16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5956 í B-deild Alþingistíðinda. (5290)

354. mál, landflutningasjóður

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð til að vekja athygli á þessu máli.

Frv. er flutt, eins og menn sjá á, af samgn. hv. Nd. og er algert samkomulagsmál. Ég kom allmikið nálægt þessum sjóð á sínum tíma sem stjórnarformaður þar og veit því gjörla að hér eru réttlætismál á ferð. Forsenda þessa sjóðs var á sínum tíma sú af hálfu þeirra bifreiðastjóra sem lán fá úr sjóðnum, varðandi sérstaka gjaldtöku af þeim, að mótframlag kæmi frá ríkinu þó ekki yrði það hátt. Það mótframlag fékkst aldrei þrátt fyrir eftirrekstur af hálfu okkar stjórnarmanna í Landflutningasjóði. Ég tel því eðlilegt að fallið sé frá gjaldtöku af bifreiðastjórunum einnig. Í því er fyllsta samræmi og því vil ég óska þess að hv. samgn. afgreiði þetta mál fljótt og vel út úr Ed. og vænti þess raunar, þó að ég viti ekki, að samband hafi þegar verið haft við formann hv. samgn. Ed. um það mál.