16.05.1984
Neðri deild: 90. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6007 í B-deild Alþingistíðinda. (5377)

271. mál, Hitaveita Suðurnesja

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Frv. til laga um breytingar á lögum um Hitaveitu Suðurnesja hefur eins, og hv. frsm. iðnn. þessarar deildar hefur greint frá, verið til allítarlegrar meðferðar í iðnn. Var það ekki að ástæðulausu því eins og frv. var hér lagt fyrir var margt við það að athuga og n. hefur gert nokkrar brtt. við frv. sem almennt horfa heldur til bóta þótt ekki sé gengið þar nægjanlega langt að mínu mati og inni í frv. að tillögum n. séu enn atriði sem nauðsynlegt er að hv. deild athugi betur og taki afstöðu til með tilliti til brtt. sem ég hef lagt fram á þskj. 892.

Ég kaus hins vegar að standa að frv. með fyrirvara vegna þess að ég er því samþykkur í grundvallaratriðum og horfið verði að því ráði að stofna orkubú sem svo má kalla á Suðurnesjum, tel það eðlilega ráðstöfun miðað við allar aðstæður og það verður að sjálfsögðu að teljast meginefni þessa frv. Þær brtt. sem ég flyt varða c-lið 2. gr. sem n. í heild að vísu stendur að brtt. um en allsendis ófullnægjandi að mínu mati. Ég legg til að þessi liður verði felldur niður. Ég get látið nægja í meginatriðum að vísa til umsagnar Orkustofnunar um þetta efni og tel nauðsynlegt, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér úr þeirri umsögn það sem varðar þennan lið og bið hv. þdm. að gefa gaum að þessu atriði alveg sérstaklega. Þessari umsögn Orkustofnunar hefur ekki verið komið á framfæri við hv. þd. og því nauðsynlegt að menn geti kynnt sér hana. Hún er svohljóðandi varðandi 2. gr. c-lið í frv.:

„Með c-lið 2. gr. frv. er Hitaveitu Suðurnesja ætlað að hafa með höndum hvers konar aðra nýtingu jarðgufu og jarðvatns. Við þetta orðalag er að mati Orkustofnunar ýmislegt að athuga. Hvað er t. d. átt við með „hvers konar nýtingu jarðvatns“? Algengasta nýting jarðvatns hér á landi er öflun neysluvatns fyrir vatnsveitur. Er meiningin að Hitaveita Suðurnesja annist dreifingu neysluvatns, það sé einn tilgangur hennar? Það væri einsdæmi hér á landi og líklega víðar og getur varla talist heppileg skipan. Lagt er til að orðalag verði haft skýrara og tekin af öll tvímæli um þetta.“

Ég bæti því hér við frá eigin brjósti að iðnn. hefur tekið tillit til þessa atriðis með brtt. sinni með því að gera till. um orðalagsbreytingu, að talið verði um nýtingu á jarðvarma og heitu grunnvatni. En síðan segir í umsögn Orkustofnunar:

„En hvers konar nýtingu jarðgufu? Hún getur m. a. falið í sér iðnrekstur eða fiskeldi sem nýti jarðgufu. Að mati Orkustofnunar er það fullkomlega eðlilegt að Hitaveita Suðurnesja annist vinnslu á varma og/eða raforku til slíkra nota ekkert síður en til hitunar húsa og almennra rafmagnsnota, enda séu hagsmunir hitaveitunnar í slíkum viðskiptum tryggðir með sérstökum samningum. En hlutverk hitaveitunnar á þar sem annars staðar að takmarkast við að vinna orkuna, koma henni til notandans og selja honum hana. Hún á ekki að taka þátt í fyrirtækjum sem nota orkuna. Hér er um að ræða grundvallaratriði sem löggjafinn þarf að hafa í fullum heiðri að dómi Orkustofnunar.

Hitaveita Suðurnesja er eins og aðrar orkuveitur opinbert þjónustufyrirtæki sem hefur einkaleyfi til orkusölu til almennra notenda á orkuveitusvæði sínu. Slíkt fyrirtæki býr ekki við samkeppni, notendur eiga ekki í neitt annað hús að venda. Fyrirtæki sem hefur einkarétt ber skylda til að leitast við að veita notendum þá þjónustu sem einkarétturinn tekur til með viðunandi gæðum og að því skilyrði uppfylltu við sem lægstu verði. Sú skylda leggur ýmsar kvaðir á fyrirtækið umfram þær sem hvíla á fyrirtækjum sem ekki hafa neinn einkarétt en starfa í sviptivindum samkeppninnar. Það samrýmist t. d. ekki skyldum einkaleyfisfyrirtækis að nota fé sitt sem áhættufé í almennum atvinnurekstri.

Iðnrekstur eða fiskirækt, hvort heldur jarðgufa er notuð eða ekki, getur verið áhættusöm starfsemi. Miklu fé getur þurft að hætta til hennar. Það er ekki við hæfi að opinbert þjónustufyrirtæki með einkaleyfisstöðu hætti fé sínu í slíka starfsemi. Orkustofnun leggur því til að c-liður 2. gr. frv. verði numinn alveg burt. Öll sú starfsemi, sem eðlilegt er að ætla opinberu þjónustufyrirtæki eins og Hitaveitu Suðurnesja, er innifalin í a- og b-lið frv. Til bóta væri að gera niðurlag b-liðar skýrara með því að orða það á þessa leið: „og annast sölu á orku til almennra notenda svo og til sérnotenda eftir sérstökum samningi. Iðjuver eða fiskiræktarstöðvar, sem nota jarðgufu í stórum stíl, mundu teljast til sérnotenda. Við þá ætti að gera sérstaka orkusölusamninga, hliðstæða þeim sem Landsvirkjun gerir við stórnotendur raforku.“

Þetta er umsögn Orkustofnunar við c-lið 2. gr. Eins og menn taka eftir er Orkustofnun algerlega fortakslaus í þessu efni. Það verður ekki bent á það ég viti neitt sambærilegt atriði í íslenskri löggjöf, þar sem þjónustufyrirtæki með einkaleyfi af þessu tagi er heimilað að fara að stunda óskylda starfsemi í áhætturekstri sem haft getur mikil áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækisins. Orkumálastjóri, sem kom á fund nefndarinnar, benti t. d. á það að í Bandaríkjunum, þar sem hin frjálsa samkeppni ku vera nokkuð í heiðri höfð, væri þess stranglega gætt að orkuveitufyrirtæki færu ekki út í annan rekstur. Haft var við orð í umræðum um þetta í iðnn. að eitthvað svipað væri að finna í lögum um Orkubú Vestfjarða. Við nánari skoðun reynist svo alls ekki vera. Þar er ekkert sambærilegt atriði að finna. Ég tel að hv. Alþingi þurfi að gera sér ljósa grein fyrir þessu og ég undrast það að hæstv. iðnrh., sem haft var samráð við um þessi atriði af hálfu einstakra nm., skuli hafa, ef ég skil það rétt, staðið mjög fastur á því að þessu ákvæði væri haldið inn í frv. og það lögfest.

Ég bæti því við að í umsögn Orkustofnunar er rætt um fiskeldi og iðnrekstur varðandi nýtingu jarðvarma þar sem hún var á dagskrá. Það hefur borist mér til eyrna að hjá forráðamönnum Hitaveitu Suðurnesja kæmu inn í þessa umræðu nú þegar hugmyndir um aðild að heilsuræktarstöðvum eða slíku. Ylrækt hefur einnig verið þarna á dagskrá.

Ég taldi nauðsynlegt að skýr afstaða fengist til þessa máls og því legg ég til að þessi c-liður falli brott og legg á það áherslu að við það skerðist með engum hætti sá megintilgangur, sem ætti að vera með stofnun orkubús af þessu tagi, að vinna og dreifa jarðvarma og raforku til almennra notenda á þessu svæði.

Önnur brtt., sem ég stend að varðandi þetta frv., varðar ákvæði til bráðabirgða. Það er raunar upphaf þess ákvæðis þar sem n. sem heild gerir orðalagsbreytingu varðandi stofnlínurnar sem flytja raforku frá Elliðaám suður til Njarðvíkur. Gerður er fyrirvari í áliti iðnn. um það að ekki sé sjálfgert að þessar stofnlínur, ef um sölu þeirra semst, séu seldar báðar samtímis. Einnig er gerður fyrirvari um það að slík sala eða það sem henni fylgdi mætti ekki hafa áhrif á orkuverð annars staðar á landinu.

Ég vil skýra þetta ögn nánar, tel það nauðsynlegt, því að það kom ekki hér fram í framsögu hv. frsm. n. áðan, að það sem hér er um að ræða er spurningin um raforkusölu inn á Keflavíkurflugvöll. Sú sala fer nú fram skv. sérstökum samningi sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa gert í umboði og með staðfestingu utanríkisráðuneytisins sem fer með málefni Keflavíkurflugvallar skv. margfrægum samningi, varnarsamningi hygg ég að hann sé kallaður. Rafmagnsveitur ríkisins gerðu sem sagt um þetta samning á sínum tíma og það liggur fyrir og kemur fram í grg. með sjálfu frv., sem hér var lagt fram, að rúmur helmingur af raforkusölu nú á þessu svæði, sem hitaveitunni eða þessu nýja orkubúi er ætlað að taka til, er raforkusalan inn á Keflavíkurflugvöll. Það liggur líka fyrir að eins og þessi samningur er úr garði gerður og eins og hann hefur verið útfærður af Rafmagnsveitum ríkisins til þessa þá hafa rafmagnsveiturnar haft brúttóágóða á undanförnum árum af þessari sölu sem nam brúttó á síðasta ári tæpum 29 millj. kr. Þarna er um að ræða álag á heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun, sem Rafmagnsveiturnar kaupa rafmagnið af, sem nemur um 57% og gefur þennan brúttóhagnað.

Nú er það svo að í þessum samningi er verðlagningin m. a. réttlætt með því að Rafmagnsveiturnar taka á sig skuldbindingar í sambandi við hugsanlega þörf á endurbyggingu stofnlínu á komandi árum til þess að tryggja raforkuflutning til vallarins. Það ásamt töpum vegna flutnings, rekstrarkostnaði af línunum er rétttæting þess að leggja sem þessu nemur á raforkuverð inn á völlinn. Ég tel að þetta atriði sé það sérstakt, þessi raforkusala inn á Keflavíkurflugvöll, að ekki eigi að blanda því saman við afgreiðslu þessa máls, lagasetningu um orkubú á Suðurnesjum, það eigi að halda því máli utan við þessa lagasetningu nú og Alþingi eigi að taka afstöðu til þess máls að miklu betur athuguðu máli en hér er ráðrúm til að gert verði og eftir að framkvæmdavaldið hefur skoðað það mál miklu betur og lagt fyrir þingið. Ef till. stæðu í þá átt að selja þessa stofnlínu og afhenda orkubúinu raforkusöluna inn á Keflavíkurflugvöll væru ljósar afleiðingar þess og lagðar fyrir með samningsdrögum sem væru þá skýr og ótvíræð. Ég tel það ekki forsvaranlegt að veita framkvæmdavaldinu heimild til að selja þessa stofnlínu, þótt með fyrirvara sé af því tagi sem er inni í áliti iðnaðarnefndar að svo komnu, og tel að fjárhagur Rafmagnsveitna ríkisins og raforkuviðskipti þeirra og gjaldskrár gagnvart notendum þeirra með þeim mun sem þar er á, miðað við ýmsa aðra notendur, gefi ekki tilefni til þess að farið verði að taka þessa raforkusölu úr höndum Rafmagnsveitna ríkisins nú sem gaf fyrirtækinu brúttóhagnað upp á nær 30 millj. kr. á síðasta ári. Því legg ég til í þessari sérstöku brtt. við ákvæði til bráðabirgða að orðalagið sé svohljóðandi í upphafi:

„Ríkissjóði er heimilt að setja Hitaveitu Suðurnesja 33 kílóvolta háspennulínu í eigu Rafmagnsveitna ríkisins frá spennistöð við Elliðaár til Njarðvíkur svo og raforkuveitukerfi sín og stofnana ríkisins, aðveitur og dreifiveitur innan sveitarfélaga þeirra sem aðild eiga að fyrirtækinu.“

Framhaldið er síðan óbreytt frá því sem er í ákvæðinu til bráðabirgða skv. frv. Hér er sem sagt verið að undanskilja 66 kílóvolta línuna sem flytur raforkuna frá Elliðaám suður í Njarðvík og áfram inn á völlinn og þá um leið raforkusöluna inn til Keflavíkurflugvallar. Allt annað er heimilt að semja við hitaveituna, þetta nýja orkubú, um sölu á, af línum ríkisins. Þ. á m. hina stofnlínuna 33 kílóvolta og allt 33 kílóvolta kerfið sem fullnægir því eðlilega sjónarmiði að orkubú þetta geti dreift raforkunni til sveitarfélaga og annarra notenda á svæðinu. Engin hindrun er í því fólgin og skilin algjörlega hrein.

Ég vænti að þessar till. séu hv. þingdeildarmönnum ljósar og menn átti sig á því hvað hér er á ferðinni og hverjar fylgjur þess geta orðið að fella þá brtt. sem ég gerði og fylgja þeim till. eingöngu sem n. stendur að sameiginlega. Mér þætti það við hæfi að hæstv. iðnrh. skýrði hér viðhorf sín til þessara mála, til c-liðar 2. gr., að ætla að knýja fram samþykkt á því hér að þetta einkaleyfisfyrirtæki fái heimild til þess að fara að verja fjármagni sínu í áhætturekstur óskyldan raforkuframleiðslu og jarðvarmavinnslu. Ég vildi einnig fá að heyra frá hæstv. ráðh. eitthvað um það, hvernig hann ætlar að bæta Rafmagnsveitum ríkisins það tekjutap sem við blasir, a. m. k. nú og á næstu árum, eftir að svona samningur hefði verið gerður, hvernig hann hyggst standa að því. Það er sannarlega áhyggjuefni að hæstv. ráðh. hefur gefið yfirlýsingar um að svipta Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða mjög fljótlega því verðjöfnunargjaldi af raforku sem hefur gert Rafmagnsveitunum kleift að draga úr miklum mismun á gjaldskrám gagnvart notendum sínum miðað við það sem gerist hjá rafveitum sveitarfélaga.