16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6050 í B-deild Alþingistíðinda. (5446)
314. mál, sjúkraliðar
Frsm. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 920 um frv. til laga um sjúkraliða, sem er 324. mál þessa þings á þskj. 622. Þetta frv. varðar réttindi og skyldur sjúkraliða og lögverndun starfsheitis þeirra.
Um frv. hefur þegar verið fjallað í Ed. þar sem það var samþykkt óbreytt.
Heilbr.- og trn. Nd. hefur fjallað um þetta frv. og haft samráð við Ingimar Sigurðsson deildarstjóra og Margréti Einarsdóttur formann Félags sjúkraliða.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir nál. rita auk mín Guðmundur H. Garðarsson, Friðrik Sophusson, Guðrún Helgadóttir, Níels Árni Lund.