16.05.1984
Neðri deild: 93. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6031 í B-deild Alþingistíðinda. (5399)

363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er vissulega rétt sem hér hefur komið fram að það er alvarlegt mál þegar ríkisvaldið, stjórnvöld og Alþingi, telur sig knúið til þess að grípa inn í með þeim hætti sem hér er lagt til að gert verði og á þann veg að skerða rétt einstaklings og í þessu tilfelli stéttarfélags. Þetta þýðir þó ekki að til slíkra hluta hafi ekki verið gripið og auðvitað er Alþingi nú einu sinni til þess að stjórna. En eigi að síður má ekki gera slíkt nema nánast sem neyðarvörn þegar ekkert annað er til að grípa til og leysa mál.

Mér sýnist eftir að hafa fengið þær upplýsingar, sem frsm. nefndarinnar greindi frá, að þetta mál sé þríþætt. Í fyrsta lagi liggur fyrir, að mér skilst, formleg bókun um það hjá ríkissáttasemjara af hálfu beggja deiluaðila að þeir telji gjörsamlega tilgangslaust að halda áfram sáttaumleitunum þannig voru málin a. m. k. í gær þegar síðasti sáttafundur var haldinn. Það liggur fyrir að báðir aðilar telja um tómt mál að tala að samkomulagsgrundvöllur sé fyrir hendi.

Í öðru lagi verður ekki betur séð en að þær kröfur, sem um er að ræða af hálfu Félags íslenskra atvinnuflugmanna, séu langt fyrir ofan það sem nokkur hefur um samið nú undangengna mánuði, eða eftir því sem fram hefur komið allt frá 35% og upp í 70% hærra en þeir samningar sem gerðir hafa verið á vinnumarkaðnum að undanförnu. Þetta eru að vísu tölur sem settar hafa verið fram af gagnaðila Félags íslenskra atvinnuflugmanna, þ. e. Flugleiðum h/f, en aðspurður kvað ríkissáttasemjari það ekki hafa komið fram með formlegum hætti að því hafi verið neitað af hálfu atvinnuflugmanna. Nú er ekki ástæða til þess sérstaklega að vera að draga þetta inn í umr. en þó er þess vert að því sé gefinn gaumur í ljósi þess að á undangengnum vikum og mánuðum hafa launþegar, sem eru miklu verr settir en þessi starfsstétt, gert sér að góðu launasamninga sem gefa viðkomandi einstaklingum miklu, miklu minna en þessir samningar gæfu þessum aðilum.

Í þriðja lagi er svo stöðvun allra flugsamgangna í landinu um tiltekinn tíma.

Allt eru þetta veigamiklir þættir í þessu máli. Það er hins vegar alltaf spurning hvort lög af því tagi, sem hér er verið um að ræða, leysi í raun og veru eitthvað af þeim vanda sem fyrir hendi er. Um það skal ekkert fullyrt á þessu stigi. Ég vil a. m. k. á engan hátt fullyrða að það geti ekki með einhverjum hætti af hálfu þessara aðila verið um tregðu í flugsamgöngum að ræða þrátt fyrir það að þessi lög næðu fram að ganga. Ég hef sjálfur búið við þessa tregðu í reynd nokkra undanfarna daga og ég tel ástæðulaust að leyna því neitt og það er opinbert leyndarmál að a. m. k. einhverjir flugmanna hafa beitt tregðulögmálinu til þess að hafa áhrif á þessi mál. Það bitnar ekki hvað síst á þriðja aðilanum í þessu máli, sem er fólkið í landinu. A. m. k. er það mitt mat að slíkt tregðulögmál auki ekki samúð með þeim aðila sem því beitir, allra síst þegar það er gert á tíma eins og nú þegar vel flestir ef ekkí allir aðrir í landinu hafa þurft að sætta sig við, hvort sem það hefur verið með ánægju eða ekki, að búa við miklu lakari stöðu en ég hygg að þarna sé um að ræða.

Það er líka þáttur í þessu máli að mínu viti að verkfallsrétturinn var á sínum tíma settur sem neyðarréttur, neyðarúrræði til að grípa til þegar allar aðrar leiðir voru lokaðar. Mér hefur fundist um nokkuð langan tíma að þjóðfélagshópar — það á ekki bara við um þessa aðila sem hér er um að ræða — sem hafa nánast kverkatak á þjóðfélaginu beiti þessum rétti, að mér finnst, á þann veg að það sé til framdráttar þeim sjónarmiðum sem vilja breyta vinnulöggjöfinni til þess að skerða verkfallsréttinn til stéttarfélaga og launþega. Að því leytinu til er málið líka alvarlegt.

Þó að ég sé þeirrar skoðunar að hér sé nánast um prinsippmál að ræða um bann við verkföllum eða ekki, þá sýnist mér að þær kringumstæður geti verið í þjóðfélaginu að undan slíku verði ekki vikist. Það eru stjórnvöld og Alþingi sem til þess eru kjörin að taka af skarið. Ég á afskaplega erfitt með það sem er forsvarsmaður stéttarfélags, sem búið er að samþykkja þá kjarasamninga sem gerðir voru á hinum almenna vinnumarkaði á s. l. vetri og innifólu vægast sagt litlar kjarabætur, að stuðla að því að aðrir hópar miklum mun betur settir í þjóðfélaginu gangi fram með þeim hætti sem hér var vissulega gert ráð fyrir og nái til sín miklu, miklu meiru en hinn almenni maður og miklu verr settur átti kost á að fá. En þetta er spurning um ástand í þjóðfélaginu og það tímabil sem þessi mál eru til umræðu.

Ég hef haldið því fram og held því fram enn og ég veit ekki betur en að það sé stefna míns flokks að það svigrúm, sem er til launahækkana eða kjarabóta, eigi fyrst og fremst og raunar einvörðungu að nota til þess að bæta stöðu þeirra verst settu. Það mál er ekki hér á dagskrá og ég skal ekki ræða þetta öllu frekar. En eins og fram kemur í nál. hef ég skrifað undir það og í ljósi kringumstæðna, sem ég tel mig hafa rakið frá mínum sjónarhóli séð, mun ég greiða atkv. með því að þetta frv., eins og það kann að verða eftir þá breytingu sem n. leggur til, nái fram að ganga.