18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6232 í B-deild Alþingistíðinda. (5670)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég hef tvisvar sinnum beint þeirri spurningu til forseta hvort ekki megi treysta því að þetta mál fái þá afgreiðslu að það gangi hér til atkvæða með eðlilegum hætti. Ég get ekki gert annað en ítrekað þessa spurningu enn einu sinni og vek athygli á því að við henni hefur ekki fengist svar. Enn einu sinni spyr ég: Geta þdm. ekki treyst því að 71. mál fái að koma til atkvæða í þessari hv. þd. með eðlilegum hætti? Ég beini þessari spurningu í þriðja sinn til virðulegs forseta og óska svars.