17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6213 í B-deild Alþingistíðinda. (5625)
Um þingsköp
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Ég hef núna rætt við nokkra þm. um það hvort ekki væri möguleiki á að ná hér samkomulagi um að ljúka fundarstörfum fljótlega upp úr þessu. Ég fer nú fram á að 2. umr. um kosningalagafrv. og stjórnarskipunarlögin megi ljúka hér í nótt og það helst sem fyrst, atkvgr. verði frestað til morguns og 3. umr. fari þá fram í upphafi fundar á morgun. Þessa tillögu geri ég þá í trausti þess að menn hefji ekki sama leikinn á morgun, heldur taki sér hóflegan tíma í 3. umr. um þessi mál. Þeir sem ég hef rætt við hér nú fyrir skömmu, og ég þarf ekkert að vera að nafngreina neinn, hafa tekið vel í þessa hugmynd. Ég spyr þá sem þegar eru á mælendaskrá hvort þeir gætu ekki stytt mál sitt ef við mættum ljúka með sómasamlegum hætti þessari umr. núna sem fyrst.