17.05.1984
Efri deild: 104. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6159 í B-deild Alþingistíðinda. (5542)
327. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Skúli Alexandersson):
Virðulegi forseti. Frv. þetta tengist frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. að selja hlutabréf ríkissjóðs í Iðnaðarbanka Íslands. Minni hl. iðnn. — ég og hv. þm. Karl Steinar Guðnason — er andvígur sölu ríkisins á bankanum og því einnig mótfallinn þeirri breytingu á lögum um bankann sem felst í þessu frv. Við leggjum til að það verði fellt.