16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6071 í B-deild Alþingistíðinda. (5482)
321. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Páll Pétursson:
Herra forseti. Vegna ummæla hv. 3. þm. Reykv. úr ræðustól áðan og tilmæla hv. 5. þm. Austurl. er mér ánægja að skýra frá því hér að Framsfl. hefur ekki lýst stuðningi við byggingu þriggja álvera í eigu útlendinga. Ég held að þetta sé óskynsamleg hugmynd og þaðan af óskynsamlegri hugmynd væri að byggja virkjanir til að gefa þessum verksmiðjum rafmagn. Landið færi á höfuðið með því móti. Þá væri illskárri kostur ef ekki væri hægt að fá stóriðjufyrirtæki til að borga kostnaðarverð fyrir raforku að láta þau líka bera kostnað af virkjunum.
Ég tel að það sé skynsamlegast að Íslendingar ráði sjálfir atvinnufyrirtækjum á Íslandi svo og raforkuverum. En þá verða menn líka að vera menn til að gera skynsamlegar ráðstafanir til að koma orkunni í verð.