16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6044 í B-deild Alþingistíðinda. (5436)
8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér er á ferðinni staðfesting á brbl. sem hæstv. ríkisstj. setti í upphafi ferils síns um verulega breytingu á hlutaskiptum. Eins og fram hefur komið bæði við atkvgr. í þessari deild og í hv. Ed. voru mörg mótatkvæði gegn þessum ráðstöfunum sem hér er verið að staðfesta.
Ég vil í tilefni af þessu minna á að ekki liggja fyrir, svo mér sé kunnugt um, neinar nákvæmar upplýsingar um það hvað þessi skerðing á hlutaskiptum sem ákveðin var með brbl. þýðir og þýddi fyrir tekjur sjómanna t. d. á árinu 1983. Ég hef a. m. k. ekki séð í gögnum málsins neina slíka úttekt. Ég vil því spyrja hæstv. sjútvrh. hvort hann er reiðubúinn til þess að hlutast til um að aflað verði upplýsinga fyrir þm. hjá Þjóðhagsstofnun t. d. um það hverju þessi kjaraskerðing nam sem brbl. kveða á um. Það er í rauninni ekki mjög einfalt að giska á þessa breytingu vegna þess að kostnaðarhlutdeildin, sem lögin kveða á um, kemur í stað ýmissa þátta sem áður voru með öðrum hætti ákveðnir, ýmist fram hjá skiptum beint eða óbeint að segja má. Þess vegna þarfnast það nokkurrar yfirlegu að fá það fram hvaða breyting á tekjum sjómanna varð út af þessum lögum einum.
Við vitum að sjómenn hafa orðið fyrir verulegri kjaraskerðingu vegna aflasamdráttar. En til þess að unnt sé að átta sig á málinu í heild þarf að koma fram hvaða breyting það var sem átti sér stað á tekjum sjómanna vegna þessara brbl. Mér þætti vænt um ef hæstv. sjútvrh. sæi sér kleift við þessa umr. að skýra frá því hvort hann er reiðubúinn til þess að láta taka saman á vegum Þjóðhagsstofnunar slíkt yfirlit um tekjuskerðingu sjómanna og þar með um það hversu miklir fjármunir voru með þessum ákvörðunum fluttir yfir til útgerðarinnar.