16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5969 í B-deild Alþingistíðinda. (5298)
123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Valdimar Indriðason:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð hér vegna ræðu hv. 2. þm. Austurl., Helga Seljans, hér áðan. Ég held að ég hafi skilið það rétt að hann hampaði því hér mjög hver hefði verið stefnuyfirlýsing okkar Sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar í húsnæðismálunum. Það er rétt að því var lofað þar að stefna að 80% lánsmarki í almennt húsnæði. Hins vegar skildi ég ræðu hv. þm. svo að það ætti að koma á fyrsta ári þessa kjörtímabils. En ég skildi hana þannig stefnuyfirlýsinguna að að markmiðum hennar yrði unnið á kjörtímabilinu, en ekki komið að því að ná þeim núna á þessu ári. En fyrir austan — (Gripið fram í.) Ég get látið hann hafa þessa stefnuyfirlýsingu. Ég ætla ekki neitt að verja Framsfl. í þessum efnum. Ég held að það hafi verið líkt hjá honum, að það væri á fjórum árum sem þessu var lofað. Þetta vildi ég undirstrika, þannig að það fari a. m. k. rétt inn í þingtíðindi um þessi efni að þessu sé mótmælt.
Í öðru lagi gat hv. þm. þess að húsnæðismálunum hefði ekki verið vel fyrir komið í tíð síðustu ríkisstj. Um það erum við algerlega sammála að því miður var viðskilnaðurinn á þeim pakka ekki nógu góður undir handleiðslu þáv. félmrh. Svavars Gestssonar.