16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6071 í B-deild Alþingistíðinda. (5483)

321. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Hér var í dag kvartað yfir því af hv. 5. þm. Vestf. að sá sem hér stendur hefði látið ósæmileg orð falla um þann þm. og hv. 5. þm. Vestf. spurði að því hvort forseti ætti ekki að víta mig fyrir það orðbragð sem ég þá viðhafði. Það verður þó að segjast eins og er að það var barnaskapurinn helber hjá því æðakasti sem hæstv. iðnrh. birtist í hér áðan. Það er alveg með ólíkindum hvað maðurinn er viðkvæmur þegar kemur að þessum stóriðjumálum. Maðurinn tryllist hér aftur og aftur í ræðustólnum, þessi annars skemmtilegi og dagfarsprúði maður. Það er eins og hann megi ekki koma í þennan stól, þá gjörbreytist maðurinn í öllu viðmóti og kastar sér í viðjar persónuleikans með þeim afleiðingum sem menn heyra stundum hér í ræðustólnum. Hæstv. ráðh. leyfir sér í þessum efnum að koma þannig fram við eðlilegum fsp. stjórnarandstöðunnar að það sé eins og menn hafi étið óðs manns skít eða eitthvað þaðan af verra. Og hæstv. ráðh. leyfir sér hér, þegar stjórnarandstaðan er að aðstoða við að ljúka þinghaldinu með eðlilegum hætti, þar sem verið er að fara hér í gegn með fjöldamörg mál og ráðherrar mæta hér fyrir stórmálum á miðnætti, eins og hæstv. landbrh. hér áðan, að atyrða stjórnarandstöðuna fyrir það að bera fram fsp. undir umræðum um járnblendiverksmiðjuna. Það er verið að finna að því að rætt sé um þessi stóriðjumál almennt á sama tíma og rætt er um járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Ég verð að segja alveg eins og er að ég tel ekki að hæstv. iðnrh. farist það vel að ráðast að stjórnarandstöðunni með fúkyrðum með þeim hætti sem hann hefur gert hér í kvöld. Ég tel að honum farist það illa gagnvart þeim góða samvinnuanda sem hefur komið fram hér af hálfu stjórnarandstöðunnar í dag og undanfarna daga. (Gripið fram í.)

Hæstv. ráðh. er að tala um það, vitandi það að verið er að ljúka þinginu eftir helgi, að við eigum að bera fram fsp. með venjulegum hætti. Veit þá ekki ráðh. að hugsanlegt er að ekki verði haldnir fleiri fsp.-fundir í Sþ. eða er hann að benda okkur á að fara upp með málið utan dagskrár sérstaklega? Auðvitað væri vissulega tilefni til að fara upp með þetta mál utan dagskrár. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessa ábendingu og mun ræða það við forseta Sþ. strax og ég næ tali af honum að þessi makalausa yfirlýsing verði tekin til sérstakrar umræðu utan dagskrár. Hæstv. iðnrh. virðist telja að það sé nægilegur tími fyrir þingið til þess að taka hér umr. um þetta mál utan dagskrár. Það skal ekki standa á okkur að hefja þær umr. Það hefur hins vegar verið þannig að stjórnarliðið og hæstv. forseti Sþ. hafa verið treg til að láta hefja hér umr. utan dagskrár um mál þessa síðustu daga. Nú hefur hæstv. iðnrh. óskað eftir því að þessi undarlega yfirlýsing í Dagblaðinu verði tekin hér fyrir utan dagskrár. Þá skal verða óskað eftir því við hæstv. forseta Sþ. að það verði gert þannig að málið fái ítarlega umræðu og meðhöndlun hér á hv. Alþingi áður en því lýkur. Það er engin ástæða til annars en að verða við þessum óskum hæstv. iðnrh.

Hæstv. ráðh. er að gera lítið úr þeim ummælum sem hér er um að ræða í Dagblaðinu, en þó eru þau höfð eftir ráðh. innan tilvitnunarmerkja. Í þessari fréttagrein í Dagblaðinu í dag segir svo með leyfi hæstv. forseta:

„Á næstu vikum standa iðnrh. og samninganefndir í stóriðjumálum í ströngu, funda með Alusuisse eftir viku, með Alcan í júní og Alcoa í júlí,“ — það stendur ekkert hvað þeir ætla að gera í ágúst — „þar sem jafnvel tvöföldun álversins í Straumsvík og ný álver í Eyjafirði og í Þorlákshöfn verða til umræðu. Elkem-menn og fleiri koma út af kísilmálmveri.“

Síðan segir innan tilvitnunarmerkja eftir hæstv. ráðh.:

„Það er í myndinni núna að ræða við Alusuisse um 50% stækkun í Straumsvík 1988 og 50% 1990–91.“ Það er í myndinni núna. Hæstv. ráðh. segir að málið sé ekki komið á það stig að það sé rætt einu sinni í ríkisstj. Hvers lags ríkisstj. er eiginlega í landinu ef ekki er rætt um að hugsanlega sé í myndinni 50% stækkun í Straumsvík 1988 og aftur 50% 1990–91?

En það er meira blóð í kúnni því að hæstv. ráðh. heldur áfram:

„Ef Alcan-forstjórunum líst á Eyjafjarðardæmið.“ Ef þeim líst vel á Eyjafjarðardæmið! Ef þeim líst vel á sig í Eyjafirðinum, Alcanforstjórunum, þegar þeir bera þar niður, ef þeim list vel á sig þar! — „þarf að hafa eitthvað fyrir Alcoa.“

Já, Alusuisse í Straumsvík og svo eru það Alconforstjórarnir. Þeir mega eiga val á Eyjafirði og ef þeim líst vel á sig þar verður að hafa eitthvað handa þeim hjá Alcoa og þá hef ég Þorlákshöfn, segir hæstv. ráðh. Hann greinir að vísu ekki frá því hvaða stað hann hefur, eins og hann orðar það, ef svo færi að fjórði auðhringurinn gæfi sig fram og litist vel á sig einhvers staðar þegar hann væri búinn að afhenda Eyjafjörð og Þorlákshöfn líka. (Gripið fram í.) Það er hugsanlegt að hann sé að gjalda keisaranum það sem keisarans er. Síðan segir hæstv. ráðh.:

„Það bíða þrjár virkjanir fullhannaðar syðra.“

Það verður inni í myndinni, segir ráðh., að Alusuisse fái 50% stækkun í Straumsvík 1988 og aftur 1990–91 og ef Alcanforstjórunum líst á Eyjafjarðardæmið þarf að hafa eitthvað fyrir Alcoa og þá hef ég Þorlákshöfn. Það bíða þrjár virkjanir fullhannaðar syðra.

Síðan segir hæstv. ráðh.:

„Þetta er allt mikið mál og núna, þegar menn eru farnir að tala af viti um orkuverð sem nægi fyrir framleiðslukostnaði orkunnar, kemur þetta allt til álita. En þetta er margra ára verkefni og ljóst að fyrst þarf að gera flókna samninga vel úr garði og síðan líða ár þangað til ný álver rísa.“

Auðvitað er hæstv. ráðh. að leggja grunninn að þessari framtíð. Þetta er framtíðardraumsýn Sjálfstfl.: álver um allt land. 20 álver var talað um hérna fyrir tveimur áratugum. Það er sú draumsýn sem á að fara að framkvæma undir forustu Sverris Hermannssonar og ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Og síðan er þessu bætt við með orkuverðið að það kæmi jafnvel til greina að semja við þá um allt saman, bæði orkuframkvæmdirnar og álverin. Hæstv. ráðh. segir: Takið þið frekar mark á orðum mínum en orðum Dagblaðsins. Þetta er haft hér eftir ráðh. innan tilvitnunarmerkja allt saman.

Hæstv. ráðh. lýsti því hér áðan að þessi mál væru á könnunarstigi, en það væru ekki til orðnir endanlegir samningar. Fyrr mætti nú líka vera! En það er þessi framtíð sem íhaldið vill búa börnum þessa lands. Það er að vinna í verksmiðjum hjá útlendum stórfyrirtækjum. Og þegar þetta er nefnt við hæstv. ráðh. á næturfundi tryllist maðurinn og vill meina að stjórnarandstaðan fari með fleipur þó að haft sé eftir ráðh. út úr beinum tilvitnunarmerkjum í einu dagblaðinu í dag.

En ég vil endurtaka það, sem ég sagði hér áðan, að í tilefni af því að hæstv. iðnrh. hefur óskað eftir því að þetta mál verði tekið fyrir utan dagskrár skal það verða gert, enda trúi ég ekki að hæstv. forseti Sþ. leggi á móti því. Þó að mikil verk bíði þingsins enn og knappur tími sé eftir skal verða farið fram á að hér hefjist umr. utan dagskrár um þessi mál. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þá ábendingu.

Að lokum þakka ég hv. þm. Páli Péturssyni fyrir það sem hann sagði um þessi mál. Ég skildi hann svo, að hann teldi ekki að það kæmi til greina að útlendingar ættu virkjanirnar hér á landi. Þó verð ég að játa að ummæli hans voru allloðin og voru lesin upp af blaði. Þau voru í rauninni afskaplega framsóknarleg. Það eru vafalaust í þeim setningum einhverjar smugur ef ég þekki þá framsóknarmenn rétt. Væntanlega gefst kostur á að yfirheyra þá líka þegar utandagskrárumr. hefst hér sem hæstv. iðnrh. hefur haft frumkvæði að að hér fari fram áður en þinginu lýkur.