09.11.1983
Neðri deild: 12. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
13. mál, endurmat á störfum láglaunahópa
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Ég hef áður lýst við þessa umr. stuðningi við það frv. sem hér er til meðferðar. En það var út af orðum hv. síðasta ræðumanns sem ég taldi ástæðu til að koma hér með athugasemd til að fyrirbyggja misskilning. Hv. þm. taldi í upphafi máls síns að ekkert hefði verið gert í því að kanna þetta mál fyrr en frétt hefði birst nú um að ríkisstj. hefði gert samþykkt á síðasta fundi sínum um að taka þetta mál til meðferðar. Þetta er ekki rétt. Ég vildi aðeins skýra frá því, eins og ég vék raunar að í fyrri ræðu minni við þessa umr., að s.l. sumar, nánar tiltekið í byrjun júní, kom bréf til ríkisstj. frá Starfsmannafélaginu Sókn. Efni bréfsins var samþykkt frá því félagi sem hljóðaði á þessa leið, með leyfi forseta:
„Skorað er á ríkisstj. að hlutast til um að Þjóðhagsstofnun geri könnun á hvað margir launþegar taki laun samkvæmt lágmarkstekjutryggingu eða því sem næst og í hvaða starfsgreinum þetta fólk vinnur.“
Í framhaldi af þessu fól ríkisstj. þá þegar Þjóðhagsstofnun að gera könnun á þessu máli, og eins og ég tók fram fyrr í máli mínu þá kom fyrsti árangur af þessari könnun á borð ríkisstj. í byrjun okt., sem byggðist á úrtaki sem ríkisskattstjóri hafði látið vinna en var hvergi nærri fullnægjandi miðað við þær upplýsingar sem eftir er leitað.
Ég lýsti yfir í þessari umr. furðu minni yfir því að í okkar tæknivædda þjóðfélagi skuli vera þannig ástatt að ekki skuli vera hægt að fá aðgengilegar upplýsingar um svona veigamikil atriði, ekki síst þegar um er að ræða að nota þær upplýsingar til að rétta hlut þeirra í þjóðfélaginu sem mest þurfa á stuðningi að halda. Til að útskýra þetta nánar vil ég aðeins vitna hér í hluta af þeim skýringum sem fylgdu þessum fyrstu upplýsingum sem bárust ríkisstj. úr þeirri úrvinnslu sem Þjóðhagsstofnun hefur verið að vinna að, með leyfi forseta:
„Ýmsar skilgreiningar eru mögulegar á lágtekjum heimilanna. M.a. mætti miða við meðaltekjur eða hluta meðaltekna einhverra ákveðinna atvinnustétta. En slíkar viðmiðunartölur liggja ekki á lausu. Þjóðhagsstofnun hefur ekki gert úttekt á tekjum eftir atvinnustéttum fyrir árið 1982.
Einnig mætti miða við tiltekna taxta, t.d. þann taxta sem Atvinnuleysistryggingasjóður miðar greiðslur atvinnuleysisbóta við, en sá taxti er 8. flokkur A, 5. starfsaldursþrep samkvæmt kjarasamningum Dagsbrúnar. Slíkur taxti gaf u. þ. b. 79 þús. kr. í árstekjur árið 1982.
Fjöldi heimila samkvæmt ofangreindri skilgreiningu, þ.e. með lægri tekjur en 79 þús. kr. var 741, sem er 1.7% miðað við heildarfjölda heimila samkv. sömu skilgreiningu í landinu. Jafnframt má þess geta að þetta er efsta teknabilið áður en tekjuskattur er lagður á tekjur heimilisins. Til hliðsjónar og frekari glöggvunar eru þessar tekjur, 79 þús. kr., tæplega helmingur af meðallaunum landsmanna samkvæmt athugun Framkvæmdastofnunar ríkisins, en meðallaun samkv. þeirra útreikningi eru 172 þús. kr. árið 1982.“
Þetta er aðeins sýnishorn af því hvar við stöndum í svona vinnu til að gera úttekt á því sem ætti raunverulega að vera hægt að fá á skermi með einföldum hætti.
Það sem síðan gerði það að verkum að umrædd samþykki var gerð í ríkisstj. á síðasta fundi hennar var það, að þegar þetta lá fyrir eftir viðræður við kjararannsóknarnefnd, þar sem hún býðst til að gera á þessu ítarlegri könnun og leiða fram upplýsingar sem gætu legið fyrir fljótlega, þótti ástæða til að þiggja það boð kjararannsóknarnefndar og fela henni að vinna þetta verk núna á næstu vikum og mánuðum. Þess vegna var sú samþykkt gerð á síðasta fundi ríkisstj. og til þess er ákveðin aukafjárveiting á þessu ári.
Ég vildi láta þetta koma hér fram til að fyrirbyggja misskilning, sem mér fannst gæta hjá hv. síðasta ræðumanni, en þetta rýrir þó ekki það álit og þá staðreynd sem einnig liggur fyrir, að það er mjög miður að ekki skuli hafa verið tekin upp sú verkregla fyrir löngu síðan, bæði af stjórnvöldum og launþegahreyfingu og atvinnurekendum í landinu, að byggja upp kerfi sem sjálfkrafa gefur öruggar upplýsingar hvað þetta varðar. Þessu þarf að breyta og að því þurfum við að vinna. En það er engin ástæða til að deila sérstaklega á verkalýðshreyfinguna í þessu efni eins og kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni.