15.05.1984
Sameinað þing: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5913 í B-deild Alþingistíðinda. (5259)

Almennar stjórnmálaumræður

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Við stjórnarmyndun eftir alþingiskosningarnar á s. l. ári kom í ljós svo ekki verður um deilt að eingöngu ríkisstjórn Framsfl. og Sjálfstfl. var fær um að taka á þeim mikla vanda sem við blasti í efnahagsmálum þjóðarinnar. Undan því vildum við framsóknarmenn ekki skorast. Því var sú ríkisstjórn mynduð sem nú situr. Hún greip til harðra aðgerða til þess að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuvega og atvinnuleysi. Það tókst. Verðbólga hefur á einu ári fallið úr um 130%–140% í um 12%–14% á ársgrundvelli og er reyndar nú aðeins um 10% samkvæmt þeirri vísitölu framfærslukostnaðar fyrir aprílmánuð sem birt verður á morgun. Einsdæmi mun vera í heiminum að slíkur árangur náist í viðureign við verðbólgu. Þetta er að þakka markvissum aðgerðum ríkisstj. og víðtækum stuðningi almennings.

Upphaf þeirra erfiðleika, sem við eigum nú við að stríða, má rekja til efnahagskreppunnar í heiminum sem hófst 1979 með stórfelldum olíuverðshækkunum. Þegar heldur tók að rofa til erlendis fylgdi aftur á móti hér á landi hrun loðnustofnsins og síðan mikill samdráttur í þorskafla. Þetta hefur valdið því að þjóðarframleiðsla hefur þegar fallið um 8% á hvern íbúa og mun að öllum líkindum enn dragast saman á þessu ári um 2%. Þetta er mesti samdráttur í þjóðarframleiðslu og mestu erfiðleikar í efnahagsmálum sem þjóðin hefur átt við að glíma frá stofnun lýðveldisins. Áhrifin urðu meiri og alvarlegri vegna þess að ekki náðist samstaða um harðar viðnámsaðgerðir á árinu 1982 og í upphafi ársins 1983. Alþb. skorti vilja eða kjark, ef ekki hvort tveggja.

Með erlendar skuldir þjóðarinnar í hámarki var ljóst að óðaverðbólgan hlaut að leiða til efnahagslegs hruns. Því varð að forða. Fyrsti áfangi í efnahagsstefnu ríkisstj. beindist því gegn verðbólgunni og þeim voða sem henni fylgir. Árangurinn varð mikill. Á öllum sviðum efnahagsmála eru batamerkin augljós. Verðlag er stöðugt, vextir hafa verið lækkaðir um helming, viðskiptahallinn lækkaði úr 10% 1982 í rúmlega 2% 1983.

Deilt hefur verið á Framsfl. fyrir lögbindingu hinna hörðu efnahagsaðgerða. Á því öxlum við fulla ábyrgð. Það er mín skoðun að sérhverri ríkisstj. beri skylda til að fara þá leið sem árangur ber til að forða þjóðinni frá stórfelldum voða, jafnvel þótt tímabundið sé vikið frá hefðbundnum og eðlilegum sjónarmiðum. Í slíkum tilfellum verður þjóðarheill að ráða gerðum stjórnvalda.

Hinn mikli árangur sem náðst hefur er viðurkenndur og öllum ljós. Enginn vill verðbólgu að nýju.

Þessar fyrstu aðgerðir byggðu á markvissri stefnu í launamálum. Hjá því varð ekki komist. Við mjög lækkandi þjóðartekjur varð launum ekki haldið eins og þau voru orðin án stórfellds viðskiptahalla og áframhaldandi erlendrar skuldasöfnunar. Sú braut varð ekki lengur farin hún var á enda gengin.

Að mati Þjóðhagsstofnunar hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna lækkað um 10% eða svipað og þjóðartekjur. Fullyrðingar Svavars Gestssonar um annað hér áðan eru úr lausu lofti gripnar. Ljóst er að lækkun kaupmáttar kemur mjög misjafnlega við þegna þjóðfélagsins. Þeir sem minnst hafa fyrir mega síst við samdrætti. Þess vegna beitti ríkisstj. sér fyrir ákveðnum aðgerðum til hagsbóta fyrir þá sem erfiðust hafa kjörin. Það var bæði gert í upphafi stjórnarsamstarfsins og aftur í tengslum við samninga á hinum almenna markaði. Ég leyfi mér að fullyrða að ekki hafi áður verið gengið eins markvisst fram í þeim efnum og núverandi ríkisstj. gerði s. l. vetur með þeirri aðstoð sem veitt var einstæðum foreldrum og barnmörgum láglaunafjölskyldum.

Annar áfangi í efnahagsstefnu ríkisstj. er hafinn. Lögbundnar aðgerðir í launamálum hafa verið afnumdar. Í stað þess hefur ríkisstj. ákveðið þau mörk sem hún telur hæfa efnahagsþróun þjóðarinnar. Stefnt er að því að verðbólgan verði í lok ársins ekki yfir 10%. Til þess að það muni takast mun gengi verða haldið stöðugu. Gengi krónunnar hefur frá áramótum sigið um aðeins 2.5% og ekki er fram undan sjáanleg þörf fyrir umtalsvert gengissig, ef launahækkunum og öðrum kostnaði innanlands er haldið innan hóflegra marka og menn láta hvatningu Svavars Gestssonar hér áðan um deilur í þjóðfélaginu sem vind um eyru þjóta. Erlendar skuldir þjóðarinnar eru ekki auknar umfram 60% af þjóðarframleiðslu. Að sjálfsögðu hefði verið æskilegt að draga úr erlendum skuldum, en til þess er ekki svigrúm í minnkandi þjóðarframleiðslu.

Með fyrir fram ákveðinni gengisstefnu er brotið í blað í viðureigninni við verðbólguna. Nú geta atvinnuvegirnir ekki samið um laun í trausti þess að gengið verði fellt. Ég trúi því heldur ekki að nokkur launþegi vilji slíkt lengur. Mönnum er ljóst að því fylgir aðeins verðbólga.

Í þessum öðrum áfanga í efnahagsstefnu ríkisstj. er að því stefnt að treysta þann árangur sem hefur náðst og tryggja áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. Mesta hættan stafar nú að öllum líkindum af of mikilli þenslu í peningamálum. Því hefði verið æskilegt að draga sem mest ef ekki alveg úr halla ríkissjóðs. Þess var hins vegar enginn kostur án þess að skerða óbærilega þá þjónustu sem þegnunum er veitt eða afla viðbótartekna sem hefði skert kaupmáttinn sem um var samið í febrúar. Menn verða að gæta þess að við minnkandi verðbólgu á ríkissjóður í verulegum aðlögunarvanda. Útgjöldin haldast að mestu en tekjurnar falla. Ég tel raunhæft að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á næstu tveimur árum.

Þriðji áfanginn í efnahagsstefnu ríkisstj. á að einkennast af sókn — sókn upp úr þeim öldudal sem þjóðin er nú í. Það ber að gera með nýsköpun atvinnulífsins og nýju framtaki einstaklinga og fyrirtækja. Aðeins með meiri framleiðni og auknum hagvexti er unnt að bæta lífskjörin svo að raunverulegt sé.

Við framsóknarmenn leggjum mikla áherslu á að undirbúningur þessa áfanga hefjist án tafar. Við teljum bæði nauðsynlegt að aðlaga okkar gömlu atvinnuvegi breyttum aðstæðum og leggja grundvöll að nýrri framleiðslu.

Þótt enn megi eflaust auka verðmætasköpun í sjávarútvegi mun hann ekki í framtíðinni verða sá grundvöllur hagvaxtar sem verið hefur á undanförnum árum. Miðin eru að mestu fullnýtt. Hins vegar má bæta meðferð aflans og framleiðstuna með ýmsu móti og nauðsynlegt er að fiskiskipaflotinn, viðhald hans og endurbygging sé í samræmi við aflavon á næstu árum. Stjórnunaraðferðir verða að vera markvissar og í sem nánustum tengslum við sjávarútveginn sjálfan.

Óhjákvæmilegt er að breyta landbúnaðarframleiðslunni. Hefðbundnar landbúnaðarafurðir verða því miður ekki lengur seldar erlendis svo arðbært sé. Því veldur fyrst og fremst mikil vernd og aðstoð erlendra ríkja við sinn eigin landbúnað. Ég hef sett fram þá skoðun að í samvinnu við bændur eigi á ákveðnu tímabili, t. d. næstu fimm árum, að draga úr mjólkur- og kjötframleiðslunni þannig að hún sé sem næst okkar eigin þörfum. Þetta er viðkvæmt og margslungið mál. Slíkur samdráttur mundi valda byggðaröskun ef ekki er skipulega að málum staðið.

Á þessum sama tíma er því nauðsynlegt að efla aðrar arðbærar búgreinar. Loðdýraræktin á vafalaust góða framtíð hér á landi, ef vel er að þeim málum staðið. Hana ber því t. d. skipulega að auka á sama tíma og dregið er úr hinni hefðbundnu framleiðslu. Lax- og silungseldi, ekki síst í tengslum við jarðvarma, er einnig mjög álitlegt.

Málefni landbúnaðarins er að sjálfsögðu langtum flóknara en svo að þeim verði gerð skil í örfáum orðum. Landbrh. mun ræða þau nánar hér á eftir. Mikilvægast er að þetta starf er hafið á hans vegum í nánu samstarfi við fulltrúa bænda. Ég er sannfærður um að landbúnaðurinn verður eftir slíka aðlögun öflugri og heilbrigðari en hann er nú.

Að öllum líkindum er mesti vaxtarbroddurinn í ýmsum háþróuðum iðnaði. Lífefnaiðnaður er talinn sérstaklega álitlegur og á erindi um allt land þar sem fiskvinnsla og sláturhús eru. Rafeindaiðnaðurinn er sú grein sem einna mest hefur vaxið í nágrannalöndum okkar. Þar hefur mjög markvisst verið unnið af opinberri hálfu að því að efla slíkan iðnað. Ýmsir hugvitssamir ungir menn hafa hér á landi haslað sér völl á því sviði. Þó erum við Íslendingar enn langt á eftir nágrönnum okkar í slíkri framleiðslu að magni og verðmætum.

Sókn til bættra lífskjara á að vera í höndum einstaklinga og félaga, en við framsóknarmenn leggjum á það áherslu að ríkisvaldið skapi nauðsynlegan grundvöll. Það hefur að hluta verið gert með hjöðnun verðbólgunnar en meira þarf ef duga skal. Sérstaklega er fjármagnsskortur mikil hindrun í vegi. Úr því verður að bæta. Jafnframt er nauðsynlegt að auka rannsóknir og tilraunir á þessum sviðum.

Ýmsar mikilvægar kerfisbreytingar þarf einnig að gera. Það er hins vegar misskilningur að slíkt hefði leyst þann bráða vanda sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir. Ekki er heldur rétt að kasta því sem gott er aðeins breytinganna vegna. Ég vísa því algjörlega á bug að Framsfl. standi gegn slíkum breytingum. Ég hef á vegum ríkisstj. látið vinna athyglisverðar tillögur um breytingar á stjórnarskipunarlögum. Því verki verður haldið áfram í sumar í samvinnu við stjórnarandstöðuna. Ég vona að þær breytingar megi leggja fyrir Alþingi næstkomandi haust. Sömuleiðis liggja fyrir tillögur um breytingar á sjóðakerfinu. Sú nefnd skilaði tveimur álitum. Með hvorugt er ég ánægður. Þeirri vinnu verður áfram haldið í sumar. Þannig er nauðsynlegt að endurskoða og hagræða jafnt og þétt í ríkiskerfinu.

Það frjálsræði í verslun, sem nú er aukið dag frá degi, byggist á lögum um verðtagsmál, sem sett voru að frumkvæði framsóknarmanna. Með meiri samkeppni og auknu bolmagni verslunarinnar er sjálfsagt að auka frelsið.

Að vanda heldur stjórnarandstaðan því fram að deilur séu miklar í ríkisstj. Vonbrigði Svavars Gestssonar komu greinilega fram í máli hans hér áðan. Framsfl. og Sjálfstfl. eru um margt ólíkir og hafa lengi verið andstæðingar í íslenskum stjórnmálum.

Framsfl. er frjálslyndur umbótaflokkur. Við framsóknarmenn leggjum áherslu á velferð, öryggi og jafnræði öllum til handa, frelsi einstaklingsins til athafna og hagsmuni fjöldans á grundvelli samvinnu og félagshyggju.

Þó flokkarnir hafi mismunandi skoðanir á ýmsum þjóðmálum er stjórnarsamstarfið gott. sjónarmið samstarfsflokksins er viðurkennt og ágreiningsmálin leyst. Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hafa tekið höndum saman um endurreisn hins íslenska efnahagslífs. Því verki ætlum við að ljúka.