18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6233 í B-deild Alþingistíðinda. (5679)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Nú eru aðeins þrír stundarfjórðungar eftir af fundartíma hér, eins og um var samið og ég minntist á áðan, og ég finn mig knúinn til að mótmæla þeim vinnubrögðum sem hér eru viðhöfð, þ. e. að nú skuli tekið fyrir 6. mál á dagskrá sem ljóst er að þarf allítarlega umfjöllun hér í Ed. Það mun áreiðanlega ekki veita af þeim tíma sem eftir er fram til kl. 7 nú síðdegis til að fjalla um það mál. Hins vegar hefur verið hlaupið yfir 71. mál, þ. e. 2. mál á dagskrá deildarinnar, sem þó var búið að lofa að kæmi til umræðu á þessum fundi. Þetta eru algerlega óviðunandi vinnubrögð og ekki til þess fallin að greiða fyrir samstarfi um þingstörf á lokadögum þingsins. Ég legg á það þunga áherslu að það er algerlega óviðunandi frá mínu sjónarmiði hvernig hér er staðið að verkum núna og ég kemst ekki hjá því að segja að það sjónarmið mitt mun endurspeglast í afstöðu til annarra mála og afgreiðslu mála yfirleitt það sem lifir þingsins, ef beita á hér slíkum vinnubrögðum. Ég hef áður talað hér um þinghneisu. Ég held að við verðum alvarlega að gæta að okkur í vinnubrögðum ef svona á að halda hér áfram, ef svona á að fótumtroða rétt stjórnarandstöðunnar. Hæstv. iðnrh. talaði áðan um meiri hl. og minni hl. Við skulum láta liggja milli hluta hvort er hvað í þessu tilviki, en ég ítreka að hér er um að ræða vinnubrögð sem ég get ekki sætt mig við og sem eru gersamlega óviðunandi, að mér finnst, frá sjónarhóli stjórnarandstöðuflokks. Svona lagað er ekki hægt að líða. Ég geri mér alveg grein fyrir því að við þm. stjórnarandstöðunnar höfum kannske ekki mörg vopn eða mikla aðstöðu til að láta óánægju okkar í ljós með þessi vinnubrögð aðra en að tala hér um þingsköp og mér er það ekki sérstaklega geðfellt að eyða þessum fáu mínútum núna til þess, en ég finn mig knúinn til þess vegna þess að þessu er engan veginn hægt að una. Þetta getum við ekki sætt okkur við.