16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5950 í B-deild Alþingistíðinda. (5274)

83. mál, lögræðislög

Frsm. meiri hl. (Haraldur Ólafsson):

Virðulegi forseti. Þetta frv. var samið af nefnd er dómsmrn. skipaði 19. nóv. 1980 til þess að endurskoða lög nr. 95 frá 5. júní 1947 um lögræði. Frv. var fyrst lagt fyrir 105. löggjafarþing í desember 1982, en varð ekki útrætt. Í nefndinni áttu sæti Björn Þ. Guðmundsson prófessor, Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari og Guðrún Erlendsdóttir dósent sem skipuð var formaður nefndarinnar. Ritari nefndarinnar var Ólöf Pétursdóttir ráðuneytisfulltrúi.

Í athugasemdum við frv. kemur fram að nefndin hélt 29 fundi og hafði samráð við sérfróða aðila um læknisfræðileg viðhorf, m. a. Geðlæknafélag Íslands og nefnd sem vinnur að endurskoðun geðheilbrigðismála á vegum heilbrrn. Frv. hefur nú fengið mjög ítarlega meðferð í þinginu og var afgreitt óbreytt frá Ed. eins og það kom frá nefndinni.

Að frumkvæði allshn. hv. Nd. voru gerðar breytingar á frv. sem ollu því að málið kemur nú í annað sinn til kasta Nd. Það er III. kafli frv. sem mest var breytt í Nd. og mun ég nú gera grein fyrir þeim breytingum sem þar voru samþykktar.

Það var einkum við 9. gr. sem miklar breytingar voru gerðar. Þar var sett inn svohljóðandi mgr., með leyfi forseta:

„Trúnaðarnefnd dómsmrn., sbr. 17. gr., skal fjalla um alla úrskurði um sjálfræðis-, fjárræðis- eða lögræðissviptingu sem fallið hafa á grundvelli a-, c-, d-, og e-liða 3. gr. laga þessara. Skal sú umfjöllun fara fyrst fram sex mánuðum eftir uppkvaðningu úrskurðar og síðan á eins árs fresti eftir það. Sé það álit nefndarinnar að forsendur sviptingar séu úr gildi fallnar skal hún bera fram tilmæli til héraðsdómara um að svipting verði felld úr gildi, sbr. 1. mgr.

Þegar lögræðissvipting er felld úr gildi annast dómari um að afskráning og aflýsing lögræðissviptingar fari fram.“

Aðrar þær breytingar, sem gerðar voru í hv. Nd., voru við 1. mgr. 9. gr., annarri setningu, þar sem segir: „Slík tilmæli getur hinn lögræðissvipti einnig borið fram, en óskylt er að sinna þeim nema sex mánuðir hið skemmsta séu liðnir frá sviptingu.“ Í upphaflega frv. var miðað við eitt ár.

Aðrar þær breytingar, sem gerðar voru, eru í samræmi við þessa samþykktu tillögu um trúnaðarnefnd og koma fram í 17. og 18. gr. Þar eð þessar breytingar voru gerðar í Nd. varð frv. að koma aftur fyrir og meiri hl. allshn. Ed. skilaði áliti þar sem gerðar eru brtt. er lúta að því að þessi trúnaðarnefnd falli út en haldið ákvæði í upprunalega frv. um trúnaðarlækni. Einnig hefur meiri hl. n. lagt til að við 18. gr. aftan við 1. mgr. bætist setningin: „og skal trúnaðarlæknir rn. sjá um að sjúklingnum sé gerð grein fyrir þeim rétti.“ Auk þess leggur nefndin til að miðað verði við 6 mánuði'en ekki eitt ár í ákvæðinu um 9. gr. sem ég nefndi áðan.

Þar sem ákvæðin um trúnaðarnefnd í stað trúnaðarlæknis er það atriði sem veigamest er í þeim breytingum sem meiri hl. allshn. Ed. leggur til að gerðar séu á frv. eins og það kom frá hv. Nd., þá vil ég gera örstutta grein fyrir rökum þess máls.

Gerð var till. um að í stað trúnaðarlæknis komi slík trúnaðarnefnd á vegum rn. og á hún að kanna ástand og aðstæður sjúklings sem dvelst á sjúkrahúsi svo fljótt sem auðið er. Nefnd þessi skal skipuð af dómsmrn. skv. 17. gr. og eiga í henni sæti lögmaður sem er formaður hennar, geðlæknir og einn fulltrúi hins almenna borgara. Varamenn eru jafnmargir. Rétt er að staldra við þetta mál og athuga þessi atriði nánar.

Í 2. mgr. 17. gr. frv. segir að trúnaðarnefndin skuli kanna hagi og aðstæður sjúklings sem dvelst á sjúkrahúsi eða hliðstæðri stofnun gegn vilja sínum svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en viku frá innlagningu. Ætla verður að tilgangur brtt. sé sá að tryggja betur réttaröryggi þess manns sem.verið er að leggja inn gegn vilja sínum. En verður það gert með því að nefnd yfirfari gögn málsins og endurskoði ákvörðun rn. einhverjum dögum, allt að viku, eftir að viðkomandi var vistaður á sjúkrahús? Komist nefndin að annarri niðurstöðu en rn. gerði, þá er það orðið of seint og skaðinn er þá þegar skeður. Það sem tryggja þarf er fyrst og fremst að enginn sé lagður inn á sjúkrahús gegn vilja sínum án þess að tilefni hafi verið til og lagaskilyrðum hafi verið fullnægt. Endurskoðun eftir á þjónar ekki hagsmunum sjúklings. Réttaröryggi hans er betur borgið með því að tryggja að ákvörðun um innlögn verði ekki tekin nema að vel athuguðu máli.

Í reynd er það svo að aðstandendum sjúklings reynist oft örðugt að fá læknisvottorð um sjúklegt ástand sjúklingsins. Oft eru þeir læknar, sem best þekkja til geðheilsu sjúklingsins, sjúkrahúslæknar á geðsjúkrahúsum, en þeir mega stöðu sinnar vegna ekki gefa vottorð um geðheilsu hans. Oft kemur það fyrir að aðstandendur verða að þrábiðja aðra lækna, sem stundum þekkja lítið til sjúklingsins, að gefa vottorð um geðheilsu hans í þeim tilgangi að fá hann vistaðan á sjúkrahúsi. Til eru dæmi þess að læknar hafa gefið út vottorð skv. lýsingu aðstandenda, en hafa sjálfir ekki litið á sjúklinginn svo mánuðum skiptir.

Í tilvikum sem þessum er réttaröryggi manna betur borgið með því að læknir kanni ástand sjúklingsins áður en rn. samþykkir innlögn skv. 17. gr. frv. en ekki með því að einhver nefnd kanni málið e. t. v. mörgum dögum eftir að sjúklingurinn hefur verið lagður inn á geðsjúkrahús og komist þá e. t. v. að þeirri niðurstöðu að ekki hefði átt að leggja hann inn.

Eins og frv. var áður en því var breytt í meðferð Nd. var gert ráð fyrir því í 17. gr. frv. að á vegum dómsmrn. starfi trúnaðarlæknir sem rn. leiti til áður en ákvörðun er tekin um inniögn. Trúnaðarlækninum er ætlað það hlutverk að kanna ástand sjúklingsins þegar rn. hefur borist beiðni um samþykki um vistun. Liggja þá fyrir rn. tvö læknisvottorð um geðheilsu viðkomandi manns áður en ákvörðun um vistun er tekin. Með þessu móti fer fram endurskoðun á gögnum er liggja fyrir rn. áður en ákvörðun er tekin en ekki eftir á. Mikið öryggi er fólgið í því að áður en samþykki um innlögn er gefið sé rn. heimilt að leita til geðlæknis sem tafarlaust kanni ástand viðkomandi manns og gefi vottorð þar að lútandi. Væri reyndar eðlilegt að það væri gert í öllum tilvikum. Ákvæði um endurskoðun á ákvörðun rn. um vistun er þegar í frv. í 1. mgr. 18. gr., en þar segir að þeim, sem vistaðir hafi verið gegn vilja sínum skv. 14.–17. gr. frv., sé heimilt að leita úrlausnar dómstóla um ákvörðun rn. um vistunina.

Þá má að lokum benda á það að trúnaðarlæknir í stað fjölskipaðrar nefndar er ekki aðeins öruggara fyrirkomulag heldur líka einfaldara og ódýrara. Að sjálfsögðu verður að ætla að þessum málum sé ætlaður forgangur hjá dómstólum og dómara beri að taka málið tafarlaust til afgreiðslu.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir niðurstöðum allshn. deildarinnar. Ég vil einnig bæta því við að svo virðist sem hér hafi einnig komið upp nokkur skoðanamunur meðal geðlækna og annarra sem um þessi mál fjalla. Þegar frv. var til meðferðar fyrst í þinginu í des. s. l. kom mjög greinilega fram frá þeim geðlæknum sem leitað var til, yfirlæknum á geðdeildum í landinu og fleirum, að mjög óheppilegt væri að sérstök lög væru um geðsjúka og það væri að öllu leyti eðlilegra og heppilegra að slík mál væru í almennum lagabálkum lögræðislög. Nú hafa hins vegar komið upp þær hugmyndir hjá geðlæknum að huga beri að því hvort ekki skuli sett sérstök lög um geðsjúka. Ég held að það sé mál sem þarfnast mjög ítarlegrar meðferðar og ég held að það sé ákaflega óheppilegt. Mjög skiptar skoðanir eru um það mál að tekið sé til við slíka lagagerð. Eins og er tel ég því að þessum málum sé best borgið í almennum lögræðislögum og að þær brtt., sem allshn. leggur til, séu þess eðlis að sem best sé séð fyrir hag þeirra sem vistaðir eru gegn vilja sínum á sjúkrahúsi.