16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6078 í B-deild Alþingistíðinda. (5494)
220. mál, ábúðarlög
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyt. á ábúðarlögum.
Frv. þetta er flutt samfara frv. til breyt. á jarðalögum. Í því frv. er lagt til að landnámsstjórn verði lögð niður og að reglum um viðurkenningu á nýjum býlum verði breytt þannig að samþykki landbrn. þurfi til að stofna nýtt býli til búvöruframleiðslu, enda séu uppfyllt ýmis skilyrði sem fram koma í frv. Er lagt til í frv. þessu að lögum nr. 64/1976 verði breytt til samræmis við þær tillögur sem fetast í framangreindu frv. til breytinga á jarðalögum.
Þetta frv. var, eins og frv. um jarðalög, skoðað ítarlega í hv. landbn. Ed. Ég mælist því til þess að hv. landbn. Nd. sjái sér fært að afgreiða þessi frv. bæði nú fyrir þinglok. En að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.