16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6079 í B-deild Alþingistíðinda. (5500)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að mótmæla því að haldið sé áfram frekari fundahöldum. Það er búið að halda hér kvöldfund dag eftir dag og það er verið að ræða um að taka fyrir á morgun skýrslu utanrrh. hér í Sþ., auk þess sem gert er ráð fyrir að kjördæmamálið komi jafnvel til umr. á morgun og auk þess sem iðnrh. hefur pantað umr. utan dagskrár um álmálið. Það er því ljóst að hér verður kvöldfundur annað kvöld. Það er með öllu fráleitt, að mínu mati, að leggja það á starfslið Alþingis og þm. að þessum fundi verði haldið lengur áfram. Ég geri því kröfu til þess, því að það er engin ástæða til þess að vera að keyra þetta mál svona fram, að þessum fundi verði slitið. Nd. hefur þegar setið á löngum fundum, afkastað miklu, komið frá mörgum lagafrv., bæði til nefnda og jafnvel til Ed. og til ríkisstj. sem lögum, þannig að það er gersamlega fráleitt af ríkisstj. að vera að beita þingið þessu ofbeldi sem núna stendur til.
Á dagskrá þessa fundar er skattskylda innlánsstofnana og ég veit ekki betur en það séu fjórir menn á mælendaskrá. Það er því augljóst mál að þeirri umræðu getur ekki lokið fyrr en eftir nokkra klukkutíma. Hér er um að ræða þannig mál að það krefst ítarlegrar umræðu hér í hv. Nd. og vandséð er að henni ljúki áður en nýr dagur rennur. Þess vegna er í rauninni alveg fráleitt að halda þessum fundi áfram. Ég vil biðja hæstv. forseta Nd., og ég tek fram að ég er að sjálfsögðu ekki að ásaka hana á einn eða annan hátt, að kanna hvort ekki er unnt að fresta nú þessari umr. og taka til við hana á ný þegar fundur verður haldinn á eðlilegum tíma hér í Nd.
Ég mótmæli þessum vinnubrögðum ríkisstj. Það er búið að keyra hér fram í dag tugi mála, búið að halda hér fjölda funda í allan dag. Það er verið að halda nefndarfundi í stjórnarskrárnefnd á sama tíma og hér stendur yfir fundur. Síðan er ætlunin að halda hér áfram umr. um þetta mál sem er algerlega þarflaust að ræða einmitt nú. Ég geri því til þess kröfu að fundinum ljúki núna, umr. verði frestað og menn taki til við málin á nýjan leik á morgun því að það er augsýnilegt að á næsta sólarhring verða langir fundir, það verða fundir hér allan daginn á morgun og annað kvöld. Ég skora á hæstv. forseta að kanna hvort ekki getur orðið samkomulag um að fresta þessari umr. nú.