18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6230 í B-deild Alþingistíðinda. (5665)

Um þingsköp

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr. En mér þykir vert að geta þess að ég fór ekki fram á að fundi yrði frestað hér í gær í skjóli meiri hl. í landbn. Ed. Alþingis. Þannig var við afgreiðsluna í gærmorgun og reyndar líka á þriðjudagsmorgun að í hvorugu tilvikinu mætti fullskipuð landbn. og með vissum hætti byggði ég afstöðu mína á mati nm. um afstöðu málsins. Það reyndist svo í rauninni strax eftir fundinn að ekki var stuðningur meiri hl. fyrir þeirri till. sem ég lagði til í n. Mér fannst af þessari ástæðu, og með því að þetta mál hefur verið unnið með sama hætti og önnur mál í þeim n. sem ég hef stjórnað í fullu samráði við minn þingflokk og mína forustumenn, að það yrði að fjalla um málið í þingflokki Sjálfstfl. áður en það yrði tekið hér til umr. Það var af þeirri ástæðu sem óskin um frestun kom fram. Það lá sem sagt fyrir að ekki var meiri hl., eins og ég hafði sagt, á landbúnaðarnefndarfundinum í gærmorgun fyrir þeirri till. sem ég bar þar fram. Í framhaldi af því hef ég ákveðið að halda fundi í landbn. Ed. Alþingis og leitast við að hafa hann fullskipaðan, annaðhvort í kvöld eða í fyrramálið, og væntanlega fást þá alveg skýrar niðurstöður í afstöðu n.