18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6230 í B-deild Alþingistíðinda. (5664)
Um þingsköp
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Vegna fsp. hv. 5. landsk. þm. hef ég þau svör að gefa að þau mál sem eru hér á dagskrá munu væntanlega verða tekin til umr. eftir því sem tími gefst til til kl. 7 í kvöld. Ég vil í sambandi við það að hér verður ekki kvöldfundur minna hv. þdm. á þá umr. sem fór fram um þingsköp í upphafi fundar í gær. Vegna kvöldfundar þá var ákveðið að ekki yrði níðst frekar á vinnutíma hv. þdm. með því að halda aftur kvöldfund í kvöld. Það væri að meinalausu fyrir forseta að sitja hér áfram í kvöld, en það er af tillitssemi við hv. þdm. vegna gagnrýni þeirra svo og við starfsmenn þingsins að ákveðið var að hér yrði ekki kvöldfundur. Það eru hér þýðingarmikil mál á dagskrá, eins og ég veit að hv. 5. landsk. þm. er mér sammála um, það mál sem við ætlum nú að fara að greiða atkv. um og annað mál hér sem þarf væntanlega að fá afgreiðslu og komast aftur til Nd., 6. mál á dagskrá. Ég treysti mér ekki til annars en að reyna að koma þessum málum áfram. Þess vegna verður nú haldið áfram með dagskrána og atkvgr. fer þá fram um 4. dagskrármálið.