16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5952 í B-deild Alþingistíðinda. (5275)
83. mál, lögræðislög
Frsm. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Eins og fram kemur á þskj. nr. 923 leggur minni hl. allshn. til að frv. til lögræðislaga verði samþykkt með þeim breytingum sem á því voru gerðar í hv. Nd. Meginbreytingin, sem Nd. gerði á upphaflega frv., var sú að starfa skyldi á vegum dómsmrn. trúnaðarnefnd sem skipuð er lögmanni, geðlækni og einum fulltrúa hins almenna borgara og skuli þessi nefnd fjalla um alla úrskurði um sjálfræðis-, forræðis- eða lögræðissviptingu. Kemur þessi þriggja manna nefnd í stað trúnaðarlæknis, sem gert var ráð fyrir í upphaflega frv., og sem meiri hl. allshn. þessarar deildar leggur til að breytt verði aftur til fyrri vegar. Ég tel hins vegar að öllu heppilegra sé að þriggja manna nefnd fjalli um þau mál sem hér er um að ræða. Betur sjá augu en auga og tel ég raunar varhugavert að einum manni sé fatið það vald sem trúnaðarlækni er ætlað í brtt. minni hl. allshn. þessarar hv. deildar. Jafnframt er með skipan nefndarinnar tryggt að fleiri sjónarmið komi fram varðandi þessi mál þar sem auk læknis er lagt til að lögmaður og fulltrúi hins almenna borgara fjalli um málið. Þá röksemd að þriggja manna nefnd sé of þung í vöfum tel ég léttvæga miðað við gildi þess að tryggja sem best öryggi þeirra einstaklinga sem í hlut eiga. Mín skoðun er sú að það sé miklu betur tryggt í höndum þriggja þar til skipaðra manna en í höndum eins manns.
Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að efast um hæfni eða samviskusemi þess einstaklings sem fengi það hlutskipti að gegna stöðu trúnaðarlæknis. Ég efast aðeins um að rétt sé að leggja umfjöllun þessara alvarlegu mála á herðar eins manns. Þess vegna legg ég eindregið til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd.