17.10.1983
Neðri deild: 3. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
22. mál, þingsköp Alþingis
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um þingsköp Alþingis, sem er flutt eftir að orðið hefur samkomulag með öllum flokkum á Alþingi um að fjölga í fjvn. í tíu. Með því móti geta allir þingflokkar á Alþingi átt fulltrúa í fjvn.
Þetta mál þarf að sjálfsögðu að fá skjótan framgang og geri ég ekki tillögu um n. þar sem hér er um samkomulagsmál að ræða.