18.05.1984
Neðri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6258 í B-deild Alþingistíðinda. (5710)

Um þingsköp

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Það eru bara örfá orð út af því sem hæstv. forsrh. sagði. Forseti deildarinnar kom til mín og spurði mig hvort ég gæti ekki fallist á það að fresta minni ræðu þangað til í dag og ég tjáði honum að ég væri fús til þess. Ég hefði krafist þess að fundir yrðu ekki fjórða daginn í röð fram á nótt en tók það fram að ég hefði engan hug á að tefja þessa umr. Hins vegar mundi ég tala hér í dag og gerði þá kröfu að formenn flokkanna yrðu viðstaddir þá umr. ef ég ætti að fallast á þetta samkomulag. Ég hygg því að það séu fleiri en einn á mælendaskrá. Ég vona að forseti geti borið að þetta sé rétt. (Forsrh.: Ég sagði aldrei að það væri einn.)