16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6057 í B-deild Alþingistíðinda. (5475)
321. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Frsm. 2. minni hl. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég stend að nál. 2. minni hl. iðnn. á þskj. 918, en það hljóðar þannig:
„Alþb. beitti sér á árunum 1975–1977 gegn ákvörðun og samningum um byggingu járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Talsmenn flokksins á Alþingi á þeim tíma héldu því m. a. fram, að efnahagslegar forsendur fyrirtækisins væru ótraustar og mikil hætta væri á að verksmiðjan yrði baggi fyrir eigendur. Þetta hefur sannast áþreifanlega á fyrstu rekstrarárum fyrirtækisins, en uppsafnað tap við árslok 1982 nam 39.7 millj. dollara eða um 1200 millj. ísl. kr.
Vert er að minna á að veturinn 1978–1979, þegar ákvörðun þurfti að taka um hvort byggja ætti 2. ofn verksmiðjunnar, lagði Alþb. til að þeirri fjárfestingu yrði frestað á meðan óvissa ríkti um markað og verð á afurðum verksmiðjunnar. Samstarfsaðilinn Elkem neitaði hins vegar að fallast á tilmæli þáv. iðnrh. um þetta efni og bar fyrir sig ákvæði í rafmagnssamningi um verksmiðjuna sem veitti Elkem sem minnihluta-aðila stöðvunarvald gagnvart slíkri frestun.
Á meðan Alþb. fór með iðnaðarmál og fjármál í ríkisstj. Gunnars Thoroddsens 1980–1983 hafði það ásamt stjórn Íslenska járnblendifélagsins hf. forystu um að tekið yrði á fjárhagslegum vandamálum sem hrönnuðust upp í rekstri verksmiðjunnar. Var af hálfu viðkomandi rn. lögð mikil vinna í að greina vanda og rekstrarhorfur fyrirtækisins og svara þeirri spurningu, hvort þjóðhagsleg rök væru fyrir að draga úr rekstrinum og loka verksmiðjunni tímabundið eða leitast við að fleyta fyrirtækinu yfir erfiðleikana í von um að aðstæður bötnuðu. Niðurstaða þessara athugana varð sú, að dýrkeyptara yrði að hætta rekstri verksmiðjunnar en leggja fé til hennar. Í samræmi við það mat beitti Alþb. og þáv. ríkisstj. sér fyrir setningu laga nr. 45/1982 um hluthafaráðstafanir og hækkun hlutafjáreignar, þar sem framtagsheimild var hækkuð úr jafnvirði 13.2 í 19 millj. Bandaríkjadollara.
Þannig tók Alþb. ábyrgð á vandamálum þessa fyrirtækis sem orðið var staðreynd þótt flokkurinn væri andvígur ákvörðun um það í upphafi. Inn í matið á stöðu málsins kom að sjálfsögðu atvinnuöryggi starfsmanna verksmiðjunnar. Sú staðreynd að reksturinn hefur tæknilega gengið mjög vel allt frá upphafi var vissulega hvatning til að halda verksmiðjunni gangandi.
Haustið 1982 komu fram hugmyndir af hálfu Elkem um að leita samvinnu við japanskan aðila, Sumitomo Corporation, um aðild að Íslenska járnblendifélaginu. Með bréfi 1. nóv. 1982 féllst iðnrn. á að teknar yrðu upp viðræður um málið með það fyrir augum að tryggja betur grundvöllinn fyrir sölu á framleiðstu Íslenska járnblendifélagsins og rekstrarafkomu þess í framtíðinni. Skilyrt var að íslenska ríkið héldi meirihlutaaðstöðu sinni í félaginu.
Jafnframt var í þessu bréfi til Elkem A/S lýst þeirri skoðun rn. að skynsamlegt væri að taka til athugunar æskilegar og nauðsynlegar breytingar á samningum hluthafa, m. a. varðandi sölu afurða verksmiðjunnar, raforkukaup og tæknisamvinnu.
Í framhaldi af þessu hófust viðræður við Elkem til undirbúnings samningaviðræðna við hinn japanska aðila, Sumitomo, en fyrsti fundurinn með fulltrúum hins síðasttalda var haldinn í Reykjavík í jan. 1983 og aðrir fylgdu á eftir í Osló og Tokyo nokkru síðar.
Í greinargerð, sem var stöðuskýrsla til mín sem iðnrh., dags. 25. maí 1983, drógu þeir sem fóru með samningsgerð af hálfu rn. upp mynd af samningsstöðunni og áherslu af Íslands hálfu í viðræðunum fram að þeim tíma m. a. með svofelldum hætti. Orðrétt segir þar með leyfi hæstv. forseta:
„Í viðræðum þessum hefur íslenski aðilinn lagt áherslu á eftirfarandi:
1. Ísland getur fallist á eignaraðild Sumitomo að Íslenska járnblendifélaginu ef vissum skilyrðum, til þess föllnum að tryggja hagsmuni Íslands og Íslenska járnblendifélagsins, er fullnægt.
2. Helstu atriði af þessu tagi eru:
1. Ísland haldi meirihlutaeign sinni í Íslenska járnblendifélaginu.
2. Elkem verði áfram næststærsti eignaraðilinn að Íslenska járnblendifélaginu.
3. Sumitomo kaupi fast lágmarksmagn af framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins, t. d. 15–20 þús. tonn árlega, á verði sem nemi framleiðslukostnaði að viðbættum eðlilegum hagnaði.
4. Full nýting afkastagetu Íslenska járnblendifélagsins verði tryggð.
5. Samningar Íslenska járnblendifélagsins og Elkem varðandi tækniþóknun og söluþóknun verði endurskoðaðir. (Óskað er eftir því að tækniþóknun lækki úr 3% í 0.5% og söluþóknun lækki eða falli niður.)
6. Rafmagnssamningur Íslenska járnblendifélagsins og Landsvirkjunar verði endurskoðaður með eftirfarandi fyrir augum:
a. Forgangsorkuverð hækki í 17.5 mill.
b. Orkuverðið verði verðtryggt.
c. Orkuverðið verði ákveðið í SDR.
d. Hlutfalli forgangs- og afgangsorku verði hugsanlega breytt.
7. Íslenska járnblendifélagið taki virkan þátt í markaðsfærslu afurða sinna.
Viðræðurnar hafa leitt í ljós að möguleikar virðast á samkomulagi við Sumitomo sem orðið getur Íslenska járnblendifélaginu og íslenska eignaraðilanum mikil hagsbót. Til þess að slíkt samkomulag nái fram að ganga virðist þó nánast nauðsynlegt að fram fari mjög veruleg endurfjármögnun fyrirtækisins í því skyni að auka líkurnar á jákvæðri rekstrarafkomu þess í framtíðinni. Japanski aðilinn gerir þessa endurfjármögnun og arðsemi fyrirtækisins nánast að skilyrði fyrir þátttöku sinni. Á hinn bóginn virðist hann reiðubúinn til að fullnægja óskum Íslands hvað sölusamning snertir. Einnig er þess að geta að hagsmunir hans og Íslands fara saman hvað kröfur gagnvart Elkem, varðandi sölumál og tæknigjald, snertir. Endurfjármögnun Íslenska járnblendifélagsins þýðir að líkindum verulegar nýjar fjárhagslegar skuldbindingar af Íslands hálfu. Þessar skuldbindingar má skoða sem nýja fjárfestingu og meta arðsemi hennar. Þeir reikningar sem unnir hafa verið benda til þess að endurfjármögnun sem þáttur í langtímasölusamningi við Sumitomo geti verið íslenska eignaraðilanum mjög hagstæð.“
Í lok sömu skýrslu til ráðh. rétt fyrir ríkisstjórnarskipti 25. maí 1984 segir:
„Varðandi endurfjármögnun með þeim hætti sem lýst hefur verið virðist sjálfsagt að Ísland geri eftirfarandi kröfur til viðbótar þeim sem lýst hefur verið:
1. Endurgreiðsla sérstaks vaxtalauss hluthafaláns verði eins hröð og greiðslustaða fyrirtækisins leyfir.
2. Ísland eigi kost á því að breyta útistandandi sérstöku hluthafaláni í hlutabréf á sama verði og Sumitomo kaupir þau.
3. Skattinneign (tapreikningur) Íslenska járnblendifélagsins í árslok 1983 verði felld niður. (Þetta er nánast skilyrði fyrir hagkvæmni endurfjármögnunarinnar frá sjónarmiði Íslands.)
4. Hluti af hagnaði fyrirtækisins á næstu árum verði lagður í innlendan fjárfestingarsjóð.“
Við tók ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og nýir samningamenn tilnefndir af Sverri Hermannssyni iðnrh.
Niðurstaða þeirra samninga birtist að hluta í fyrirliggjandi lagafrv. Það felur í sér endurskipulagningu á fjárhag Íslenska járnblendifélagsins hf. sem talin er nauðsynleg til að hægt sé að ganga frá samningum við Elkem A/S og Sumitomo Corporation. Ber að vona að þær ráðstafanir leggi traustari grunn að rekstri járnblendiverksmiðjunnar að Grundartanga. Því verður þó engan veginn slegið föstu.
Þegar litið er á niðurstöður samningaviðræðnanna kemur hins vegar í ljós að það eru hinir erlendu samstarfsaðilar sem fleyta rjómann af þessum samningum, einkum Elkem, nú sem hingað til.
Þetta sést best ef litið er á þær áherslur sem fram voru settar í bréfi iðnrn. 1. nóv. 1982 og í stöðuskýrslu til iðnrh. 25. maí 1983 og vitnað var til hér að framan.
Elkem hirðir um 3% af veltu fyrirtækisins sem „tæknigjald“ svokallað.
Elkem og Sumitomo skipta með sér nær 1% af andvirði afurða í „sölugjald“ svokallað fyrir að annast sölu á framleiðslu verksmiðjunnar.
Raforkusamningurinn við Landsvirkjun, sem telja verður óviðunandi frá byrjun, stendur óbreyttur þótt gert sé ráð fyrir viðbótarsamningi um sérstakar greiðslur ofan á gildandi orkuverð þegar tiltekinni arðsemis- og eiginfjárstöðu er náð hjá félaginu.
Vissulega var samningsstaða Íslands ekki sterk í þessum viðræðum, og hún batnaði ekki við yfirlýsingu Steingríms Hermannssonar forsrh., sem kom fram í dagblaðinu Tímanum 14. sept. 1983, um að til greina kæmi að loka verksmiðjunni „um lengri eða skemmri tíma“, eins og það var þar orðað.
Samt verður að telja niðurstöðuna mun lakari en efni stóðu til. Þrátt fyrir mikla ágalla í fyrirhuguðum samningum vill Alþb. samt ekki bregða fæti fyrir þá fjárhagslegu endurskipulagningu Íslenska járnblendifélagsins hf., sem stefnt er að með þessu frv., og mun sitja hjá við afgreiðslu þess.
Reykjavík, 15. maí 1983.
Hjörleifur Guttormsson.“
Þetta er nál. frá 2. minni hl. iðnn. í þessu máli. Ég gerði við 1. umr. málsins hér í hv. deild ítarlegri grein fyrir mínum viðhorfum í þessu sambandi og þróun mála á liðinni tíð. Vísa ég til þess sem þá kom fram og sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar nú.