18.05.1984
Neðri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6276 í B-deild Alþingistíðinda. (5718)

155. mál, kosningar til Alþingis

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég hef áður í þessari umr. lýst almennum viðhorfum mínum til byggðamála og þeirra þátta sem eðlilega eru mjög til umræðu í tengslum við kosningalagabreytingu og stjórnarskrárbreytingu og ég vísa til þess sem ég sagði þar þó að það tæki engan veginn til allra þeirra þátta sem þar þurfa að vera til meðferðar. Það er langt frá því. Mér þykir það miður að sú nefnd, sem hæstv. forsrh. gat um hverjir ættu sæti í, skuli ekki hafa komið saman enn, en betra er seint en aldrei og gott ef hæstv. ráðh. hlutast til um að það gerist nú fyrir lok þingsins, en það er langt síðan minn flokkur tilnefndi mann í þá nefnd og ég veit að af hans hálfu hefur verið eftir því spurt hvort nefndin færi ekki að hefja störf. Á því er þeim mun meiri nauðsyn sem hér er um mjög víðtæk verkefni að ræða og mikið verk fram undan til þess að líta á þá mörgu þætti sem varða ójafna lífsaðstöðu fólks í landinu.

Ég nefni það einnig að Alþb. hefur tekið afstöðu til þeirrar fsp. sem kom fram snemma á þessu þingi varðandi viðhorf flokkanna til stjórnarskrárbreytingar, þannig að af hálfu þingflokks Alþb. hefur þar verið svarað fyrir löngu.

Það er vissulega leitt til þess að vita og satt að segja hörmulegt að á undanförnum misserum hefur hallað verulega undan fæti í sambandi við þau mál sem oft eru tengd byggðamálum og byggðajafnvægi, lífsaðstöðu fólksins út um landið. Það hefur gerst að hluta til og að drjúgum hluta fyrir tilverknað núverandi ríkisstj. og vegna þeirrar stjórnarstefnu sem fylgt er í landinu. Eins og ég orðaði það hér fyrr í umr. ríkir ákveðin örvænting meðal fólks víða úti um landið vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa og farið hafa verulega hrakandi.

Ég minni á að um daginn, þegar hæstv. forsrh. kom hér til að svara nánast sömu spurningum og lagðar voru fyrir hann nú og hann var að fara yfir á nýjan leik, nefndi hann sérstaklega húshitunarmálin og átak sem þar væri búið að gera eða í undirbúningi til jöfnunar. Það er einn stór þáttur í þessum málum, en ég undirstrika að það er aðeins einn þáttur af mjög mörgum sem varða ójafna lífsafkomu fólks.

Sem kunnugt er hefur hallað undan fæti í tíð núv. ríkisstj. varðandi þetta atriði og staðan verið til muna lakari með hækkandi orkuverði úti um landið á köldu svæðunum svokölluðu. Það sem síðast hefur gerst í þessum málum eða það sem við höfum síðast frétt í þessum málum er að stjfrv. sem lagt var fyrir þingið loksins 26. apríl, að mig minnir, og af talsmönnum ríkisstj. var talið boða einhverja breytingu í þessum efnum til bóta virðist nú vera sofnað í Ed. og hefur a. m. k. ekkert af því spurst og ekki horfur á því að það komi til afgreiðslu fyrir lok þessa þings. Það er vissulega svo, að litlu sem engu skiptir hvort þetta stjfrv. verður lögfest eða ekki þar sem í því fetast ekki neinar hagsbætur frá ríkjandi ástandi í þessum efnum, og þau atriði, sem út af fyrir sig eru góðra gjalda verð og snerta orkusparnað og aðgerðir til þess að bæta stöðuna með slíkum aðgerðum, er hægt að framkvæma án þess að til nokkurrar lagasetningar komi eða breytingar frá gildandi lögum.

Mér fannst nauðsynlegt að vekja hér athygli á þessu því að þetta er í rauninni kórónan á þeim seinagangi og tregðu sem ríkir hjá núverandi stjórnvöldum í að taka á þessum málum, þegar við blasir að fyrir tilverknað ríkisstj. og stjórnarstefnunnar hallast enn frekar á gagnvart fólkinu úti um landið frá því sem áður var. Ég get tekið mjög eindregið undir þá áskorun, sem m. a. kom hér fram frá hv. 3. þm. Vestf. áðan, að við hljótum að gera kröfu til þess að fyrir liggi stefna af hálfu núv. stjórnar og uppskera úr væntanlegu nefndarstarfi þeirra manna sem til hafa verið kvaddir af þingflokkanna hálfu ekki síðar en þegar þing kemur saman á ný. En þeir ágætu fulltrúar, sem til hafa verið kvaddir til að fjalla um þessi mál með stjórnvöldum, geta auðvitað ekki mikið lagt af mörkum annað en góðar hugmyndir, og það er undir þinginu og enn frekar undir ríkisstj. komið hvað í reynd verður gert til að bæta þann aðstöðumun sem nú ríkir í lífsafkomu fólks, annars vegar á aðalþéttbýlissvæðum landsins og hins vegar á landsbyggðinni, sem svo er kölluð, þar sem undirstaðan er lögð undir verðmætasköpun þessarar þjóðar, sem mest munar um í sambandi við afkomu þjóðarinnar í heild.