17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6207 í B-deild Alþingistíðinda. (5614)

Um þingsköp

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég vil eindregið taka undir þær óskir, sem hér hafa komið fram, um að fundi verði nú frestað þannig að bæði þm. og ekki síður starfsfólk þingsins, eins og hv. þm. Karvel Pálmason benti á, geti fengið þá hvíld sem því er af líffræðilegum ástæðum nauðsynleg. Því tek ég eindregið undir þá ósk og þær óskir fleiri þm. sem hér hafa komið upp í kvöld.