16.05.1984
Efri deild: 100. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5991 í B-deild Alþingistíðinda. (5318)
252. mál, fjarskipti
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Formaður n., hv. þm. Egill Jónsson, taldi að þetta væri tvímælalaust mikill áfangi. Ég er honum ekki sammála. Ég held að þetta sé stutt skref í áttina til frjálsræðis í þessum efnum.
Hann taldi enn fremur að það yrði þröngt fyrir dyrum hjá þeim sem eiga þau tæki sem Póstur og sími hefur haft til sölu um langa tíð og verið einir um. Ég vil benda honum eindregið á að í athugasemd frá Pósti og síma er tekið fram að íslenskir stórkaupmenn hafi umboð fyrir nær allan notendabúnað sem stofnunin hefur selt. Þetta er því ómerkt. Ef kaupmenn sjá sér færi á að veita þjónustu og fá gjald fyrir sölu er engin hætta á því að þeir sinni ekki þeirri þörf.
En ég tek undir það að tegundarprófun í sjálfstæðri óháðri stofnun er leið sem æskileg væri til þess að eðlilegri viðskiptahættir séu viðhafðir. En á meðan svo er ekki er ófært að sama stofnunin fari bæði með sölu búnaðar og tegundarprófun.