16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6036 í B-deild Alþingistíðinda. (5415)
328. mál, sala hlutabréfa ríkissjóðs í Iðnaðarbanka Íslands
Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 882 um frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. til að selja hlutabréf ríkissjóðs í Iðnaðarbanka Íslands. Þetta er álit meiri hl. iðnn.
Nefndin hefur rætt málið en komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt, enda verði andvirði hlutabréfanna ráðstafað þannig á árunum 1984 og 1985:
1. Á árinu 1984 verði 6 millj. kr. varið til úttektar og athugana á rekstri fyrirtækja og stofnana á vegum iðnrn. og 5.3 millj. kr. varið til stuðnings við ýmis rannsóknar- og þróunarmál í iðnaði, einkum smáiðnaði, skv. ákvörðun ráðh.
2. Á árinu 1985 verði fé því sem inn kemur, 4.7 millj. kr., varið til stuðnings við fyrirtæki í smáiðnaði skv. ákvörðun ráðh.
Undir þetta nál. rita á Alþingi 14. maí 1984 Páll Pétursson, Friðrik Sophusson, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Gunnar G. Schram og Ingvar Gíslason.