14.05.1984
Neðri deild: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5884 í B-deild Alþingistíðinda. (5246)
305. mál, umboðsþóknun vegna gjaldeyrisviðskipta
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég vildi aðeins rifja upp hvernig frv. þau sem hér eru til umr., um skattskyldu innlánsstofnana, eru til komin. Eins og kunnugt er voru samþykkt á Alþingi 7. maí 1982 lög um skattskyldu innlánsstofnana. Lögin voru samin í miklum flýti og voru í sjö greinum. Hins vegar voru fimm ákvæði til brb. vegna þess að lögin gátu ekki tekið gildi það ár. Í síðasta ákvæði til brb. stendur:
„Lög þessi og lög nr. 40/1969 (þ. e. um gjald af umboðsþóknun og gengismun vegna gjaldeyrisviðskipta) skulu endurskoðast af starfandi bankamálanefnd fyrir þingbyrjun haustið 1982“.
Það var sem sagt viðurkennt af Alþingi þegar lögin voru samþykkt 7. maí 1982 að þau hefðu verið samin í miklum flýti og þyrftu nánari endurskoðunar við. Eytt var í það mjög miklum tíma af starfandi bankamálanefnd það sumar að endurskoða lög þessi. Áttu sæti í þeirri nefnd aðilar frá öllum flokkum sem þá áttu sæti á Alþingi. Skilaði nefndin af sér fyrir þingbyrjun sameiginlegu áliti ágreiningslaust. Meginniðurstaða þess álits er nú komin hér í frv. til l. eftir þær breytingar sem gerðar hafa verið í Ed., en hæstv. fjmrh. lagði frv. fram í nokkuð breyttri mynd og lagði á bankastofnanir þyngri skyldur en nefndin hafði lagt til. Þó hafði nefndin lagt til að eignarskattur yrði felldur niður af bönkunum, en hins vegar talið álitamál hvort ætti að fella niður gjald af umboðsþóknun og gengismun vegna gjaldeyrisviðskipta, en það hendist nokkuð á munum það gjald og eignarskatturinn, þannig að segja má að í stórum dráttum sé þessi niðurstaða í góðu samræmi við það sem nefndin lagði til haustið 1982 og var undirritað af fulltrúum allra þeirra flokka sem áttu sæti á Alþingi.
Þannig eru þessi frv. til komin. Mér þótti skylt að upplýsa það hér því að ég tók þátt í því að semja þau, sem mikill stuðningsmaður fyrri ríkisstj., og lagði mig fram um það sem formaður þeirrar nefndar að ná um það góðu samkomutagi við fulltrúa annarra stjórnmálaflokka.
Menn ræða gjarnan hér um það að með þessu sé verið að létta sérstaklega af bönkunum og má það vel vera. En það vill nú svo til að þessir sömu bankar hafa mjög mörg tækifæri til þess að koma því á atvinnulífið og einstaklinga. Þetta er ekki spurningin um það að minnka þeirra tekjur, vegna þess að gjald það sem hér er lagt á leggst að sjálfsögðu á einstaklinga og atvinnulífið í landinu. Það er að mínu mati miklu betra að hafa vaxtamun minni og ganga ekki of langt í skattlagningu bankastofnana. Það er að mörgu leyti miklu heilbrigðari leið og fráleitt að halda því fram að hér sé sérstaklega verið að leggja á bankana. Bankarnir eru ekkert annað en þjónustustofnanir við atvinnulífið og einstaklingana og fá því miður og þurfa allt of mikið fyrir sinn snúð. Vaxtamunur er orðinn allt of mikill í landinu og kostnaður við bankakerfið of mikill og mikil nauðsyn að skrúfa ofan af því kerfi. En um það hefur ekki tekist góð samstaða. Ég man ekki betur en hv. 5. þm. Austurl., sem hér talaði áðan, hafi verið með í því að fjölga útibúum og gera það m. a. skömmu áður en hann fór úr sæti iðnrh., þannig að ekki hefur hann hjálpað til við að draga úr kostnaði í bankakerfinu, því miður.