18.05.1984
Neðri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6256 í B-deild Alþingistíðinda. (5705)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af þessum orðum vil ég taka það fram að það er rétt að fram fóru ítarlegar viðræður um það hér á næturfundi hvernig fundum yrði hagað í dag. Ég vona að hægt verði að standa við þetta samkomulag þó að svo hafi til tekist af sérstökum ástæðum að þingfundarhlé varð eitthvað lengra en til stóð og einnig það að forseti mun, eins og hann reyndar sagði frá þegar í upphafi fundar, taka fyrir örfá mál áður en gengið yrði til þess verks að ræða um kosningalögin og stjórnarskipunarlög. Ég vil biðja hv. 3. þm. Vestf. að virða þetta. Það mun ekki liða löng stund þangað til umr. um þetta mál geta hafist.

Ég vænti þess að þeir hv. þdm., sem kvatt hafa sér hljóðs í þessu máli, tali ekki mjög lengi, einmitt með tilliti til þess, sem forseti hefur lagt mikla áherslu á á þessum fundi, að aðstæður eru að ýmsu leyti erfiðar og óvenjulegar. En forseti hefur fullan vilja til þess að reyna að verða að sem mestu liði um þessa fundarstjórn í erfiðri aðstöðu.