18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6234 í B-deild Alþingistíðinda. (5680)
Um þingsköp
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. 2. dagskrármálið á dagskránni á þessum fundi ber heitið Framleiðsluráð landbúnaðarins, 2. umr. Fyrir liggur álit 1. minni hl. n., en meiri hl. kom ekki fram í n. Málið er því hér til afgreiðslu. Ég tel það mjög einkennileg og óvenjuleg vinnubrögð ef á ekki að taka málið til umr. í dag. Við erum búnir að vera hér á fundi í allan dag frá því kl. 2, með nokkrum hléum að vísu. Það hefur sem sagt verið tækifæri til að taka málið á dagskrá. Ég skildi orðræður manna á s. l. kvöldi þannig, þegar þá komu fram óskir um að taka málið á dagskrá, að það yrði nú ekki þá vegna þess að meiningin væri að taka málið á dagskrá í dag. Þó að ég sé ekki aðili þessa máls og eigi hvorki sæti í nefndinni sem um það hefur fjallað né sé flytjandi þess, þá verð ég að taka undir með seinasta ræðumanni, hv. þm. Eiði Guðnasyni, að mér finnst það ekki við hæfi að fara þannig að að málið komist ekki til umr. á þessum fundi. Ég tek því mjög eindregið undir óskir hans.