15.05.1984
Sameinað þing: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5898 í B-deild Alþingistíðinda. (5254)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umferðir verða tvær, 15–20 mín. í þeirri fyrri og 10–15 mín. í þeirri síðari.
Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Samtök um Kvennalista, Alþb., Framsfl., Alþfl. og Bandalag jafnaðarmanna. Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Sjálfstfl.: Í fyrri umferð Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., í síðari umferð Albert Guðmundsson fjmrh. og Sverrir Hermannsson iðnrh. Fyrir Samtök um Kvennalista: Í fyrri umferð Kristín Halldórsdóttir, 7. landsk. þm., og Guðrún Agnarsdóttir, 3. landsk. þm., í síðari umferð Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv. Fyrir Alþb.: Í fyrri umferð Svavar Gestsson, 3. þm. Reykv., í síðari umferð Guðrún Helgadóttir, 10. landsk. þm., og Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e. Fyrir Framsfl.: Í fyrri umferð Steingrímur Hermannsson forsrh. og Jón Helgason dómsmrh., í síðari umferð Alexander Stefánsson félmrh. Fyrir Alþfl.: Í fyrri umferð Jóhanna Sigurðardóttir, 2. landsk. þm., og Karvel Pálmason, 3. þm. Vestf., og í síðari umferð Kjartan Jóhannsson, 3. þm. Reykn. Fyrir Bandalag jafnaðarmanna: Í fyrri umferð Stefán Benediktsson, 8. þm. Reykv., og Kolbrún Jónsdóttir, 8. landsk. þm., í síðari umferð Guðmundur Einarsson, 4. landsk. þm.