15.05.1984
Sameinað þing: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5942 í B-deild Alþingistíðinda. (5271)
Almennar stjórnmálaumræður
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Góðir Íslendingar. Tvennt í störfum þingsins vil ég fyrst drepa á. Eins og kunnugt er hafa óðagot og næturfundir einkennt störf þingsins að undanförnu vegna þess að ríkisstj. vill nú senda þingið heim og veita þm. frí frá þingstörfum í nærfellt fimm mánuði. Þetta óðagot kann að þýða óvönduð vinnubrögð. Þetta er að mínum dómi ótækt og fyrir hönd Alþfl. ítreka ég það álit okkar að þingið eigi að taka sér þann tíma sem þarf til að ljúka málum.
Önnur óhæfa í þingstörfunum er neitun tveggja nefndarformanna úr hópi framsóknarmanna og sjálfstæðismanna á því að afgreiða úr n. sínum og til þingsins mál sem lengi hafa verið á döfinni, nefnilega kartöflumálið og bjórmálið. Þessi mál þeirra Eiðs Guðnasonar og fleiri annars vegar og Magnúsar H. Magnússonar og fleiri hins vegar eru hálfs árs gömul. Þeir nefndarformenn sem hér eiga hlut að máli, framsóknarmaðurinn Ólafur Þ. Þórðarson og sjálfstæðismaðurinn Egill Jónsson, eru með þessu atferli sínu að traðka á lýðræðinu og taka sér einræðisvald. Í þessu sambandi skiptir vitaskuld engu máli hvort menn eru með eða á móti bjórnum eða með eða á móti frjálsræði í kartöfluinnflutningi. Það sem skiptir máli er að þingið er kjörið til þess að setja lög og til þess að móta afstöðu til mála. Þeir, sem setja sig gegn því með bolabrögðum að þingið gegni þessari frumskyldu sinni, eru að brjóta niður lýðræðið og traðka á réttindum og skyldum þingsins. Svona lagað á ekki að viðgangast. Ég skora á þingflokka Framsfl. og Sjálfstfl. að stöðva þetta óhæfuverk félaga sinna og tryggja að þingið fái að vinna verk sín.
Félmrh. talaði hér áðan um að viðhalda verði því jafnvægi sem náðst hefur. Þetta var háðulegur málflutningur því að jafnvægi hefur ekki náðst. Það er halli en ekki jafnvægi í viðskiptum við útlönd. Það er halli en ekki jafnvægi í ríkisbúskapnum eins og félmrh. ætti að vita. Það er alls staðar halli en ekki jafnvægi. Það er furðulegt en vissulega frumlegt hjá félmrh. að biðja um að því sé viðhaldið sem ekki er.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstfl., talaði mikið áðan um nauðsyn samstöðu. Það var kannske ekki nema von því að misklíð stjórnarflokkanna magnast nú dag frá degi eins og þjóðin öll sér. Mál stranda og kaupskapur gengur á víxl á bak við tjöldin. Ég nefni mangósopamálið og húsnæðismálin. Eftir margra vikna stríð voru húsnæðismál seld fyrir mangósopa, en þó með þeim endemum að fjmrh. fékk ekki eyri í kassann heldur sprakk á þessu máli eins og öllum öðrum yfirlýsingum sínum. Þar birtist enn ein uppgjöfin og niðurlæging Sjálfstfl. Var formaður Sjálfstfl. kannske að hugsa um þetta þegar hann taldi upp nýjan óskalista hér áðan eða var hann að hugsa um það þegar Sjálfstfl. afhenti, án þess að vilja það að því er hann sagði, sjútvrh. alræðisvald til þess að loka fiskvinnslustöðvum að geðþótta. Eða var hann að hugsa um það hvernig Sjálfstfl. gafst upp við að láta vinnslustöðvar í landbúnaði greiða skatt eins og aðra? Eða hvernig ekkert gerist í uppstokkun sjóðakerfisins? Eða hvernig fór í nefndinni sem átti að gera till. um að leggja niður Framkvæmdastofnun þar sem Framsfl. beitti meiri hluta sínum til að stöðva málið og Sjálfstfl. varð undir?
Niðurlæging Sjálfstfl. er vissulega hrópleg. Það er ekki nema von að varaformaður flokksins tali nú um flokkinn sinn sem buxnalausa flokkinn. Sannleikurinn er sá að þessi ríkisstj. hefur ekki og mun ekki ná saman um neinar þær kerfisbreytingar sem máli skipta. Það er alveg sama þótt formaður Sjálfstfl. búi til nýjan óskalista eins og hann gerði áðan. Hans eigin flokkur mun áreiðanlega guggna á þeim óskum sínum eins og áður.
Steingrímur Hermannsson forsrh. hrósaði sér áðan af árangri í verðbólgumálum og benti réttilega á að verðbólgan hafði verið komin á hættulegt stig fyrir ári. En ég bara spyr: Hver kom henni á þetta hættulega stig? Steingrímur ætti að hyggja að því. Það var hin sameiginlega ríkisstj. þeirra Steingríms Hermannsson og Svavars Gestssonar sem kom verðbólgunni á þetta hættulega stig. Steingrímur og flokkur hans bera því sinn hluta ábyrgðarinnar á þeirri ægilegu verðbólgu sem hér var yfirvofandi.
Nú hefur tekist að ná verðbólgunni niður og það er vel. En Steingrímur mætti hyggja að því á milli þess að hann hrósar sér af árangrinum að aðferðin sem valin var hefur kostað gífurlegar fórnir hjá launafólki. Við Alþýðuflokksmenn sögðum strax að jafnframt yrði ríkisstj. að taka til hendinni hjá sér. Hún yrði að sýna gott fordæmi. Hún yrði að tryggja varanlegan árangur með fjölþættum aðgerðum og kerfisbreytingum því eftir þessa miklu fórn launafólks mætti verðbólgan ekki fara upp aftur. Við vöruðum við því að ofbjóða þolinmæði fólks með frekari kjaraskerðingum og skattaálögum. Í öllu þessu hefur ríkisstj. brugðist, því miður. Það ætti Steingrímur að hafa í huga. Meðan þrengir að í lífskjörum hefur ríkisstj. gefist upp við að taka til hendinni hjá sér. Fólkið á að spara en ríkisstj. tekur lán í útlöndum handa sér. Þetta er hjá ríkisstj. eins og í „Litlu gulu hænunni“. Þeir segja allir: „Ekki ég, ekki ég.
Fjmrh. hrósaði sér af nýjustu ráðstöfunum ríkisstj. hér áðan. Þó vita allir að með þeim ráðstöfunum innsiglaði ríkisstj. uppgjöf sína í efnahagsmálum. Sjálfshól fjmrh. verður grátbroslegt því að allir vita að glíman við fjárlagagatið margfræga endaði með því að gatið felldi fjmrh. Ríkisstj. stóðst ekki prófið heldur gafst upp. Þær eru óteljandi yfirlýsingar ríkisstj. og sérstaklega fjmrh. um að nú skyldi breytt til og því hætt að velta vandanum á undan sér eins og fyrri ríkisstj. gerði. En niðurstaðan varð einmitt þessi, að taka erlend lán og velta vandanum yfir á framtíðina. Þessi ríkisstj. er því orðin nákvæmlega eins og fyrri ríkisstj. Viðbótin í erlendum lántökum umfram það sem við greiðum í afborganir af erlendum lánum mun fara upp í 4 þús. milljónir kr. á þessu ári. Þetta er viðbót upp á 85 þús. krónur fyrir hverja fimm manna fjölskyldu í landinu. Það er kannske ekki nema von að fjmrh. hrósi sér sjálfur. Aðrir verða varla til þess.
Ég vil nú, herra forseti, drepa á nokkur atriði í stefnumörkun Alþfl. og hvaða breytingar við teljum nauðsynlegar. Við skulum hafa það í huga að hagkerfið í landinu er hriplegt og skattkerfið er hriplegt. Við því verður að bregðast. Tekjuskatturinn, sem átti að færa jöfnuð, eykur nú á misrétti. Um það höfum við ótal dæmi fyrir augunum. Þetta er fyrst og fremst skattur launafólks. Þess vegna eigum við að afnema tekjuskattinn af launum og taka upp virðisaukaskatt í stað söluskatts. Eftirlit með skattsvikum á að herða með sérstökum skattadómstóli eins og við Alþýðuflokksmenn höfum fengið samþykkta till. um. Við eigum að tryggja hag hinna verst settu með sérstakri afkomutryggingu og taka upp einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. Þetta eru stórmál. Það á að koma á viðskiptalegu aðhaldi á vinnslustöðvar landbúnaðarins svo að þær skili neytendum lægra vöruverði og tryggi bændum eðlilegt afurðaverð með góðum skilum, en freistist ekki til að setja fjármuni í óþarfa fjárfestingu og senda svo bændum og neytendum reikninginn á eftir. Og það á að afnema einokun sem skilar skemmdum kartöflum. Fjárfestingarlánakerfið viljum við stokka upp þannig að nýjungar fái að njóta sín. Nú er enginn vandi að fá lán í hlöðubyggingu en sérhver nýjung liggur utan garðs. Þótt stóriðja hafi vissulega hlutverki að gegna í þróun efnahagslífsins er þó ekki síður brýnt að leggja rækt við smáfyrirtækin. Í þeim felst mikilvægur vaxtarbroddur. Þess vegna er líka röng sú stefna ríkisstj. að hygla stórfyrirtækjum í sköttum og fjáröflunaraðstöðu á kostnað smáfyrirtækja. Hugvit, áræðni og trú fáeinna manna á fyrirtæki sitt er aflvaki sem ekki má kæfa heldur einmitt á að rækta. Hér þarf því ný viðhorf. Við verðum að verja fjármunum okkar af viti. Þeir eru takmarkaðir. Fornar dyggðir í meðferð fjár ættu enn að vera í fullu gildi en við verðum líka að veita fjárstreyminu í nýja farvegi þannig að þeir nýtist vel.
Á grundvelli jafnaðarstefnunnar viljum við Alþýðuflokksmenn skapa öllum örugga lífsafkomu. Við teljum að hinir betur stöddu eigi að styðja þá sem verr eru settir. Við viljum að allir fái að njóta sín og við mótmælum harðlega þeim árásum sem núverandi ríkisstj. gerir á félagslegan þátt samfélagsins á almannatryggingakerfið og á hag þeirra sem verst eru settir. Þjóðfélag okkar er fullt af misrétti og ójöfnuði sem verður að bæta úr. En til þess að ná góðum árangri þarf atvinnulífið að vera traust og gróandi og menn verða að hafa framtíðarsýn í stað þess að hjakka í gamla farinu. Með framtíðarsýn og jafnaðarstefnu að leiðarljósi getum við búið okkur góð lífskjör, jöfnuð, jafnrétti og trausta framtíð á Íslandi. Það er markmið okkar Alþýðuflokksmanna. — Góðar stundir.