16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6034 í B-deild Alþingistíðinda. (5404)

363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Aðeins örstutt. Það var einmitt það sjónarmið sem kom fram hjá hv. 5. þm. Vestf. sem ég geld varhug við og getur orðið þess valdandi að verkalýðshreyfingin eigi yfir höfði sér breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, vinnulöggjöfinni öðru nafni kölluðu, í þá átt að þrengja að þessum rétti hins almenna verkamanns. Þetta vopn, þennan neyðarrétt, er hægt að nota og hefur sjálfsagt verið notað með þeim hætti að létta þeim róðurinn sem vilja þrengja þetta fyrir þá sem kannske fyrst og fremst þurfa á því að halda að geta notað það. Ég get í raun og veru tekið undir allt sem hv. 7. þm. Reykv. sagði áðan. Allt af því var nánast eins og ég hefði sjálfur getað talað það frá eigin brjósti. Ég vil mjög taka undir þau orð hans þar sem hann varaði hæstv. ríkisstj . við því að nota þetta tiltekna mál eða tiltekna atriði til þess að beita gagnvart öðrum aðilum í deilum. En ég held sem sagt að full ástæða sé fyrir launafólk, fyrir verkalýðshreyfinguna, stéttarfélögin að fara að skoða það sérstaklega hvort þetta vopn sé ekki notað á þann hátt að það auðveldi andstæðingum verkalýðshreyfingarinnar að þrengja hennar kosti í löggjöfinni um stéttarfélög og vinnudeilur.