10.11.1983
Sameinað þing: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (564)

Tilkynning frá ríkisstjórninni

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð í tilefni þeirrar tilkynningar sem við urðum áheyrendur að hérna.

Ég fagna þeim sinnaskiptum sem átt hafa sér stað hjá ríkisstj. Ég fagna þeim sinnaskiptum sem Sjálfstfl. hefur tekið og orðið hafa þessa valdandi. Ég fagna sigri stjórnarandstöðunnar og launamanna í þessu landi og ég fagna sigri lýðræðisins. Ef einhver vafi leikur á um að þessi brbl. hafi verið sett án þess að fullkannað væri að stuðningur væri fyrir hendi, þá tel ég það rökstyðja enn betur till. sem BJ hefur lagt fram um afnám brbl.-réttar. Þessi niðurstaða hvetur okkur öll í þessum sal til áframhaldandi baráttu gegn takmörkun samningsréttar, sem þó er enn fyrir hendi, og fullri endurheimt mannréttinda.