18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6232 í B-deild Alþingistíðinda. (5673)
Um þingsköp
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Virðulegi forseti. Um þingsköp ætla ég aðeins að segja þetta, að ég á erindi í efnisumræðu um málið þegar það kemur á dagskrá. Hæstv. forseti hefur svarað eins og efni standa til, en ef hv. þdm. eru ekki ánægðir með þau svör verða þeir að ganga til þess að athuga um vilja meiri hl. Það vill svo einkennilega til að menn tala hér um bolabrögð í tíma og ótíma, en eigum við ekki fyrst að athuga hver verður vilji meiri hl. í þessu máli? Við svo búið hljóta menn að athuga hvort bolabrögðum er beitt eða ekki. (EG: Um það er ekki beðið.) Þegar málið kemur á dagskrá hlýtur að reyna á það. (EG: Við óskum eftir að það komi á dagskrá.)