15.05.1984
Sameinað þing: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5929 í B-deild Alþingistíðinda. (5266)

Almennar stjórnmálaumræður

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Það er í meira lagi ömurlegt að hlýða á samstillt svartsýnishjal og bölmóðssöng stjórnarandstöðunnar. Engin úrræði er þar að finna, eingöngu innantóm slagorð. Svavar Gestsson reyndi enn einu sinni að gera sig til í augum verkalýðshreyfingarinnar. Er hann þó nýkominn sár og ákaflega móður frá því að reyna að etja einstaka verkalýðsfélögum í ófærur, en hafði ekki erindi sem erfiði að spilla sáttum á vinnumarkaðinum í vetur er leið. Hann vinnur nú hörðum höndum að því að fella Ásmund Stefánsson frá forustu í Alþýðusambandi Íslands. Ekki dugar að treysta einstaka foringja, var kveðja hans til Ásmundar hér áðan. Ef forustu Svavars og hans nóta nýtur lengi við í Alþb. þykir mér ekki trúlegt að við þann flokk verði rætt um stjórn landsins á þessari öld a. m. k.

Það er sjaldgæft að svo beri til í íslenskri stjórnmálabaráttu að allir stjórnmálaflokkar eigi eitt sameiginlegt stefnumið sem þeir setji ofar öðrum. Um þetta er þó glöggt dæmi frá því í kosningabaráttunni 1983. Allir flokkar og flokksbrot gerðu baráttuna gegn verðbólgunni að sínu máli, voru samhuga um að sú barátta gengi fyrir öllu öðru og yrðum við undir í henni væru önnur framfaramál vafalaust unnin fyrir gýg. Stefnan var hin sama þótt áherslumunur væri. T. d. hefur það löngum verið kenning Alþb.-manna að verðbólgan væri vélabrögð auðmanna í arðránsskyni, fundin upp til að gera hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari. Að því leyti er þessi málþófskenning rétt að enga leikur verðbólgan sárar en hina efnaminni. Og nú þegar ríkisstj. hefur unnið bug á verðbólgunni með undraskjótum hætti skyldu menn ætla að því yrði fagnað af öllum, hvar í flokki sem þeir standa, að því sem meginstefnumiði allra stjórnmálaflokka hefur verið náð eins og því var einróma lýst í síðustu alþingiskosningum. En því er ekki að heilsa, öðru nær. Nú virðist stjórnarandstaðan hafa misst glæpinn sinn. Svo gersamlega heillum horfnir eru þeir að nú á það að ganga glæpi næst, sem fyrir örskömmu var mest áríðandi, að kveða niður verðbólgudrauginn sem hafði riðið efnahag þjóðarinnar á slig.

Í mínum augum var það kvíðvænlegast þegar ríkisstj. ýtti úr vör með efnahagsaðgerðir sínar á vordögum 1983 að harkaleiki þeirra kynni að orsaka atvinnuleysi. Slíkt er reynslan úr verðbólgubaráttu annarra þjóða. Það hefur lengi verið skoðun mín að hér um bil allt megi þola frekar en atvinnuleysi. En svo gæfusamlega hefur til tekist að full atvinna hefur haldist að kalla og á þessum vordögum eru ýmis merki um að atvinna fari vaxandi, öfugt við það sem Kristín Halldórsdóttir hélt fram í ræðu sinni áðan af ókunnugleik sínum. Fyrir það er þakkandi og leggi nú alþjóð við hlustir þegar stjórnarandstaða færir fram þakkargjörð sína fyrir þennan mikilsverða ávinning.

Eitt er víst og það skulu menn hafa hugfast að hefði ekki verið stemmt stigu við óðaverðbólgunni er engum vafa undirorpið að allsherjaratvinnuleysi hefði brostið á. Atvinnuvegirnir hefðu ekki staðist stundinni lengur verðbólgubrotsjóina sem geisuðu um þetta leyti í fyrra.

Á því leikur enginn vafi að í þeirri framfarasókn sem nú er hafin hafa umskiptin orðið mest hjá iðnaðinum. Gildir það um öll svið íslensks iðnaðar og ekki síst útflutningsiðnaðinn. Festa í gengismálum og minnkandi fjármagnskostnaður hafa gefið byr í seglin og um að gera að nú verði hvergi slakað á klónni, síst að horfið verði til fyrri búskaparhátta í fjármálum, og gildir það raunar um öll okkar mál.

Það verður ekki ofsögum sagt af þeirri sjálfheldu sem öll orku- og stóriðjumál voru komin í á fyrra ári. Úr þeirri sjálfheldu hefur nú verið brotist, bráðabirgðasamkomulag gert um ÍSAL í Straumsvík og orkuverð til álversins hækkað um nær 50%. Samningum um heildarlausn þeirra mála miðar vel og má vænta að niðurstaðan verði 50% stækkun álversins sem myndi nýta nær alla framleiðslugetu Blönduvirkjunar við viðunandi verði.

Kísilmálmverksmiðja er mjög á dagskrá og vekja nýjar umræður við erlenda aðila vonir manna um framgang málsins. Af þeim ástæðum einnig er líklegt að fyrsti áfangi Fljótsdalsvirkjunar verði boðinn út 1986.

Fleiri góða virkjunarkosti eigum við nú fullkannaða, en Blönduvirkjun mun komast í gagnið 1988.

Áhugi er hjá öflugustu stóriðjuhöldum heims á álveri við Eyjafjörð og munu undirbúningsviðræður hafnar innan tíðar. Mikil áhersla verður lögð á að ljúka undirbúningsrannsóknum þar nyrðra í sumar. Vegna hins óvænta áhuga erlendis er ekki úr vegi að leiða hugann að áliðjuveri við Þorlákshöfn. Á það vil ég þó leggja áherslu að hugmynd mín er ekki að girða landið með köldum málmgrýtisverksmiðjum. Ég hygg að vel fram yfir aldamót verði við þær hugmyndir látið sitja sem nú nefndi ég. Þá er þess að geta að gjörbreyting hefur orðið á högum járnblendiverksmiðjunnar í Hvalfirði. Vinnur hún nú loks í fyrsta skipti á fullum afköstum og skilar ágóða.

Okkar bíða girnileg verkefni á ótal sviðum iðnaðar. Vil ég þar til sérstaklega nefna lífefnaiðnað, þar sem við eigum glæsilegra kosta völ, einnig vegna orkugjafa í iðrum jarðar. Ég mun leggja mjög mikla áherslu á stórauknar rannsóknir á háhitasvæðum landsins og fyrst og mest á rannsókn háhitans á Reykjanesi. Stórkostlegur þáttur í nýtingu jarðhitans er fiskeldi og fóðurframleiðsla. En ég trúi að þeir tímar séu skammt undan að við hefjumst byltingarkenndra handa á þeim sviðum.

Mikil og stóraukin áhersla er nú lögð á vöruþróun og markaðsleit iðnaðarins. Fyrir Alþingi liggur frv. til breytinga á lögum um Iðnlánasjóð sem þrefaldar fjármagn til þeirra þarfa. Auk þess fylgir það fram stefnu ríkisstj. að einfalda sjóðakerfið þar sem Iðnrekstrarsjóður er lagður af.

Iðnrn. hefur að undanförnu verið sem mest að vinna við athugun á rekstri fyrirtækja í umsjá og eigu hins opinbera, að stjórn þeirra mætti fara sem best úr hendi. Þar sem þess er kostur verður einkaframtakinu gefið færi á að kaupa og reka fyrirtæki hins opinbera. Siglósíld hefur þegar verið seld, sala hlutabréfa ríkisins í Iðnaðarbanka Íslands er til lokameðferðar í Alþingi og starfsfólk Landssmiðjunnar undirbýr kaup á henni og fleira er enn til athugunar svo sem Jarðboranir ríkisins.

Að valddreifingu í orkumálum er stefnt eindregið. Stofnun Orkuveitu Suðurnesja er á lokastigi og áhugi víða um land að sveitarfélög taki höndum saman um dreifingu og sölu orkunnar til hins almenna neytanda.

Það er í mörg horn að líta og engri stjórn ætlandi á einu ári að ná landi með öll mál sem úrlausnar biðu því allir þekkja aðkomuna. En árangurinn er ótrúlegur og ekkert verður eftir gefið og málum þokað áfram til betri vegar. Fyrir því er það að núverandi ríkisstj. mun í engu hvika frá settum markmiðum, sama hvað í skerst. Og það get ég fullvissað stjórnarandstöðuna um, að vonir hennar um að stjórnarsamstarfið sé að bresta eru þeirra vegna því miður sjálfsblekking. Stjórnarflokkarnir hlaupast ekki frá þeim skyldum sem þeir hafa á herðar tekist. Því getur þjóðin treyst. Mismunandi skoðanir þeirra í millum um einstaka málefni breyta þar engu um, þar sem meginstefnan er skýrt mörkuð og markmiðin glögg, atvinnuöryggi, eyðing verðbólgu, jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd og barátta fyrir bættum lífskjörum hinna verr settu. Það er ástæðulaust fyrir Íslendinga að örvænta um sinn hag. Á örskömmum tíma hafa þeir brotist úr örbirgð til bjargálna.

Á fjörutíu ára afmæli lýðveldisins geta þeir litið yfir farinn veg og glaðst yfir góðum frama þótt gefið hafi á bátinn um hríð. Við eigum allra kosta völ að búa um okkur eins og best gerist á jarðarkringlunni. — Góða nótt.