15.05.1984
Sameinað þing: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5945 í B-deild Alþingistíðinda. (5272)

Almennar stjórnmálaumræður

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Nú er liðið fyrsta starfsár ríkisstj. Sjálfstfl. og Framsfl. Þá er rétt og skynsamlegt að meta hver sé lærdómur vetrarins. Í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar var skýrt kveðið á um að gera þyrfti grundvallarbreytingar á efnahagskerfi landsins. Stjórnin sagði: Við þurfum fyrst að stöðva verðbólguna og síðan komumst við fyrir rætur vandans. — Þetta hefur síðan verið endurtekið nokkrum sinnum í vetur.

Við fjárlagaafgreiðslu fyrir jól var sagt: Þetta er nauðsynlegur undirbúningur að hinum raunverulegu kerfisbreytingum sem reisa munu íslenskt efnahagslíf úr öskustónni, en að þeim er unnið. — Aftur var þetta sagt við afgreiðslu lánsfjárlaga. Þá var sagt: Við verðum að reisa hér nýtt og heilbrigt efnahagslíf sem getur aukið framleiðni og þar með kjörin. — Landsmönnum hefur sem sagt verið talin trú um að verið sé að vinna að endurreisn efnahagslífsins. En hvað gerist?

Nú kemur ríkisstj. undan vetrinum og hún er illa útleikin. Það hefur ekkert verið gert til endurreisnar og nýsköpunar í atvinnulífi. Þá spyrjum við: Er það vegna þess að ríkisstj. hafi ekki haft nægan meiri hl. á þingi? Nei. Er það vegna þess að íslensk alþýða hafi ekki viljað færa fórnir? Nei. Hvers vegna hefur ríkisstj. þá ekkert gert til þess að höggva að rótum meinsemdarinnar? Vegna þess að rætur meinsemdarinnar eru um leið það sem flokkar hennar nærast á. Þm. Sjálfstfl. allir nema tveir greiddu atkvæði gegn og felldu þáltill. um sölu ríkisbanka sem flokkurinn hefur þó á stefnuskrá sinni. Þeir sjá fram á að ríkisbankalausir gætu þeir átt í erfiðleikum með að finna störf handa þreyttum þm. sem vilja losna úr valdapotinu á þingi. Ríkisbankalausir gætu þeir líka lent í vandræðum með að gauka góðmetinu að þeim sem í staðinn kaupa happdrættismiða flokksins í hundraða upplagi. Ríkisbankarnir eru með öðrum orðum helsta næring íslenska flokkakerfisins. Þetta er ein rótin að efnahags- og óáran okkar, flokkspólitískt pot í bönkum sem þó eiga að vera í eigu fólksins. Þessa rót vilja þeir ekki slíta því að með henni nærast þeir.

Hvenær rumskaði Framsfl. í vetur? Því er nú raunar vandsvarað en líklega var það helst í mangó. Og hvers vegna rumskaði Framsókn í mangó? Jú, vegna þess að þeir standa dygga varðstöðu fyrir SÍS og allt vinnslustöðvakerfi landbúnaðarins, vinnslustöðvakerfi sem getur byggt hallir fyrir hundruð millj. án þess að taka krónu að láni. Allt verðlagningarkerfi landbúnaðarins er með slíkum endemum að nú, þegar átti að rannsaka verðmyndun á mangósopanum góða, reyndist nauðsynlegt að setja málið í nefnd til haustsins. Það er sem sé margra mánaða verk að rannsaka verðmyndun á mangósopa. Hugsið ykkur hve mikinn tíma það tæki að endurskoða allt kerfið í heild, kjötið og kartöflurnar og allt sem með þeim er? Þetta er ein af rótum efnahagsmeinsemdarinnar. Framsóknarmenn í báðum stjórnarflokkum standa um þetta dygga varðstöðu og þetta er önnur rótin sem þeir vilja ekki slíta.

En hver er þá afrekaskrá ráðh. og ríkisstj.? Eigum við að athuga einstaka ráðh.? Það ætti kannske að taka félmrh. fyrst? Hann er sprunginn á húsnæðismálum, síðast sprakk hann á Búseta í gærkvöldi. Iðnrh. gengur heldur seint með álsamninginn. Þar átti nú aldeilis að ýta úr vör og taka stórmannlega á árinni en nú segir hann að Svisslendingar séu ótrúlega þungir fyrir. Menntmrh. gengur ekki betur með útvarpslögin, þau komast ekki úr nefnd. Ekki gengur hjá bankamálaráðh. með endurskoðun bankakerfisins, því verður frestað til haustsins. Svona springa þeir hver af öðrum á limminu eins og 10 litlir negrastrákar í vísunni forðum.

En nú segir kannske einhver: Þetta er nú dæmigert þras í stjórnarandstöðuþm. En ég vil kalla tvo menn mér til vitnis. Sá fyrri er seðlabankastjóri dr. Jóhannes Nordal og hann er ekki beinlínis þekktur sem fulltrúi stjórnarandstöðunnar. Hann sagði á ársfundi bankans, með leyfi forseta:

„Fyrst virðist mér nauðsynlegt að gera grein fyrir tvennu. Hið fyrra er að sá árangur, sem náðst hefur, er að miklu leyti byggður á aðgerðum í launamálum og afnámi vísitölubindingar launa.“ Síðan segir dr. Jóhannes Nordal: „Í annan stað er ljóst að þrátt fyrir þær róttæku aðgerðir, sem framkvæmdar hafa verið, standa enn eftir óleyst ýmis rótgróin vandamál íslensks þjóðarbúskapar.“

Seðlabankastjóri telur að enn séu óleyst rótgrónu vandamálin. Næst kalla ég til vitnis hv. þm. og varaformann Sjálfstfl., Friðrik Sophusson. Kvöld nokkurt fyrir stuttu flutti hann Seltjarnarnesyfirlýsinguna svokölluðu sem var þess eðlis að um stund hélt ég að hann hefði tekið ófrjálsri hendi og flutt ræðu sem ég ætlaði sjálfur að flytja um efnahagsmál kvöldið eftir í þinginu. En svo kom í ljós að hann hafði mælt af hjartans sannfæringu sínar eigin niðurstöður, niðurstöður séðar af stalli þess sem er ekki fordjarfaður af ráðherradómi í Sjálfstfl. Þannig erum við þrír, seðlabankastjóri, varaformaður Sjálfstfl. og ég, sammála um afrekaskrá ríkisstj. í vetur.

Herra forseti. Þegar gengið var á fund ríkisstj. í ársbyrjun og óskað styrks 100–200 þús. kr. til að styðja við nýtæknirannsóknir voru engir peningar til. Hringdu í mig í næstu viku, var sagt. En nú er stjórnin búin að uppgötva framtíðina og þá býður hún ekki 100 þús. eða 200 þús. Hún býður 150 millj. En gallinn er sá að hún veit ekki í hvað. Minna mátti nú gagn gera. Þm. spurði um daginn: Í hvað eiga þessar 150 millj. að fara? Veit það einhver?

Fulltrúi fjmrn. sagði: Ekki ég.

Hagsýslustjóri sagði: Ekki ég.

Forstjóri Þjóðhagsstofnunar sagði: Ekki ég.

Forstjóri Framkvæmdastofnunar sagði: Ekki ég.

Forsrh. sagði: Það veit ég.

Þetta á að fara í hátækniiðnað og svoleiðis eins og Pólinn á Ísafirði.

Meinið er það, herra forseti, að engar áætlanir eru til um hvernig ríkisstj. ætli að verja 150 millj. það sem eftir er ársins til nýtæknigreina. Keisarinn er ber eins og barnið sagði, keisarinn er ber. Undirstaða framfara í atvinnulífi næstu áratuga er hugvit og þekking.

Þegar Kennedy Bandaríkjaforseti setti þjóð sinni það takmark að senda mann til tunglsins mátti sjá áhrifin á öllum sviðum þjóðlífsins. Greinilegastar voru þó breytingarnar í skólakerfi landsins sem naut ríkulegri uppbyggingar en nokkru sinni fyrr í kjölfar þessarar stefnumörkunar forsetans. Á öllum sviðum raunvísinda voru rannsóknir og kennsla aukin stórkostlega. Nú eru afleiðingar þessarar stefnu öllum kunnar. Menn komust til tunglsins að vísu, en um leið þróuðust ótal fylgifiskar geimferðaáætlunarinnar, allt frá tefloni á pönnur til tölvanna sem nú eru að breyta heiminum. Bandaríkin fjárfestu í menntun fyrir 25 árum og hafa síðan uppskorið forustuhlutverk í stærstu atvinnulífsbyltingum aldarinnar, tölvubyltingunni, upplýsingabyltingunni og líftæknibyltingunni núna síðast.

Íslendingar þurfa nauðsynlega að efla kennslu og rannsóknastarfsemi til að geta bætt lífskjör sín. Þjóð, sem á í efnahagsörðugleikum og býr sig undir sókn til bættra lífskjara, á að styrkja skólakerfi sitt og bæta aðbúnað nemenda og kennara. Því ætti það að vera okkur öllum til umhugsunar og það ætti að vera okkur öllum áhyggjuefni að nú eru kennslustörf á öllum stigum skólakerfisins láglaunastörf, að nú er verið að draga saman í skólakerfinu. Það ætti líka að vera okkur áhyggjuefni að við verjum minnstum fjármunum allra vestrænna þjóða til rannsókna. Það er ekki fyrirsjáanlegt að við komumst til tunglsins. Menn skyldu spyrja sig hvort þannig sé tryggt að þjóðin njóti bestu hugsanlegu leiðsagnarinnar inn á 21. öldina, sem verður öld upplýsinga, menntunar og hugvits.

Herra forseti. Ríkisstj. finnst menntunin dýr. En þá getum við spurt: Er þorandi fyrir íslenska þjóð að leyfa ríkisstj. að sjá hvað fáfræðin kostar? — Góða nótt.