18.05.1984
Efri deild: 105. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6220 í B-deild Alþingistíðinda. (5647)
Um þingsköp
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Já, það væri kannske oft full ástæða til að menn hefðu með sér prjónana til að róa taugarnar á síðustu dögum þingsins, en sá siður er ekki kominn upp enn. Hver veit hvað gerist á tímum jafnréttis. En ég vil upplýsa að það eru ekki þingflokksfundir fram undan um ein eða önnur mál heldur, eins og ég sagði, þarf forseti að gefa sér tíma til að átta sig á þeim málum sem við þurfum að taka hér á dagskrá, eins og allir hv. þdm. vita að við þurfum að gera. Sú er ástæðan fyrir þessari frestun. Ég þakka hv. 8. þm. Reykv. fyrir að hann tók það fram að þetta væri . skiljanlegur frestur þrátt fyrir allt.