um það að málið verði tekið hér fyrir á þessum kvöldfundi sem hún hefði sjálfsagt verið reiðubúin til. En það hefur ekkert verið samið um það við stjórnarandstöðuna hvaða mál verða tekin hér fyrir í kvöld, að ég best veit, á þessum fundi. Málið er tekið fyrir og það byrjar á því að hv. 1. þm. Suðurl., formaður Sjálfstfl., rís hér í ræðustólnum í öllu sínu veldi og flytur í rauninni sitt fyrsta framlag til málefnalegrar umr. hér á hv. Alþingi frá því að hann settist þar, að rífa þetta út úr húsnæðislögunum. (KP: Kominn á stall.) Kominn á stall, segir hv. þm. Karvel Pálmason, orðheppinn eins og oft. Settjarnarnesyfirlýsingin blífur. Formaðurinn er farinn að ryðja brautina fyrir nýjungar í löggjafarstarfi og slíta út úr stjfrv. mál sem hann var sjálfur búinn að samþykkja fyrir mörgum mánuðum. Auðvitað var hv. þm. Þorsteinn Pálsson búinn að samþykkja þetta stjfrv. og að það yrði lagt fyrir. En Sjálfstfl. munar ekki um að ganga bak orða sinna í því efni og kengbeygja félmrh. til undirgefni.
Ég skora á hæstv. félmrh. að hugsa sinn gang vel í þessu efni. Ég skora á hann að leita samkomulags við meiri hl. þingsins, sem ég er sannfærður um að er til, um það að húsnæðissamvinnufélögin geti fengið aðild að félagslega íbúðabyggingarkerfinu, enda uppfylli þau þau skilyrði sem sett eru í lögum um Byggingarsjóð verkamanna og félagslegar íbúðabyggingar. Ég skora á hæstv. félmrh. að grípa nú þennan spotta, þennan lífhring sem honum er sendur í þessu efni. Ég skora á hann að taka á þessu máli af fullum myndugleika og láta ekki íhaldið beygja sig í duftið eins og hér er flutt till. um, því að í rauninni ætti till. að hljóða svo: „Neðri deild Alþingis samþykkir að beygja hæstv. félmrh. og hafna skilningi hans á lögum um félagslegar íbúðabyggingar.“
Þannig hefði verið miklu hreinlegra fyrir hv. þm. Þorstein Pálsson að orða þá till. sem hann mælti fyrir áðan.