09.11.1983
Efri deild: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (527)

10. mál, verðlagsmál

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Nú fer að færast fjör í leikinn. Það var nú við því að búast að hv. 5. landsk. þm. mundi grípa tækifærið og reyna að snúa út úr. Hann hefur skipt um hlutverk, eins og fleiri, núna. Hann hefur aðra félaga með sér í stjórnarandstöðu. Hann notar að sjálfsögðu tækifærið þegar það gefst og reynir sérstaklega að gera tortryggilegt það samstarf sem fáeinir þm. úr þingflokki Sjálfstfl. áttu í síðustu ríkisstj. við Framsfl. og Alþb. Við erum ekkert óvön þessu. Þetta gerðist oft á s.l. kjörtímabili, að þm. Alþfl. stunduðu þá iðju að núa því um nasir Sjálfstfl. að hann væri ábyrgur fyrir ríkisstj. Þessi hv. þm. veit vel að Sjálfstfl. var í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili þrátt fyrir að fáeinir þm. Sjálfstfl. væru aðilar að þeirri ríkisstj. Við þurfum ekki að ræða þetta hér, þetta veit þjóðin öll.

En ég var ekki að veitast persónulega að núv. hæstv. forsrh. og það veit hv. 5. landsk. þm. einnig mætavel. Ég var að tala um fyrrv. hæstv. ríkisstj. og hennar stefnu sem slíka. Hún var með þeim hætti sem ég var að lýsa. Það sem núv. hæstv. forsrh. gerði í síðustu hæstv. ríkisstj. var ekki til umræðu. Það vissu líka allir, og ekki síst hv. 5. landsk. þm., hverjir réðu ferðinni í þeirri hæstv. ríkisstj. Það var Alþb.

Ég kom fyrst og fremst í ræðustól vegna ummæla hv. 2. þm. Austurl., sem mér þótti vera fljótur að gleyma. Eins og hv. 8. þm. Reykv. minntist hér á er mikið gert af því að rifja upp söguna. En það er kannske eðlilegt. Það þarf ekki langt að fara aftur í tímann, örfáa mánuði. Það er svo skammt liðið á líf þessarar ríkisstj. að auðvelt er að muna það sem gerðist hér á s.l. vori. Það var einmitt það sem ég var að rifja upp því að mér þótti hv. 2. þm. Austurl. vera nokkuð fljótur að gleyma.

En það sem hefur gerst nú er að það eru tveir flokkar í þessari ríkisstj. og þeir hafa sett fram aðra stefnu. Stefnan er fyrst og fremst sú, að ráðast að verðbólgunni og hæstv. ríkisstj. þarf ekki fjögur ár til að sanna að hún valdi verkefninu. Hún er ekki búin að sitja nema í fáeina mánuði þegar jákvæður árangur af stefnu hennar er strax farinn að koma í ljós. Það var þetta sem ég var að benda á og ekki síst á að afleiðingarnar af því sem gerðist á s.l. kjörtímabili voru í fægiskúffunni, undir mottunni og í hornunum.