16.05.1984
Neðri deild: 91. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6017 í B-deild Alþingistíðinda. (5384)
363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lög eru sett vegna kjaradeilu þessara sömu aðila. Það má segja að myndast hafi hefð um að kjaradómur sé a. m. k. yfirvofandi þegar um þessi mál er fjallað. Ég tel að vitneskjan um það að óbilgjörn afstaða samningsaðila muni leiða til þess að lög eru sett og kjaradómur valdi því að í óefni er stefnt. Þetta veldur því að settar eru fram óaðgengilegar kröfur sem menn hreinlega vita að muni aldrei ná fram að ganga. Það fara ekki fram raunverulegar samningaumleitanir og menn bíða þess hreinlega að málið fari í dóm. Á þennan hátt eru samningsaðilar losaðir undan þeirri ábyrgð að semja eins og ábyrgir og frjálsir menn um sín kjör.
Ég tel að þau afskipti, sem ríkisstj. hefði átt að hafa af þessu máli, hefðu þvert á móti átt að vera þau að lýsa því yfir að ekki kæmi til greina að setja lög um kjaradóm. Þá hefðu menn frá byrjun staðið frammi fyrir því að þeir þyrftu að semja. En það andrúmsloft sem hefur skapast í kringum þessa samningsgerð veldur því að menn vita að með þófi og kannske óbilgjörnum fáránlegum kröfum er málinu stefnt þannig að þeir losna á endanum við að þurfa að taka ábyrga afstöðu til málsins, eru settir í dóm og geta síðan eins lengi og hver vill skipst á skoðunum um hversu góð útkoman hafi verið. Ég reikna fastlega með að samningar í þessu máli hefðu tekið aðra stefnu undanfarnar vikur ef þessi vitneskja hefði legið fyrir frá byrjun.
Þetta leiðir náttúrlega hugann að ýmsu. Þær upplýsingar, sem hér komu fram í máli hæstv. ráðh. um óvissu í flugi á Norður-Atlantshafsleiðinni og óvissa framtíð Flugleiða á þeirri leið, m. a. vegna ókosta millilendinga á Íslandi, vegna hugsanlegrar endurnýjunar flugflotans og þess háttar, eru upplýsingar sem gjarnan hefðu mátt koma fram og kannske ítarlegri í umræðum sem urðu hérna nýlega um byggingu flugstöðvar, þar sem talsmenn stjórnarandstöðunnar bentu á að það er verið að byggja flugstöð þar sem helmingur farþeganna, sem hún kemur til með að hýsa, eru þessir blessaðir transitfarþegar sem öll óvissan er um. Það endar kannske með því að við verðum um ókomin ár að koma í veg fyrir að það verði verkföll á Norður-Atlantshafsleiðinni til þess að missa ekki transitfarþegana okkar, til þess að flugstöðin okkar verði ekki tóm. En ég lýsi því sem sagt yfir fyrir hönd BJ að við erum á móti þessari lagasetningu.