18.05.1984
Neðri deild: 98. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6286 í B-deild Alþingistíðinda. (5732)

155. mál, kosningar til Alþingis

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður kvartaði yfir því að aðeins andstæðingar þessa frv. skiptust á skoðunum um það. Ástæðan fyrir því er einföld. Það eru engir fylgismenn frv. hér á þingi. Það á sér sem sagt enga stuðningsmenn, þannig að það er ekki von að þeir sjáist hér í stólnum.

Í þeim umr. sem hér hafa farið fram um breytingu á kosningalögunum hefur hvað eftir annað komið fram að menn eru enn að blanda saman því sem ekki á að blanda saman, þ. e. vægi atkvæða og misrétti eftir búsetu. Og því segi ég við þá sem þannig tala: Hvers vegna á þá ekki að lagfæra ýmiss konar annað misrétti með misjöfnu atkvæðavægi? Eigum við ekki að berjast fyrir því t. d. að atkvæði öryrkja fái fjórfalt vægi á við heilbrigða? Og hvað um konur? Eigum við að segja tvöfalt vægi á við atkvæði karla? Ég vil bara benda á að mér vitanlega hefur aldrei komið til álita innan kvennahreyfinga að krefjast margfalds atkvæðisréttar kvenna á við karla á þeim forsendum að þær byggju við misrétti. Kannske stæðu konur betur ef þær hefðu haft tvöfaldan atkvæðisrétt undanfarna áratugi, en þær hafa farið aðrar leiðir. Þær eru kannske seinlegri, en þær eru réttari. Það hefur ekki hvarflað að þeim að krefjast forréttinda í þessu máli.

Ég held ég sleppi því að ræða þá stærðfræði sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson túlkaði hér áðan. Ég skildi hann nú ekki með nokkru móti.

Menn eiga misjafnlega auðvelt með að halda sig á réttum brautum, sagði hv. 3. þm. Vestf. Karvel Pálmason. Það þarf varla að fara í grafgötur með það hvaða brautir eru réttar að hans dómi. Þær munu vera á Vestfjörðum.

En ég hlýt að lýsa því yfir að mér finnst einkennilegt að hér skuli þrýst svo mjög á að koma í gegnum þingið þessum óskapnaði sem enginn er ánægður með. Ástæðan er náttúrlega sú að menn geta ekki sameinast um það hver er bestur Droop eða d'Hondt eða Lague eða leifin stóra.