16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5953 í B-deild Alþingistíðinda. (5276)
83. mál, lögræðislög
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég vil taka fyllilega undir orð hv. 11. þm. Reykv. því að í þeim felst mergurinn málsins eins o ég kom hér reyndar að við fyrri hluta þessarar umr. Ég veit mætavel að það er rétt sem hv. 9. þm. Reykv., frsm. meiri hl. allshn., kom hér inn á varðandi mismunandi mat geðlækna. Það er mismunandi frá einum tíma til annars hvað sé heppilegast og best sé í slíkum tilfellum. Það kemur engum á óvart. Við vitum að meðal sérfræðinganna eru mjög skiptar skoðanir á þessum málum í heild.
Við verðum því einnig að taka nokkuð varlega á því að taka algert tillit til þeirra sjónarmiða sem efst eru á baugi þar hverju sinni. En þeim mun meiri ástæða held ég að sé til þess að hlusta eftir röddum þeirra sem gerst þekkja hér til af eigin raun, ýmist sem þolendur eða sem skjólstæðingar. Ég held að þurft hefði miklu meiri og betri umfjöllun af þeirra hálfu um þetta mál í heild sinni en raun ber vitni um og veit ég þó að til þeirra hefur verið leitað.
Ég ætla ekki að fara að standa í neinum stælum um þetta mál nú. Það er ekki ástæða til þess því að það er alveg ljóst hvaða endalok þetta mál fær hér í deildinni. Ég tel þau vera til verri vegar. Ég sat ráðstefnu um þessi mál fyrir nokkrum árum varðandi sjálfræðissviptinguna og mér blöskraði blátt áfram að heyra þær lýsingar sem þar voru fluttar og ekki var mótmætt af þeim sem þar sátu í fyrirsvari bæði af hálfu dómsmrn. og geðlækna. Hafi þessar lýsingar verið rangar eða ýktar kom það a. m. k. ekki fram í máli þeirra sem voru þar til andsvara. Ég sagði við 1. umr. þessa máls að í þessu nýja frv. væri vissulega girt fyrir margt af því sem þar var helst til umr. varðandi sjálfræðissviptinguna. En ég held að menn verði bara að reyna að gera sér grein fyrir því að hér er um svo viðkvæmt mál að ræða varðandi þessa sjálfræðissviptingu að leita þarf allra leiða til þess að hún fari fram sem sjaldnast og með sem eðlilegustum hætti ef nokkur leið er, þó að menn vilji kannske segja að þetta gerist aldrei undir eðlilegum kringumstæðum.
Ég hlýt að draga í efa rökstuðning og túlkun þeirra sem nú mæla fyrir meirihlutaáliti hér. Ég undirstrika það enn að ég treysti best í þessu máli því ágæta fólki sem hefur kynnst þessu af eigin raun. Ég vil hins vegar ekki taka alfarið tillit til þeirra sjónarmiða vegna þess að bitur reynsla þess dekkir e. t. v. myndina um of. En ég tek það líka fram að þetta fólk hefur kynnt sér þetta mál frá víðara sjónarhóli en við gerum almennt hér. Það hefur kynnt sér þetta mál alveg sérstaklega frá sjónarmiði þeirra sem eru þolendur. Það hefur kynnt sér þessi mál með tilliti til reynslunnar erlendis.
Ég veit að reynslan frá Bandaríkjunum í þessu efni er lýsandi dæmi um það hvernig hægt er að standa að þessum málum, í sumum ríkjum þar mjög vel, öðrum ríkjum miður eða á einhvern svipaðan hátt og hér er verið að leggja til. Ég leita yfirleitt ekki fyrirmynda til Bandaríkjanna og tel að þar sé kannske fátt sem við getum haft til viðmiðunar, en í þessu tilfelli hefur í sumum ríkjum þar verið komið á allgóðu kerfi í þessum efnum þó að það sé hins vegar hraklegt í öðrum ríkjum Bandaríkjanna því að þar gilda í raun og veru ekki ein lög um þessi mál eins og menn þekkja.
Ég hlýt því að standa fast á minni skoðun, sem ég hef ítrekað flutt hér og er í takt við breytingarnar sem voru gerðar í Nd., og mun greiða atkvæði gegn þessum brtt. sem meiri hl. allshn. leggur til. Meiri hl. tekur þá að sjálfsögðu sína ákvörðun og mér sýnist á flestu hér, að niðurstaðan muni verða sú að með tilliti til þýðingar þessara laga í heild sinni muni Nd. fallast á það sem Ed. hefur eða mun leggja til hér á eftir.
En ég vil taka það fram að ég hlýt að taka þetta afmarkaða mál, sem hér er um að ræða, upp á ný með einhverjum hætti hér í þinginu. Ég veit að ég nýt þar liðsstyrks margra þm. Með því að menn kynni sér þessi mál enn betur er ég viss um að sá liðsstyrkur eykst þannig að á þessu geti orðið breyting. Ekki endilega í þá átt sem Nd. gerði, heldur á þann veg sem hv. 11. þm. Reykv. var að minnast á áðan sem merg málsins, að fleiri kæmu hér að og menn hefðu til meira öryggis að leita í framtíðinni í þessum málum. Það er auðvitað vilji okkar allra þó að okkur sýnist sitthvað um leiðir nú að því marki.