18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6229 í B-deild Alþingistíðinda. (5663)
Um þingsköp
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Þar sem sýnt er að atkvgr. um þetta mál tekur sjálfsagt nokkurn tíma og þar sem samkomulag mun hafa verið gert í gær um að ljúka hér fundum um kl. 7 og hafa ekki kvöldfundi, — þó ég hafi að vísu ekki verið aðili að því samkomulagi skal ég engar brigður á það bera síður en svo, — þá vildi ég beina því til forseta hvort ekki mætti láta þessa atkvgr. bíða, fresta henni um stund vegna þess máls sem ég mun nú vekja athygli á.
Hér hefur um nokkurt skeið verið á dagskrá 71. mál Ed. Það var á dagskrá, virðulegi forseti, síðast í gær. Þá var komið fram nál. minni hl. í málinu, en þá kom fram ósk formanns n. um að málinu yrði frestað þar til meiri hl. hefði skilað nál. Enn hefur ekkert nál. borist og raunar hef ég haft af því spurnir, þótt óformlega sé, að ekkert nál. muni berast. Nú hefur virðulegur forseti sagt mér að þetta mál muni koma á dagskrá, en ég vil beina þeirri spurningu til forseta í ljósi þeirrar staðreyndar að talað hefur verið um að ljúka hér fundum klukkan 7 og mér er alveg jafnljóst og forseta að þetta mál þarf töluvert langa umr. hvenær megi vænta þess að þetta mál komi hér á dagskrá og hvort ekki sé alveg tryggt að málið fái þá lýðræðislegu meðferð að það gangi til atkvæða. Ég á hér við 71. mál, um breyt. á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins og þær till. sem komið hafa fram og fyrir liggja í málinu.
Ég spyr vegna þess að ég óttast að þau öfl hafi nú tekið völdin í þessu máli sem vilja ekki að það nái fram að ganga, sem vilja að það gerspillta viðskiptasiðferði eða siðleysi sem í ljós hefur komið á undanförnum dögum fái að líðast hér áfram, að neytendur verði fótum troðnir áfram eins og verið hefur. Ég óttast að þau öfl ráði hér ferðinni sem líkja mætti við nátttröll sem dagað hefur uppi á heiði eða eigum við að segja snjókarla á vordögum sem hafa kartöflur fyrir augu og gulrætur fyrir nef og finna ekki fnykinn af þeim ósóma sem hér er á ferðinni, og ég spyr hvort Sjálfstfl. fórni nú hagsmunum á altari Sambands ísl. samvinnufélaga, hvort Sjálfstfl., og þar undanskil ég ákveðna þm. sem ég veit að eru þessu ósammála, eins og hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson, hæstv. fjmrh. og kannske fleiri, hvort Sjálfstfl. sé orðinn svo flæktur í hagsmunaneti Sambands ísl. samvinnufélaga, sem sést best á þessum dögum hvernig tvinnast saman við Framsfl. á hinu háa Alþingi, að flokkurinn megi sig hvergi hreyfa og hin mikilsverðustu mál nái ekki fram að ganga, hagsmunamál neytenda.
Ég ítreka spurningar mínar til virðulegs forseta um það hvenær megi vænta þess að þetta mál komi til umr. í þessari hv. deild, hvort ekki sé tryggt að málið muni látið ganga til atkv. þannig að þingviljinn komi í ljós eða hvort halda eigi áfram að beita einhvers konar ólýðræðislegum bolabrögðum. Þar á ég ekki við hæstv. forseta í neinu tilliti, en það eru önnur öfl, sem ráða ferðinni hér í þessu máli, sem koma í veg fyrir að þetta mál hljóti eðlilega umr. og eðlilega afgreiðslu hér á hinu háa Alþingi.
Ég gæti haft um þetta mörg orð fleiri, forseti, en í ljósi þess hvernig tíma okkar er háttað núna mun ég ekki hafa þau fleiri. En ég áskil mér allan rétt til að tala um þetta mál og þá þingsköp ef þörf krefur eins og mér þurfa þykir þegar þar að kemur.