17.05.1984
Efri deild: 104. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6173 í B-deild Alþingistíðinda. (5559)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Valdimar Indriðason:

Herra forseti. Það hafa verið höfð mörg orð um frv., sem hér liggur fyrir, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum og vægast sagt finnst mér gagnrýni stjórnarandstöðunnar vera mjög lin í þeim efnum og fátt bitastætt í henni.

Ég ætla ekki að blanda mér í umr. um einstakar greinar, það munu aðrir gera, en það er ein grein sem ég vek athygli á vegna framkominnar fréttatilkynningar Seðlabankans í morgun í sambandi við að lækka afurðalán um 5% og það á að ske á næstu tveimur til þremur mánuðum.

Ég held að þarna sé farið inn á mjög hættulega braut og boðaðar þær þrengingar í atvinnurekstri sem verður ekki við unað, einkum í sjávarútveginum. Þetta verður að koma skýrt fram. Í dag er þetta þannig, að endurkaup Seðlabanka eru 52% af hverri veðsetningu. Út á þetta lánar viðskiptabankinn 40% í viðbót. Hlutfall Seðlabanka á að lækka á næstu mánuðum niður í 47% og ætlast til þess að viðskiptabankarnir láni það sem á vantar en ef viðskiptabankarnir geta ekki bætt sinn hlut verður hlutfatlið komið niður í 65.8% og það rekur enginn fyrirtæki með því móti. Því miður eru viðskiptabankarnir þannig settir að þeir hafa ekki fjármagn til þess að bæta því við sem með þarf. Ef af verður þurfa útlán þeirra að hækka úr 40%, að mér sýnist, í rúm 56% til þess að sama hlutfallið haldist og var og er hér í dag.

Ég sagði að það kæmi einkum illa við sjávarútveginn og hans framleiðslu vegna þess að hann er algjörlega bundinn með allt sitt í útflutningi. Þetta kemur einnig að hluta til niður á iðnaði, en það er langerfiðast og sárast hjá sjávarútveginum. Ég verð að mótmæla þessu. Það hefur tíðkast of lengi hjá okkur Íslendingum að nota sjávarútveginn sem hemil á það ef eitthvað er að ske í fjármálum þjóðarinnar. Það er ekki svo gott í búi þar núna að hann þoti að það séu stórlækkuð útlán þar á næstu mánuðum. Þetta væri möguleiki ef Seðlabankinn sleppti 5% skyldubindingunni, þá mætti pressa viðskiptabankana. Þeir gera það ekki eins og er, það er ég handviss um.

Ég bendi alvarlega á þetta. Það geta orðið fleiri en Eyjólfur Konráð Jónsson sem hafa eitthvað að athuga við 26. gr. þessa frv. þegar til atkv. kemur ef þarna verður ekki ráðin bót á.