16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6075 í B-deild Alþingistíðinda. (5485)
321. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Guðmundur Einarsson:
Virðulegi forseti. Ég fagna því að það hefur komið fram ósk frá hæstv. iðnrh. um að hér verði umræða um orkumál. Hins vegar veit ég ekki hvort hægt er að treysta því að það verði rými í dagskránni til þinglausna þannig að mig langaði til að koma að nokkrum punktum. Ég held að hæstv. iðnrh. verði að taka því að menn ræði þessi mál á síðustu dögum þingsins og jafnvel í umr. sem hér stendur yfir, vegna þess að það eru skyndilega mjög margar sólir á lofti. Nú eru hérna í þinginu umræður um kísilmálmverksmiðju, það eru umræður um járnblendi, eða hafa verið hérna á síðustu vikum, ef ég man rétt í síðustu viku. Þá höfum við heyrt ýmsar hugmyndir um álverksmiðjur, jafnvel víða um land. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðh. í gær að hann hefur ýmislegt á prjónunum í sambandi við þessi mál, viðræður við hina og þessa aðila í sumar og vafalaust verður margt á dagskránni. Það er mjög eðlilegt að þm. æski þess að fá að vita á hvaða stigi þessar hugmyndir og þessar umr. eru vegna þess að þeir horfa nú fram á að þingið standi ekki nema kannske örfáa daga til viðbótar. Ég veit hins vegar ekki hvort þessar rjúkandi verksmiðjur um landið allt er sú framtíðarsýn í atvinnumálum sem við Íslendingar ættum að hafa ríkast í huga.
Það er mjög fróðlegt að kynna sér upplýsingar og kynna sér skýrslur, sem hægt er að nálgast með lítilli fyrirhöfn, um það hvaða stefnu þessi mál eru að taka í löndunum í kringum okkur, um t. d. þátt stóriðjunnar í atvinnutækifærum og þátt smáfyrirtækjanna í því að veita stöðugleika og grósku í atvinnulífið. Ég vil í því sambandi benda á nýframlagða þáltill. þingflokks Bandalags jafnaðarmanna um eflingu atvinnulífs með stuðningi við stofnun smáfyrirtækja. Þar er bent á ýmsar upplýsingar sem gefa í skyn að það sé ekki stóriðja sem Vesturlönd leggi áherslu á, það sé ekki sú framtíðarsýn sem við eigum að huga að, heldur þvert á móti atvinnurekstur nýtæknigreinanna svokölluðu sem ekki byggjast upp á stóriðjufyrirtækjum heldur byggjast upp á smáfyrirtækjum. Það er t. d. mjög fróðlegt að kynna sér hvernig nýjasta atvinnubyltingin sem allir hafa nú á orði, líftæknibyltingin svokallaða, hefur sprottið upp í Bandaríkjunum. Það sem hefur þar gerst er að smáfyrirtæki, jafnvel af stærðinni 10–20 starfsmenn, hafa síðan um 1970 sprottið upp og fjöldi nýstofnaðra fyrirtækja árið 1982 var milli 100 og 200. Það eru þessi fyrirtæki og einkaframtak og þor og dugur fólks sem að þeim stendur sem er að skapa algerlega nýja framtíðarsýn og algerlega nýtt atvinnulíf. Þetta er í raun og veru það sama sem gerðist við síðustu atvinnulífsbyltingu, í sambandi við rafeindaiðnaðinn. Þetta eru hugtök sem mönnum hafa verið töm á ýmsum gleðistundum og í hátíðaræðum og skálaræðum á Íslandi síðasta árið kannske, að það þurfi að brydda á nýjungum og auka fjölbreytni og fjölga burðarásum o. fl. Menn hafa um þetta ýmis orð, en þegar á hólminn er komið renna menn í gömlu förin. Það er eins og hugmyndirnar og þorið beinist alltaf að gömlu lausnunum og þær eru í þessu tilfelli stóriðjan.
Það er ekki þessi framtíðarsýn, hæstv. ráðh., sem við teljum að við viljum fá hérlendis. Við vildum gjarnan að glæstar hugmyndir, menn til viðræðu og annað, sem orðað er í sambandi við stóriðjuna, kæmi fram í öflugri viðleitni til nýsköpunar á sviði smáfyrirtækjareksturs vegna þess að hvort sem við viljum eða ekki, Íslendingar, erum við í farangri umhverfisins. Við verðum að fylgja því sem gerist í kringum okkur og hvort sem við viljum eða ekki munu Vesturlönd í kringum okkur ekki sinna stóriðjunni. Þau munu byggja upp atvinnulíf byggt á rekstri smáfyrirtækja í nýtæknigreinum. Það er stefna sem við verðum, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að taka upp og því fyrr því betra.