16.05.1984
Efri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5999 í B-deild Alþingistíðinda. (5333)
327. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Virðulegur forseti. Ef hæstv. forseti hefur ekkert við það að athuga mun ég mæla fyrir báðum málunum í senn, þ. e. þessu um breytingu á lögum um stofnun og rekstur Iðnaðarbanka Íslands og um heimild til sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Iðnaðarbankanum, enda eiga þau samleið.
Rétt er í upphafi að gera sér nokkra grein fyrir aðild ríkisins að Iðnaðarbankanum. Iðnaðarbankinn er fyrsti hlutafélagabankinn sem stofnaður er hér á landi ef Íslandsbanki sálugi er undanskilinn. Fram að þeim tíma sem Iðnaðarbankinn hóf starfrækslu árið 1953 voru hér eingöngu starfandi ríkisbankar. Það þótti því eðlilegt og ýmsir alþm. töldu það skilyrði fyrir samþykkt sinni á lagasetningu um bankann að ríkið væri stór hluthafi í Iðnaðarbankanum. Þessara viðhorfa hefur eigi gætt þegar síðari hlutafélagabankar hafa verið stofnaðir, svo sem eins og Verslunarbankinn og Samvinnubankinn enda hafa viðhorfin breyst á liðnum árum og nefni ég enn Alþýðubankann sem dæmi um þetta.
Í lögum um Iðnaðarbankann er kveðið á um að hlutafé bankans skuli nema allt að 6.5 millj. gkr. og þar af skyldi ríkissjóður leggja fram 3 millj. gkr. eða um 46% hlutafjárins. Hlutafé bankans hefur verið aukið nokkrum sinnum. Tvisvar hefur ríkið afsalað sér rétti til hlutfallslegrar aukningar hlutafjáreignar og hefur því hlutdeild ríkisins í bankanum minnkað úr 46% í 27% af heildarhlutafé bankans.
Hluthafar í bankanum eru nú 144 talsins og var nafnverð hlutafjárins hinn 31. des. 1983 samtals 38 492 154 kr. Nafnverð hlutafjár ríkissjóðs í bankanum á sama tíma var 10 391 700 kr. Ákveðið hefur verið að bjóða núverandi hluthöfum í bankanum hlutabréf ríkissjóðs til kaups á samtals 32 millj. kr. Sala þessi á hlutabréfunum er háð samþykki Alþingis á því frv. er hér liggur frammi. Með bréfi dags. 16. apríl s. l. sendi iðnrh. öllum hluthöfunum bréf varðandi þessi kaup. Varðandi skilmálana um greiðslu á söluverði vísast til athugasemda með frv. en við það er miðað að útborgun sé 50% af söluverði en 50% má greiða með vísitölubundnu skuldabréfi til þriggja ára. Iðnaðarbankinn mun sjá um framkvæmd sölunnar á þessum hlutabréfum. Þau hlutabréf, sem ekki seljast til núverandi hluthafa, mun Iðnaðarbankinn kaupa upp að því marki sem honum er heimilt lögum skv. og bjóða síðan bréfin til sölu á almennum markaði.
Ég vil þá víkja að söluverði bréfanna, en margir hafa eflaust mestan áhuga á að fá uppplýst hvernig það er til orðið. Í upphafi leitaði iðnrh. til ríkisskattstjóra og óskaði eftir mati hans á verðgildi hlutabréfanna. Ríkisskattstjóri synjaði þessari beiðni og taldi slíkt ekki í sínum verkahring. Leitað var til Fjárfestingarfélags Íslands og það beðið um mat á bréfunum. Enn fremur var kannað verðgildi þeirra hlutabréfa í bankanum sem hafa gengið kaupum og sölum undanfarin ár. Við mat á verðgildi hlutabréfanna var fyrst og fremst tekið mið af verðmæti hreinnar eignar Iðnaðarbankans 31. des. 1983 og áætlaðrar arðgreiðslu af hlutabréfunum.
Verðlagning á hlutabréfunum er engan veginn einhlít þar sem hér á landi er nánast enginn verðbréfamarkaður. Hvað er rétt verð á hlutabréfum ríkissjóðs í bankanum er því erfitt að ákveða með nákvæmni. Eigið fé bankans var hinn 31. des. 1983 143 millj. kr. Þar af var varasjóður og skattalegur varasjóður um 14 millj. Ef litið er á stærstan hlut eiginfjár bankans sem eign hluthafanna, sem það í raun og veru er, má þrefalda nafnverð hlutabréfa ríkissjóðs í bankanum og það er einmitt það sem gert hefur verið. Ég vil heldur ekki verða sakaður um að selja eigur ríkisins á lægra verði en hugsanlegt er að fá fyrir þær. Því hefur verið lýst yfir að verðlagning á bréfunum sé of há en ég kvíði því engu að þessi hlutabréf muni ekki seljast og af viðræðum mínum við hluthafa er ég þess fullviss að sala á hlutabréfunum á þessu verði muni takast sæmilega.
Rekstur Iðnaðarbankans gekk vel á árinu 1983 og hefur reyndar gert það mörg undanfarin ár. Heildarinnlán hjá bankanum jukust um 88.4% en innlánsaukning allra viðskiptabankanna var að meðaltali 80.3%. Hlutdeild Iðnaðarbankans í heildarinnlánum bankanna jókst úr 7% árið 1982 í 7.3% árið 1983. Hagnaður bankans árið 1983 varð 12.5 millj. kr. og er þá búið að taka tillit til áætlaðrar greiðslu á tekju- og eignarskatti, samtals 14.7 millj. kr.
Ég álít að ekki þurfi að fara fleiri orðum um þessi frv. Eins og áður segir er annað frv. um heimild til sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Iðnaðarbankanum. Hitt frv. gerir ráð fyrir nauðsynlegum breytingum á lögum um Iðnaðarbanka Íslands hf. er leiðir af sölu ríkissjóðs á hlutabréfum í bankanum. Breytingarnar eru einungis tvær. Sérstaða ríkissjóðs á hluthafafundum er afnumin og hin breytingin er um kosningu bankaráðs sem verði með hlutfallskosningu á árlegum aðalfundi. Ég legg mjög mikla áherslu á að mál þessi nái afgreiðslu á þessu þingi og leyfi mér, frú forseti, að leggja til að þegar þessari umr. lýkur verði máli þessu vísað til 2. umr. og iðnn.