10.11.1983
Sameinað þing: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (563)
Tilkynning frá ríkisstjórninni
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Eins og komið hefur fram áður í þessum umr. barst stjórnarandstöðunni ekki vitneskja um að þessi tilkynning mundi hér verða gefin eða sú ákvörðun kynnt, sem hér hefur nýlega átt sér stað, fyrr en rétt fyrir kl. 2. Hæstv. utanrrh. taldi að þar hefði verið rétt að farið og sjálfsagt verður ekki að því fundið beinlínis, en það hefði verið frekar í samræmi við það sem tíðkast hefur hér í þinginu að stjórnarandstaðan hefði fengið af þessu að vita með nokkru meiri fyrirvara, það hefði verið heldur kurteislegra, sýnist mér, miðað við það sem hér hefur tíðkast. En við skulum ekki fást um það.
Ég held að það verði að segjast að mjög ánægjulegt er að ríkisstj. skuli hafa séð núna — loksins að vísu — að henni var ekki stætt á því að afnema mannréttindi með þeim hætti sem gert hafði verið ráð fyrir í þessum brbl., afnema samningsréttinn. Í rauninni spyr maður sjálfan sig, þó að hæstv. utanrrh. hafi tekið fram hér áðan að það hafi verið meiri hluti fyrir þessum ákvörðunum ríkisstj. á sínum tíma, hvort sá meiri hluti hafi ekki einmitt verið að hverfa, því við höfum fyrir okkur að þrír þm. ríkisstj. höfðu gefið yfirlýsingar þar að lútandi. En það er ekki heldur aðalatriðið. Ég tel að hér sé fyrst og fremst um það að ræða að fólkið í landinu, stjórnarandstaðan og verkalýðshreyfingin hafi unnið verulegan sigur. Það er sigur fyrir verkalýðshreyfinguna að þessu ákvæði skuli nú kippt burtu. Þetta er sigur fyrir stjórnarandstöðuna, sem hefur lagt á það ríka áherslu að þetta ákvæði væri ekki inni í lögunum, og sigur fyrir þá menn alla sem hafa lagt áherslu á að þetta ákvæði varðandi mannréttindin í landinu skyldi vera í gildi.
En þetta er líka sigur fyrir þingræðið, því að það er í rauninni ekki fyrr en þingið fer að fjalla um þessi mál sem hreyfing kemst á málin. Og ég vil minna á að stjórnarandstaðan gerði kröfu um það á liðnu sumri að þingið yrði kallað saman til að fjalla um málið. Við rökstuddum það m.a. með því að það væru ýmis atriði sem venjulega tækju breytingum í meðförum þingsins þegar stjórn og stjórnarandstaða færu að ræða málin. Það. hefur sýnt sig að við höfðum rétt fyrir okkur í þessum efnum og að því leytinu hefur þingræðið í rauninni líka unnið hér sigur.
Ég tel að hér sé um verulegan áfanga að ræða hvað það varðar að sniða agnúa af þeim ákvörðunum sem ríkisstj. hafði boðað í efnahagsmálum og sett ýmiss konar bráðabirgðalög um. Ég óska þess að í framhaldsmeðferð þingsins á þessu máli og öðrum málum takist að sníða enn frekari agnúa af þeim frv. sem ríkisstj. hefur lagt fram, ýmist í formi brbl. eða með öðrum hætti, þannig að hér komist á betri efnahagsstefna en ríkisstj. hefur fylgt.