18.05.1984
Neðri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6275 í B-deild Alþingistíðinda. (5717)
155. mál, kosningar til Alþingis
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Þótt ég hafi nú reyndar þegar við umr. um þetta mál gert grein fyrir því sem gjarnan er vísað til sem samkomulags formanna flokkanna, þá virðist vera rík ástæða til að fara yfir það einu sinni enn. Svo mjög virðist það vera misskilið.
Á þskj. 425 frá 106. löggjafarþingi segir svo í fskj.: „Þingflokkar Alþb., Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl., sem að frv. þessu standa, hafa auk þess orðið ásáttir um eftirfarandi:
1. Að leggja fram með frv. þessu, sem sérprentað fskj., „Skýrslu stjórnarskrárnefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar“ (Reykjavík, janúar 1983). Þetta er gert í því skyni að almennar umræður fari fram um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Ætti almenningi þá að gefast kostur á að tjá sig um þá endurskoðun þannig að afgreiðsla nýrrar stjórnarskrár geti orðið með vönduðum hætti að lokinni rækilegri umfjöllun.
2. Að beita sér fyrir aukinni valddreifingu og virkara lýðræði samhliða afgreiðslu nýrrar stjórnarskrár. M. a. fái sveitarfélög meira sjálfsforræði og þannig verði völd og áhrif landsmanna allra í eigin málum aukin, óháð búsetu þeirra. Jafnframt munu þingflokkarnir beita sér fyrir sérstökum aðgerðum til þess að jafna félagslega og efnalega aðstöðu manna þar sem mismununar vegna búsetu gætir helst.“
Ég vek í fyrsta lagi athygli á að það eru þingflokkarnir sem gefa þessa yfirlýsingu, en ekki formenn flokkanna, sem fluttu frv., þó að vissulega stöndum við að þessu í okkar þingflokkum. Í öðru lagi vek ég athygli á því alveg sérstaklega að í 2. lið segir: „Að beita sér fyrir aukinni valddreifingu og virkara lýðræði samhliða afgreiðslu nýrrar stjórnarskrár.“ Ekki samhliða afgreiðslu þeirrar litlu breytingar sem gerð er á stjórnarskránni samhliða kosningalagafrv.
Stjórnarskráin er enn þá í endurskoðun hjá stjórnarskrárnefnd. Stjórnarskrárnefnd hefur sent drögin til allra þingflokka til umsagnar. Tveir þingflokkar hafa svarað, aðrir ekki enn þá. Mættum við hv. þm. Stefán Valgeirsson t. d. spyrja um það í okkar þingflokki. Það hefur ekki borist svar þaðan.
Engu að síður, þótt það séu þingflokkarnir sem þessu lofa, beittum við formenn flokkanna okkur þó fyrir því að þingflokkarnir tilnefndu einn mann hver í nefnd sem fjalli um það sem hér er heitið. Tilnefningar hafa borist frá öllum flokkum og þær eru: Lárus Jónsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Helgi Seljan, Stefán Benediktsson, Kristín Halldórsdóttir og Eiður Guðnason. Ég mun beita mér fyrir því að þessir menn komi saman.
Ég vísa til þess sem hv. þm. Karvel Pálmason sagði áðan að ég hefði sagt að þessi nefnd ætti að fylgjast með. Vitanlega á hún að fylgjast með og vinna sjálfstætt. Hún gerir hvort tveggja.
Ég gat þess í þeirri umr. sem ég er nú að endurtaka svo að segja frá orði til orðs, að verið er að vinna að þessum málum. Verið er að vinna að þessum málum hjá stjórnarskrárnefnd og er ýmislegt í drögum þar sem má fella undir þetta þótt sumum muni sýnast þar ekki nægilega langt gengið.
Það er líka verið að vinna núna enn ötullegar að því á vegum félmrn. að skoða valddreifingu, sem er sérstaklega getið hér, á milli sveitarfélaga og ríkisvalds. Það mál hefur farið í gegnum margar nefndir og liggja fyrir mörg álit. Það er nú hafið sérstakt samráð á milli félmrn. og ríkisstj. og sveitarstjórnarmanna um samskipti ríkis og sveitarfélaga þar sem þetta verður m. a. rætt.
En vitanlega hlýtur nefndin að taka upp ýmis önnur mál, sem hún telur að þurfi að leggja áherslu á í þessu sambandi, og koma þeim á framfæri á viðkomandi stöðum. Ég mun, eins og ég hef sagt, beita mér fyrir því að þessi nefnd komi saman áður en þingi lýkur, en tek hins vegar fram að hún starfar ekki á ábyrgð forsrh. Hún starfar á ábyrgð þingflokkanna sem þessu lofuðu.